Skip to main content Skip to footer

Business Central 2026 release wave 2 - allt sem þú þarft að vita

Í byrjun október tilkynnti Microsoft nýjungar í Business Central 2026 wave 2 (útgáfa 29.0). Í útgáfunni eru margar hagnýtar viðbætur, en ein breyting er í vændum sem þarf að undirbúa.

Við tókum saman nokkrar breytingar sem okkur þykja hagnýtar og gagnlegar og hvað þú þarft að gera, hvað þú getur byrjað að nota strax og hvað er handan við hornið. Athugið að þetta er ekki tæmandi listi.

Sumt af þeirri virkni sem lýst er í þessari útgáfuáætlun hefur ekki enn verið gefið út. Afhendingartímalínur geta breyst og ekki er víst að áætluð virkni verði gefin út (sjá Microsoft policy). Frekari upplýsingar: What’s new and planned

Breytingar í vændum: SOAP vefþjónustur Þarf að undirbúa

Microsoft hefur tilkynnt að ekki verði hægt að birta staðlaðar Microsoft síður með SOAP vefþjónustu í útgáfu 30, sem kemur út í apríl 2027.

Til að undirbúa þessa breytingu er mikilvægt að skoða hvort það séu einhverjar staðlaðar síður (e. Page) birtar á listanum Vefþjónusta (e. web services) í Business Central með SOAP vefslóð og hvort þær séu í notkun.

oData vefþjónustur koma til með að virka áfram í einhvern tíma, en við mælum með að færa það sem er í eldri vefþjónustum yfir í API vefþjónustur.

Athugið að einungis um staðlaðar vefþjónustur er að ræða, ekki vefþjónustur sem sérkerfi eða sérskrif (e. PTE) nota.

Færri smellir fyrir alla notendur

Leitin man nýlegar leitir

„Nýlega notað“ birtist efst í uppflettingum

Skjöl og PDF opnast beint í vefbiðlaranum

Analysis Mode sýnir hver stofnaði eða breytti færslu og hvenær

Analysis Mode með síu á Created By og Created At

Agentar

Sölufulltrúinn

Sölufulltrúinn (Sales Order Agent) tekur á móti fyrirspurnum viðskiptavina í tölvupósti, kannar birgðastöðu og afhendingartíma, útbýr sölutilboð og breytir því í sölupöntun þegar viðskiptavinurinn hefur staðfest.

Útgjalda- og innkaupafulltrúi

Útgjaldafulltrúinn og innkaupafulltrúinn vinna á svipaðan hátt.

Manneskja samþykkir

Fulltrúarnir undirbúa en manneskja samþykkir.

Fyrir stjórnendur kerfisins

Skýrsluþemu

Lógó, litir og letur nú á einum stað.

Mánaðarlokapakki

Margar fjárhagsskýrslur í einni PDF skrá.

Page Scripting

Taktu upp lykilferla og spilaðu þá í prufuumhverfi í útgáfu 29 áður en raunumhverfið er uppfært.

Wise AI

Gervigreindartól fá aðgang að gögnum, sjálfgefið eingöngu til lestrar og alltaf með heimildum notandans.

Dagsetningar

Byrjun nóvemberPreview sandboxum eytt

Microsoft eyðir preview sandboxum fyrir útgáfu 29.

Lok febrúar 2027Uppfærsluglugginn lokast

Microsoft uppfærir þá sem eftir eru.

Gátlisti fyrir uppfærsludaginn

1. VefþjónusturFinndu SOAP slóðir

Finndu SOAP vefþjónustuslóðir undir Vefþjónusta (e. Web Services) og í telemetry gögnum og byrjaðu að skipuleggja að færa þær yfir í API vefþjónustur

2. PrófanirPrófaðu í sandbox

Prófaðu lykilferla í 29.0 prufuumhverfi (e. sandbox) með öllum viðbótunum þínum

3. AðgangurVeldu notendur

Ákveddu hverjir fá aðgang að Copilot og agentum

4. UppfærslaTímasettu uppfærsluna

Tímasettu uppfærsluna í Admin Center, annars gerir Microsoft það fyrir þig, eða láttu Wise sjá um málið fyrir þig: Skýjavakt BC

Nýjungar í sérkerfum Wise

Wise AInóvember

Spurðu um öll gögn í Business Central með þínum eigin heimildum. Wise AI notar MCP (Model Context Protocol) og virkar því með Claude, ChatGPT, Copilot og Gemini. Prófanir með viðskiptavinum eru hafnar og kerfið kemur á AppSource með prufuáskrift í desember.

Capture AIfrá 1. nóvember

Les reikninga úr tölvupósti nánast samstundis og nákvæmar en áður. Þú vinnur áfram í Wise Capture, gögnin eru innan EES og ekkert er geymt eftir afhendingu.

Tollun AInóvember

Vefgátt ofan á Business Central og Wise Import. Gervigreind les reikninga og fylgibréf, BC villutékkar og sendir til tollsins með EDI. Notandinn staðfestir hvert skref.

Bankasamskipti

Sjálfvirk bankaafstemming er innifalin og framvirkar greiðslur fylgja nú frítt með. Copilot pörun er ný greidd viðbót þar sem gervigreind leggur til pörun greiðslna við færslur, notandinn samþykkir og afstemmingin bókast.

Innheimta

Kröfur eru stofnaðar við bókun, og sending, innlestur og bókun greiðslna gerist sjálfkrafa. Nýtt: sjálfvirkniflísar, leit í kröfukeyrslu og möguleiki á að lesa greiðslur inn aftur.

Skýjavakt Business Central: við vöktum kerfið, þið sinnið rekstrinum

Business Central í skýinu er í stöðugri þróun og án yfirsýnar geta fjögur atriði farið úrskeiðis án þess að nokkur taki eftir: uppfærslur á vondum tíma, vinnsluraðir sem stoppa, gagnamagn sem eykst hratt og afritun sem nær aðeins 28 daga aftur í tímann. Skýjavakt BC er fyrirbyggjandi þjónusta frá Wise sem sér um uppfærslur, eftirlit og afritun:

  • Uppfærslur á ykkar forsendum, svo þær lendi aldrei á launadegi eða við reikningagerð
  • Eftirlit með verkröðum og umhverfi, svo brugðist sé við áður en notendur verða varir við vandann
  • Viðvörun áður en gagnamagn hægir á kerfinu eða kostnaður eykst
  • Öryggisafrit varðveitt í allt að 7 ár, í Azure eða á Íslandi

Hér fyrir neðan er upptaka frá veffundi þar sem Brynjar Jóhannesson og Hrefna Þórisdóttir fóru yfir það helsta.

Tengjumst

Við skoðum þetta saman

Ertu með fyrirspurn eða ábendingu til okkar?
Endilega sendu okkur línu og við leysum málið.