Skip to main content Skip to footer

Viðskiptalausnir

Viðskiptalausnir Wise henta fyrirtækjum af öllum stærðargráðum, þar sem um er að ræða fullbúið bókhaldskerfi ásamt sérlausnum frá Wise eftir þörfum hvers og eins fyrirtækis. Sérlausnir Wise eru þróaðar með kröfur viðskiptavina að leiðarljósi, fyrir fyrirtæki í öllum atvinnugreinum og hafa reynst vel í íslensku viðskiptalífi. 

Sérlausnir Wise bjóða þannig upp á einfaldari samskipti við banka, birgja og hlutaðeigandi aðila og gefa góða yfirsýn yfir bókhaldið og reksturinn.

Vinnuumhverfi notenda er eins allsstaðar í kerfinu sem lágmarkar þjálfunarkostnað og einfaldar vinnuna. Hægt er að bæta við nýjum lausnum eftir því sem reksturinn stækkar eða breytist.

Viðskiptalausnir

Lausnir fyrir þitt fyrirtæki

Við bjóðum úrval viðskiptahugbúnaðarlausna sem byggja á þeirri hugmyndafræði að gera fyrirtækjum kleift að taka góðar og vel ígrundaðar viðskiptaákvarðanir, byggðar á öruggum upplýsingum úr viðskipta- og birgðakerfum fyrirtækisins.

Einnig gefst kostur á að leigja bókhaldið og aðrar viðskiptalausnir í mánaðarlegri áskrift.

Kynntu þér Business Central í áskrift

Tengjumst

Við skoðum þetta saman

Ertu með fyrirspurn eða ábendingu til okkar?
Endilega sendu okkur línu og við leysum málið.