Gervigreind og stafrænt starfsfólk í Business Central og Wise lausnum
Wise AI
Wise AI MCP
Gervigreindartólið þitt tengist nú við Business Central og Wise lausnir á öruggan hátt
Í gegnum Wise AI MCP er nú mögulegt að tengjast gögnum Business Central og láta gervigreindina vinna úr gögnum, til dæmis útbúa sjóðstreymi og bera saman áætlanir við raun. Þú velur gervigreindartólið, svo sem Claude, Copilot, ChatGPT og Gemini, en Wise AI MCP er brúin yfir í Business Central.
Stafrænt starfsfólk verður að raunveruleika og fer að vinna raunveruleg verk í Business Central og sérkerfum Wise: bóka, senda, afstemma og minna á. Ekkert er bókað án forskoðunar, ekkert fer yfir mörkin sem þið setjið og hvert skref er skráð.
Kostur þess að vera með Wise AI MCP er að hann talar við sérkerfin frá Wise og þekkir ferlana þar. Þannig færðu meira virði út úr kerfunum sem þú notar í dag.
Sjáðu Wise AI MCP vinna verkin
Spurt á íslensku, svarið kemur úr Business Central og verkið er unnið eftir forskoðun.
Sýnigögn úr Demo Heildsala ehf.
Spyrjið á venjulegu máli og fáið svarið strax
Notandinn skráir sig inn með sínum Microsoft-aðgangi og biður um verkið á venjulegu máli. Gervigreindin vinnur alltaf með heimildum notandans.
„Hvaða viðskiptavinir skulda meira en 90 daga?“
Svar beint úr Business Central, án þess að afrita neitt.
„Útbúðu greiðslutillögu fyrir föstudaginn.“
Tillagan er tilbúin í Wise Banking til yfirferðar og samþykktar.
„Er VSK-skýrslan í samræmi við fjárhaginn?“
Afstemming og listi yfir frávik, áður en skilað er.
Virkar með Claude, Copilot, ChatGPT, Gemini og öðrum biðlurum sem styðja Model Context Protocol (MCP).
Frá beiðni að kláruðu verki
Gervigreindin klárar verkið í einni beiðni og sýnir svarið skýrt, beint í spjallinu.
Biðjið einu sinni
„Búðu til reikning og bókaðu hann.“ Þegar beiðnin er skýr er verkið unnið eftir forskoðun, án þess að spurt sé aftur.
Úr skjali í innkaupareikning
Reikningur frá lánardrottni verður að innkaupareikningi í Business Central, skráður og bókaður. Sama gildir um sölutilboð, sölupantanir og kreditreikninga.
Beint í Business Central
Hverju svari um fylgiskjal eða viðskiptamann fylgir hlekkur sem opnar spjaldið í Business Central.
Myndrænt svar í spjallinu
Aldursgreindar kröfur, sjóðstreymisspá og forskoðun bókunar birtast sem gröf og töflur, á íslensku.
Innheimta frá upphafi til enda
Hverjir skulda, hverjir eru yfir hámarksskuld, og innheimtubréf útbúin, gefin út og send í tölvupósti.
Stafrænt starfsfólk sem tekur frumkvæðið Í prófun
Stafrænn starfsmaður fer af stað þegar eitthvað gerist í Business Central eða á föstum tíma. Hann vinnur verkið, skráir það og lætur vita ef eitthvað þarf samþykki.
Reikningur er gefinn út, reikningur er bókaður, eða klukkan slær: daglega, á virkum dögum eða í mánaðarlok.
Hann les færsluna aftur í Business Central og kannar heimildir, mörk og stöðvanir áður en nokkuð er gert.
Það sem er innan markanna er unnið strax. Ef þið krefjist samþykkis fer annað í samþykkt hjá réttum aðila.
Hver keyrsla er skráð með kveikju, starfsmanni og niðurstöðu. Kerfisstjóri getur stöðvað allt strax.
Bókar útgefna reikninga
Þegar sölureikningur er gefinn út bókar starfsmaðurinn hann, ef upphæðin er innan markanna.
