Skip to main content Skip to footer

Skýjavakt BC

Skýjavakt Business Central

Hugarró fyrir daglegan rekstur

Við sjáum um uppfærslur, eftirlit og afritun í Business Central í skýinu.

Fjórir veikleikar sem enginn vaktar

Business Central í skýinu er í stöðugri þróun. Án yfirsýnar geta þessir fjórir hlutir farið úrskeiðis án þess að nokkur taki eftir því.

Uppfærslur

Uppfærslur berast sjálfkrafa frá Microsoft, en án yfirsýnar getur ein lent daginn fyrir mánaðamót. Það er mikil handavinna að uppfæra mörg öpp og sérkerfi.

Verkröð sem stoppar

Verkröð sem stöðvast kemur oft ekki í ljós fyrr en notandi verður var við afleiðingarnar. Það getur verið dýrkeypt.

Gagnamagn og fjöldi umhverfa

Hvort tveggja getur aukist hratt. Án eftirlits er hætta á að brugðist sé of seint við.

Öryggisafritun

Stöðluð afritun nær aðeins 28 daga aftur í tímann. Það dugar ekki alltaf ef gagnatap uppgötvast síðar eða regluverk krefst lengri sögu.

Alhliða rekstur á Business Central í skýinu

Leyfðu sérfræðingum að sjá um rekstur Business Central umhverfisins frá a–ö.

Uppfærslur

Við komum uppfærslum í production umhverfið á réttum tíma fyrir ykkar fyrirtæki, ásamt þeim öppum sem þar eru sett upp.

Eftirlit

Við fylgjumst með grunninum og bregðumst við endurteknum villum, til dæmis frá verkröðum. Við greinum rót vandans ef villur eða tafir koma ítrekað upp.

Gögn

Afritunarþjónusta, eftirlit með stærð umhverfis og fjölda umhverfa í notkun. Þannig komum við í veg fyrir óvæntan kostnað vegna gagnageymslu.

Fyrir hverja? Fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem nota Business Central í skýinu (SaaS). Við fyrirbyggjum vandamálin með öruggum rekstri.

Fimm dæmi úr daglegum rekstri

Svona kemur Skýjavakt BC í veg fyrir vandamál áður en starfsfólk verður þeirra vart.

Uppfærsla lendir aldrei á launadegi

Fyrirtæki sem reiknar laun og sendir út reikninga um mánaðamót.

Vandamálið

Uppfærsla á kerfinu má ekki lenda á röngum degi. Niðritími eða truflun í kringum launakeyrslu eða reikningagerð getur tafið greiðslur til starfsfólks og útsendingu reikninga.

Lausnin

Skýjavakt BC tímasetur allar uppfærslur út frá rekstrarþörfum viðskiptavinar og forðast fyrirfram skilgreinda daga.

Ávinningur

  • Engin hætta á að uppfærsla trufli laun eða reikninga
  • Full stjórn á því hvenær uppfærslur eiga sér stað
  • Öryggi og fyrirsjáanleiki

Fyrirsjáanlegur rekstur í stað óvæntra uppákoma

Dæmin fimm á einni síðu: hvað getur farið úrskeiðis, hvað við gerum og hvað þið græðið.

Dæmi, vandamál, lausn og ávinningur af Skýjavakt BC
DæmiVandamálLausnÁvinningur
Uppfærsla á launadegi Uppfærslur geta truflað laun og reikningagerð um mánaðamót. Uppfærslur eru tímasettar út frá rekstrarþörfum ykkar og forðast fyrirfram skilgreinda daga.
Frá Grunni
Engin truflun. Full stjórn á því hvenær uppfærslur eiga sér stað.
Yfirsýn og stjórn Uppfærslur berast án fyrirvara eða skýringa. Tilkynnt er fyrirfram hvað er að breytast og hvenær.
Frá Grunni
Full yfirsýn. Enginn óvæntur niðritími og aukið traust til kerfisins.
Gagnamagn og umhverfi Fari gagnamagn fram úr mörkum fylgir aukakostnaður. Fylgst er með gagnamagni og fjölda umhverfa og látið vita þegar mörk nálgast.
Frá Grunni
Enginn óvæntur kostnaður. Tími til að bregðast við í tíma.
Verkraðir og sjálfvirk ferli Sjálfvirk ferli stöðvast án þess að neinn taki eftir. Verkraðir eru vaktaðar og brugðist er við ef þær stöðvast, með greiningu á rót vandans.
Frá Kjarna
Ferlin keyra. Engin handvirk eftirlitsvinna og hröð viðbrögð.
Öryggisafritun 28 daga afritun Microsoft dugar ekki alltaf. Öryggisafrit varðveitt í allt að 7 ár, í Azure eða heima á Íslandi.
Azure frá Kjarna · Ísland í Plús
Öryggisnet ef gagnatap uppgötvast seint og meiri hugarró til lengri tíma.

