Gervigreindarhakkari
Wise og Defend Iceland
Hvað finnur gervigreindarhakkari hjá þér?
Við kortleggjum það sem fyrirtækið þitt hefur opið út á internetið og staðfestum hvaða veikleika er raunverulega hægt að nýta, áður en einhver annar gerir það. Gervigreindarhakkarinn getur jafnvel fundið veikleika sem enginn vissi af áður.
Bóka 20 mínútna samtalÁn skuldbindingar. Ráðgjafi Wise fer yfir umhverfið þitt með þér.
Árásaraðilar leita að því sem þú veist ekki af
Gleymdur prófunarþjónn, gömul vefsíða eða fjartenging sem einhver opnaði og gleymdi. Flest fyrirtæki hafa meira opið út á internetið en þau vita af, og það er einmitt þar sem árásir byrja.
Þú færð svör, ekki lista
Niðurstaðan er stutt og skýr: hvað fannst, hvað er raunverulega hægt að nýta og hvað er mikilvægast að laga fyrst. Sérfræðingur Wise fer yfir hana með þér og ráðleggur um næstu skref.
Ekki enn einn skanninn
Hefðbundnir skannar leita að þekktum veikleikum. Gervigreindarhakkarinn hermir eftir raunverulegri árás.
| Hefðbundinn skanni | Gervigreindarhakkari |
|---|---|
| Leitar að þekktum veikleikum | Hermir eftir raunverulegri árás |
| Skilar löngum lista af viðvörunum | Staðfestir hvað er hægt að nýta |
| Þú þarft sjálf/ur að finna hvað skiptir máli | Sérfræðingur Wise fer yfir niðurstöðurnar með þér |
Hvenær er rétt að skoða þetta?
Þú veist ekki hvað er opið
Þú veist ekki nákvæmlega hvað fyrirtækið hefur opið út á internetið.
Breyting og uppfærsla
Þið eruð nýbúin að færa kerfi í skýið, skipta um birgja eða opna nýja þjónustu.
Samningskröfur
Viðskiptavinur, útboð eða tryggingafélag spyr um stöðu öryggismála.
ISO 27001
Þið vinnið að ISO 27001 og þurfið gögn um hvernig þið stýrið veikleikum.
SAMSTARF WISE OG DEFEND ICELAND
Tvö fyrirtæki, eitt símtal
Defend Iceland sér um tæknina og Wise er þinn tengiliður.
Defend Iceland – tæknin
Þróar og rekur gervigreindarhakkarann. Sér um prófanirnar sjálfar og mannlega yfirferð á niðurstöðum.
Wise – ráðgjöfin og innleiðingin
Metur hvað hentar þínum rekstri, kemur þér af stað og setur niðurstöðurnar í samhengi. Þjónusta og samskipti á íslensku.
ALGENGAR SPURNINGAR
Spurningar og svör
Er þetta öruggt fyrir kerfin okkar?
Ekkert er prófað án þíns samþykkis, og prófanirnar miða aldrei að því að trufla rekstur eða gera þjónustu óvirka.
Hvað þarf ég að gera?
Mjög lítið. Þú gefur upp aðallén fyrirtækisins, ferð yfir það sem fannst með okkur og samþykkir hvað verður prófað. Wise sér um afganginn.
Nýtist þetta í ISO 27001?
Já. Niðurstaðurnar nýtast sem gögn um það hvernig fyrirtækið greinir og bregst við veikleikum. Úttektaraðilinn metur hvort þær dugi einar og sér.
Hvað tekur þetta langan tíma?
Það fer eftir umfanginu. Ráðgjafi Wise gefur þér raunhæfa mynd í fyrsta samtali.
Af hverju gervigreindarhakkari?
Gervigreindin fer kerfisbundið yfir allt sem er opið út á internetið, hraðar en manneskja getur. Þannig færðu niðurstöður sem eru bæði víðtækar og staðfestar.
Næsta skref
Sjáðu hvað sést utan frá, áður en einhver annar gerir það
Bóka 20 mínútna samtalÁn skuldbindingar. Ráðgjafi Wise hefur samband innan eins virks dags til að finna tíma.
Tengjumst
Við skoðum þetta saman