Reikningar bíða í útgefinni stöðu þar til einhver hefur tíma til að bóka þá.
Bókað um leið. Reikningar yfir mörkum bíða samþykkis, ef þið hafið sett mörk.
Sendir bókaða reikninga
Þegar reikningur er bókaður sendir starfsmaðurinn hann viðskiptavininum, eins og Business Central er stillt.
Bókaðir reikningar gleymast stundum og greiðslur berast seinna.
Reikningurinn fer strax. Hægt er að sjá hvort sendingin tókst.
Fylgist með gjaldföllnum kröfum
Daglega, á virkum dögum eða í mánaðarlok finnur starfsmaðurinn viðskiptavini sem þarf að minna á og útbýr innheimtubréf.
Innheimtan situr á hakanum þegar mikið er að gera.
Engin krafa gleymist. Útgáfa og sending fylgja ykkar stillingum.
Afstemmir safnlykla við undirbækur
Í mánaðarlok, eða oftar ef þið viljið, ber starfsmaðurinn safnlykla viðskiptamanna og lánardrottna saman við færslur þeirra.
Afstemmingin er unnin í töflureikni dögum eftir mánaðamót, ef tími gefst.
Niðurstaðan bíður í Business Central: mismunur, frávik og færslur sem skýra hann. Ekkert er leiðrétt án ykkar.
Afstemmir birgðir við safnlykla
Starfsmaðurinn ber birgðavirði saman við birgðalykla fjárhagsins og finnur kostnað sem á eftir að bóka.
Mismunur í birgðum finnst við uppgjör, þegar erfitt er að rekja hann.
Frávik sjást strax, með skýringum. Starfsmaðurinn bókar aldrei sjálfur.
Gerir sjóðstreymisspá í hverri viku
Í hverri viku, eða eins oft og þið veljið, reiknar starfsmaðurinn sjóðstreymið næstu vikur úr bókhaldinu: bankastöðu, kröfur, skuldir, pantanir og virðisaukaskatt.
Sjóðstreymisspáin er sett saman í töflureikni þegar einhver hefur tíma til þess.
Ný spá bíður í Business Central í hverri viku, með lægstu stöðu, forsendum og greiðsluvenjum viðskiptavina. Þið getið líka spurt: „Hvernig lítur sjóðstreymið út til mánaðamóta?“
Eigin auðkenni
Hver starfsmaður hefur sitt eigið auðkenni í Business Central. Hann notar aldrei aðgang neins starfsmanns.
Innan heimilda eigandans
Hver starfsmaður hefur eiganda og getur aldrei gert meira en eigandinn má.
Fólk sér um peninga og skatta
Stafrænn starfsmaður sendir aldrei greiðslur í banka og skilar aldrei til Skattsins. Það gerir alltaf manneskja.
Þið getið stöðvað hvenær sem er
Hægt er að stöðva einn starfsmann, eina aðgerð eða allt fyrirtækið, strax.
Stafrænt starfsfólk er í prófun hjá Wise. Fleiri kveikjur og verk bætast við.
Gervigreindin kann á Wise lausnirnar ykkar
Wise AI MCP þekkir ferlana í Wise lausnunum sem þið notið nú þegar og vinnur verkin í þeim eins og þjálfaður notandi.
Wise Banking
- Útbýr greiðslutillögur og sannreynir viðtakendur
- Sækir bankayfirlit og sýnir stöðu afstemminga
- Finnur greiðslur sem stranda
Wise VSK
- Undirbýr virðisaukaskattsskýrslu
- Afstemmir hana við fjárhag og finnur frávik
Wise Collection Claims
- Sendir bókaða sölureikninga í innheimtu sem kröfur í banka
- Sýnir stöðu og sögu hverrar kröfu
- Listar opnar kröfur á hvern viðskiptamann
Þetta eru dæmi. Fyrir hverja viðbót þarf viðkomandi Wise lausn að vera uppsett.
