Skip to main content Skip to footer

Wise og Þekking taka næstu skref í sameiningunni

Heildstætt lausnaframboð sem hjálpar viðskiptavinum að ná árangri

Á síðasta ári var tilkynnt um kaup Wise á öllu hlutafé Þekkingar og gengu kaupin í gegn á haustmánuðum við samþykkt Samkeppniseftirlitsins. Nú hafa fyrirtækin verið sameinuð undir merkjum Wise að Ofanleiti 2 í Reykjavík og verða skrifstofur á Akureyri sameinaðar í nýju húsnæði að Hafnarstræti 91 í sumar. Wise er einnig með skrifstofur í Litháen.

Við sameininguna verður til eitt af öflugri fyrirtækjum í upplýsingatækni á Íslandi með tæplega 200 starfsmenn og yfir 4 milljarða veltu.

Wise býður nú upp á heildstætt lausnaframboð á sviði upplýsingatækni sem samanstendur af hýsingu og rekstrarþjónustu ásamt heildarlausnum á sviði viðskipta fyrir fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög.

Við byggjum á sterkum grunni beggja fyrirtækja og nú geta viðskiptavinir sótt alla okkar þekkingu og sérfræðikunnáttu á einum stað. Framundan er gríðarlega spennandi uppbygging. Við erum stórhuga og ætlum okkur að styðja við okkar kraftmiklu viðskiptavini með framsæknum og traustum lausnum.“ segir Jóhannes Helgi Guðjónsson, forstjóri Wise.

Í fararbroddi í þróun og innleiðingu skýjalausna

Wise hefur verið á mikilli uppleið undanfarið og vaxið gríðarlega á síðustu árum. Tekjur fyrirtækisins hafa margfaldast og starfsfólk er að nálgast 200. Vöruframboð hefur aukist til muna og Wise býður nú breitt úrval þjónustu og lausna. Wise er í fararbroddi í þróun og innleiðingu á skýjalausnum og hefur árangur á þeim vettvangi vakið athygli út fyrir landsteinana. Wise fékk tilnefningu til Microsoft Partner Award 2024 í flokki Business Applications SMB & Business Central þar sem Wise hafnaði í einu af efstu þremur sætunum af 30 fyrirtækjum sem hlutu tilnefningu. 

Mikil áhersla er á skýjavæðingu viðskiptakerfa Wise og stuðning við skýjavegferð viðskiptavina. Þar spilar lykilhlutverk að lausnir Wise séu aðgengilegar í AppSource, markaðssvæði Microsoft fyrir skýjalausnir. Lausnum Wise í AppSource hefur fjölgað hratt á stuttum tíma og eru nú yfir 40 talsins. Þær eru sniðnar að þörfum fyrirtækja, sveitarfélaga og opinberra stofnana, til að létta undir á hinum ýmsu sviðum, t.d. við fjármálin, innkaupin eða starfsmannahald. 

Í skýinu felast ótal tækifæri og ljóst er að þau fyrirtæki og stofnanir sem vilja ná og halda samkeppnisforskoti munu koma til með að nýta sér skýjalausnir á einhvern máta. Skýjaumhverfi býður upp á hagkvæmara og fyrirsjáanlegra rekstrarumhverfi ásamt því að opna á nýtingu gervigreindar og annarra tóla sem einungis standa til boða í skýinu.

Nýjungar í vöruframboði 

Skeytamiðlun er nýjung í vöruframboði Wise og sér um að miðla skeytum á borð við rafræna reikninga og pantanir. Wise hefur einnig þróað lausnina Stafræn miðja stofnana sem mun einfalda öll samskipti og tengja sveitarfélög og ríkisstofnanir við Stafrænt pósthólf á island.is, Skeytamiðlun og Strauminn, þar sem öryggi gagna og rekstur er tryggður af Wise.

Veflausnir Wise hafa verið á mikilli siglingu síðustu misseri og hafa þegar fjölmörg sveitarfélög innleitt Wise Wallet veskislausnina og Rafrænar umsóknir. Wise Wallet gerir þeim kleift að bjóða viðskiptavinum að vista kortin sín í farsímanum sem veitir aðgang að fyrirframgreiddri vöru eða þjónustu. Rafrænar umsóknir hafa umbylt þjónustu út á landsbyggðinni þar sem íbúar geta nú sótt um þjónustu og skráð sig í áskrift, t.d. mataráskrift, frístund og hundaleyfi, hjá sínu sveitarfélagi í gegnum vefgátt en áður þurfti jafnvel að keyra langar vegalengdir til að skila inn pappírum á bæjarskrifstofuna. 

Heildstætt vöruframboð styður við stafrænan vinnustað

Wise styður við stafræna umbreytingu fyrirtækja og leggur þar áherslu á hagkvæmni, öryggi og framsýni. Lykil áherslur eru á að tvinna saman vöruframboði Wise og Þekkingar og vera þannig betur í stakk búin að bjóða viðskiptavinum okkar upp á heildstætt vöruframboð sem styður vel við þeirra markmið og framtíðarsýn. Þar fer fremst hönnun, uppsetningu og rekstur innviða, t.d. á þjónum, netkerfum, afritunum og öryggismálum. En einnig uppsetning og innleiðing viðeigandi viðskiptakerfa, raf- og sjálfvirknivæðing ferla til að bæta rekstur og þjónustu ásamt nýtingu viðskiptagreindar. Þannig geta viðskiptavinir öðlast betri yfirsýn yfir reksturinn og tekið gagnadrifnar ákvarðanir.

Vel heppnuð innleiðing á kerfum felur í sér þjálfun og stuðning  við endanotendur og leggur Wise áherslu á að rækta gott samband við sína viðskiptavini. Markmiðið er að viðskiptavinir okkar geti rekið stafrænan vinnustað sem er eftirsóknarverður og samkeppnishæfur á öllum sviðum. Þar bjóðum við heildstætt vistkerfi með öflugum skýjalausnum Microsoft ásamt okkar eigin hugbúnaðarlausnum sem allar tala saman, má þar nefna Microsoft 365, Dynamics 365, Power Platform, Azure, skjala- og málakerfi, Teams, sérkerfi Wise o.fl.

Viltu vita meira um vöruframboð Wise? 

Tengjumst

Við skoðum þetta saman

Ertu með fyrirspurn eða ábendingu til okkar?
Endilega sendu okkur línu og við leysum málið.