Þrjú þjónustustig sem byggja hvert á öðru

Grunnur og Kjarni eru í boði núna en Plús er í þróun. Byrjið á yfirsýn og bætið við vöktun og vernd eftir þörfum.

Grunnur Í boði núna

Yfirsýn í grunninn

Hentar: fyrirtækjum sem vilja að uppfærslur lendi aldrei á launadegi eða við reikningagerð, vilja vita fyrirfram hvað breytist og eru með fáar eða engar verkraðir.

  • Uppfærslur á ykkar forsendumWise stýrir og tímasetur uppfærslur á sérkerfum og öppum út frá rekstrarþörfum ykkar, svo þær lendi ekki á versta mögulega tíma.
  • FyrirvariTæknilegur tengiliður fær tilkynningu um hvenær umhverfi eða app uppfærist, með rými til að mótmæla ef tíminn hentar ekki starfseminni.
  • Viðvörun áður en þrengir aðVið fylgjumst með gagnamagni og fjölda umhverfa og látum vita áður en mörk nálgast.
Bóka samtal um Grunn

Kjarni Í boði núna

Virk vöktun og viðbragð

Hentar: fyrirtækjum sem treysta á sjálfvirkar verkraðir, til dæmis gengisinnlestur eða sendingu og móttöku reikninga, og vilja afrit lengra aftur en 28 daga Microsoft.

Allt í Grunni, auk:

  • Verkraðir undir smásjáVið tilkynnum ekki aðeins ef verkröð stoppar, við greinum rót vandans þegar villur eða tafir koma ítrekað upp.
  • UmhverfiseftirlitLæstar töflur, hægar SQL-aðgerðir og endurteknar villur gripnar snemma.
  • Vefþjónustur vaktaðarÓvenjulegt mynstur gripið áður en það verður vandamál.
  • Mánaðarlegt yfirlitYfirsýn yfir liðinn mánuð og hvað er framundan.
  • Afritun í Azure Storage AccountÖryggisafrit umfram það sem Microsoft veitir, varðveitt í allt að 7 ár.
Bóka samtal um Kjarna

Plús Í þróun

Fullkomin hugarró

Hentar: fyrirtækjum með strangar kröfur um öryggi og afritun, til dæmis afrit varðveitt á Íslandi, eða sem nota agents eða Entra-öpp tengd Business Central. Hugsað fyrir meðalstór og stór fyrirtæki.

Allt í Kjarna, auk:

  • Árekstrarpróf uppfærslnaPrófað í sandbox áður en breytingar fara í production.
  • Entra ApplicationsAPI-heimildir sem eru að renna út lagaðar með ykkur áður en samþætting dettur út.
  • Eftirlit með AgentsVöktun á óeðlilegri token-notkun eða agent sem hættir að virka (í þróun).
  • Afritun heim til ÍslandsÖryggisafrit flutt og varðveitt í gagnaveri á Íslandi.
  • Skýrar varðveislureglurReglur settar upp í Business Central svo þið séuð ekki að geyma óþarfa gögn, til dæmis tíu ára gömul tilboð.
  • Öryggi gagna í fyrirrúmiTilkynnt strax ef utanaðkomandi kerfi fær aðgang, Global Admin skráir sig inn í fyrsta sinn eða einhver fær SUPER-heimild.
Skrá áhuga á Plús

Í Kjarna og Plús eru 10 verkraðir innifaldar og afritun upp að 100 GB. Viðbótarpakki bætist við fyrir hverjar 10 verkraðir og hvert 100 GB til viðbótar.