Svona virkar Wise AI MCP
Öryggi og yfirsýn í hverju verki
Gervigreind sem vinnur í bókhaldinu þarf skýrar reglur. Þær eru innbyggðar í Wise AI MCP og gilda um hvert einasta verk, sama hvaða gervigreind biður um það.
Forskoðun fyrir hverja bókun
Áður en nokkuð er bókað sést nákvæmlega hvaða færslur verða til. Bókunin verður að passa við forskoðunina, annars er henni hafnað.
Mörk og samþykki eftir ykkar höfði
Þið ráðið hvort og hvenær samþykkis er krafist. Ef þið viljið setjið þið hámark á hverja aðgerð og á fyrirtækið á sólarhring, og það sem fer yfir mörkin fer sjálfkrafa í samþykkt.
Samþykki í Business Central
Þegar samþykkis er krafist fer það um samþykktarferli Business Central til réttra aðila. Gervigreindin samþykkir aldrei eigin verk.
Fólkið ykkar sendir peninga og skil
Greiðslur fara aldrei í bankann og skil fara aldrei til Skattsins nema manneskja samþykki og sendi.
Varanleg skráning á öllu
Hver aðgerð er skráð í Business Central: hver bað um hana, frá hvaða gervigreind, hvað var forskoðað og hver samþykkti. Færslum í skránni er ekki hægt að breyta eftir á.
Hvert verk bókað einu sinni
Hvert verk ber sitt eigið auðkenni. Ef tenging rofnar og verkið er reynt aftur er það ekki bókað tvisvar.
Ykkar innskráning, ykkar gögn
Gervigreindin vinnur með innskráningu notandans. Tengiþjónninn vistar hvorki lykilorð, aðgangslykla né bókhaldsgögn.
Þið getið stöðvað hvenær sem er
Stöðvið eina aðgerð, einn notanda, einn stafrænan starfsmann eða allt fyrirtækið strax.
Viljið þið sjá Wise AI MCP í ykkar Business Central?
Við förum yfir hvernig Wise AI MCP passar við ykkar lausnir og ferla.
Spurningar og svör
Hvað er stafrænn starfsmaður?
Sjálfvirkt ferli sem vinnur tiltekið verk í Business Central þegar eitthvað gerist eða á föstum tíma, án þess að neinn sé skráður inn. Hann hefur sitt eigið auðkenni, eiganda sem ber ábyrgð á honum og mörk sem hann fer aldrei yfir.
Hvaða heimildir hefur stafrænn starfsmaður?
Hver stafrænn starfsmaður vinnur innan heimilda eiganda síns og aðeins þau verk sem honum eru falin. Í spjalli vinnur gervigreindin alltaf með heimildum innskráðs notanda.
Hvað með greiðslur og skattskil?
Gervigreindin getur undirbúið greiðslur og skattskil. Greiðslur fara aldrei í bankann og skil fara aldrei til Skattsins nema manneskja samþykki og sendi.
Hvernig stjórnum við stafrænu starfsfólki?
Kerfisstjóri velur verkin, sjálfvirknistigið og hvort mörk og samþykki gilda, í Business Central. Hann getur stöðvað einn starfsmann, eina aðgerð eða allt fyrirtækið strax og stöðvunin er skráð.
Hvar eru gögnin geymd?
Í Business Central, eins og áður. Tengiþjónninn sem Wise rekur vistar hvorki bókhaldsgögn né aðgangslykla notenda og skráir ekki innihald fyrirspurna.
Hvað þarf til?
Business Central í skýinu (útgáfa 29 eða nýrri), Wise AI MCP viðbótina og innskráningu með Microsoft-aðgangi. Fyrir verk í Wise lausnum þarf viðkomandi lausn. Business Central á eigin netþjónum er ekki stutt að svo stöddu.
Hvenær er þetta í boði?
Wise AI MCP er í prófun hjá Wise. Við tökum fyrstu viðskiptavini inn í samráði við þá. Bókið samtal ef þið viljið vera með frá byrjun.
Tengjumst
Við skoðum þetta saman