Samanburður þjónustustiga

Samanburður á þjónustustigunum Grunni, Kjarna og Plús
ÞjónustaGrunnurÍ boðiKjarniÍ boðiPlúsÍ þróun
Uppfærslur
Uppfærslur sérkerfa og appa í Business Central
Tímasettar uppfærslur fyrir öll Business Central umhverfi
Árekstrarpróf í sandbox áður en uppfærsla fer í production
Eftirlit
Eftirlit verkraða
Umhverfiseftirlit
Eftirlit með vefþjónustum
Mánaðarlegt yfirlit
Eftirlit með Entra Applications
Eftirlit með Agents
Gögn
ÖryggisafritunEnginAzure Storage AccountAfritun til Íslands
Rakning gagnamagns
Rakning fjölda umhverfa
Varðveislureglur gagna innan Business Central
Öryggi gagna

Mánaðarskýrslan sýnir stöðu kerfisins á einni síðu

Með Kjarna og Plús fáið þið mánaðarlegt yfirlit: hvaða umhverfi eru í vöktun, hvaða uppfærslur voru framkvæmdar og hvaða atvik voru skráð. Engin leit í kerfum, bara skýr mynd af stöðunni.

Dæmi

Algengar spurningar

En er þetta ekki partur af þjónustusamningnum?

Nei. Þjónustusamningurinn er viðbragðsþjónusta: þið hafið samband og Wise bregst við. Hann felur í sér þjónustugátt, viðbragðstíma, afslátt af tímagjaldi og stöðufundi.

Skýjavakt er fyrirbyggjandi rekstur. Wise fylgist með kerfinu og bregst við áður en þið verðið vör við vandann. Það krefst vöktunarkerfis, telemetry og vinnu sem fer fram hvort sem einhver hefur samband eða ekki.

Ekkert er tekið af þjónustusamningnum. Allt sem þar er áfram í gildi og Skýjavakt bætist ofan á.

Sér Microsoft ekki um uppfærslurnar?

Microsoft uppfærir grunnkerfið. Við sjáum um að öppin fylgi með, að tímasetningin henti ykkur og að prufuumhverfi sé uppfært fyrst.

Við erum með eigin tölvudeild. Hvað breytist?

Skýjavakt léttir á þeim. Tilkynningar fara á netfang tæknilegs tengiliðs hjá ykkur og þið ákveðið hvað er gert.

Fyrir hverja er Skýjavakt BC?

Fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem nota Business Central í skýinu (SaaS) og vilja öruggan, fyrirsjáanlegan rekstur án þess að sinna eftirliti sjálf. Plús er hugsað fyrir meðalstór og stór fyrirtæki.

Hvað er innifalið í verkröðum og afritun?

Í Kjarna og Plús eru 10 verkraðir innifaldar og afritun upp að 100 GB. Þurfið þið meira bætist við viðbótarpakki fyrir hverjar 10 verkraðir og hvert 100 GB til viðbótar.

Hvað er ekki innifalið?

Þetta er reikningsfært sérstaklega: kennsla, breytingar á virkni og skýrslum, sérbreytingar sem brotna við uppfærslu, vinna með gögn, villur í öppum samstarfsaðila og í grunnkerfi Microsoft, endurheimt gagna og ný umhverfi frá grunni.

Hvað þarf frá okkur?

Einn tæknilegan tengilið, helst með sameiginlegu netfangi, og admin-aðgang fyrir Wise að Business Central á meðan samningurinn gildir.

Prufuumhverfi þarf að heita [nafn raunumhverfis]_TEST til að vera uppfært. Önnur sandbox-umhverfi eru ekki snert.

Hvað ef við notum telemetry sjálf?

Þá skoðum við saman hvernig best er að vinna þetta. Skýjavakt operation appið þarf þá aðgang að telemetry ykkar.

Veljum þjónustustig.

Þið sinnið rekstrinum. Við vöktum kerfið.

Skýjavakt Business Central er þjónusta frá Wise.

wise.is

Tengjumst

Við skoðum þetta saman

Ertu með fyrirspurn eða ábendingu til okkar?
Endilega sendu okkur línu og við leysum málið.