Skip to main content Skip to footer

Gervigreind og stafrænt starfsfólk í Business Central og Wise lausnum

Wise AI MCP

Wise AI MCP

Gervigreindartólið þitt tengist nú við Business Central og Wise lausnir á öruggan hátt

Í gegnum Wise AI MCP er nú mögulegt að tengjast gögnum Business Central og láta gervigreindina vinna úr gögnum, til dæmis útbúa sjóðstreymi og bera saman áætlanir við raun. Þú velur gervigreindartólið, svo sem Claude, Copilot, ChatGPT og Gemini, en Wise AI MCP er brúin yfir í Business Central.

Stafrænt starfsfólk verður að raunveruleika og fer að vinna raunveruleg verk í Business Central og sérkerfum Wise: bóka, senda, afstemma og minna á. Ekkert er bókað án forskoðunar, ekkert fer yfir mörkin sem þið setjið og hvert skref er skráð.

Kostur þess að vera með Wise AI MCP er að hann talar við sérkerfin frá Wise og þekkir ferlana þar. Þannig færðu meira virði út úr kerfunum sem þú notar í dag.

Spyrjið á venjulegu máli og fáið svarið strax

Notandinn skráir sig inn með sínum Microsoft-aðgangi og biður um verkið á venjulegu máli. Gervigreindin vinnur alltaf með heimildum notandans.

„Hvaða viðskiptavinir skulda meira en 90 daga?“

Svar beint úr Business Central, án þess að afrita neitt.

„Útbúðu greiðslutillögu fyrir föstudaginn.“

Tillagan er tilbúin í Wise Banking til yfirferðar og samþykktar.

„Er VSK-skýrslan í samræmi við fjárhaginn?“

Afstemming og listi yfir frávik, áður en skilað er.

Virkar með Claude, Copilot, ChatGPT, Gemini og öðrum biðlurum sem styðja Model Context Protocol (MCP).

Verk, ekki bara svör Í prófun

Gervigreindin stofnar, bókar, sendir og afstemmir. Stafrænt starfsfólk fer af stað þegar eitthvað gerist í Business Central eða á föstum tíma, vinnur verkið innan marka og skráir það.

Bókar útgefna reikninga

Bókar sölureikning um leið og hann er gefinn út, ef upphæðin er innan marka. Annað bíður samþykkis.

Fylgist með gjaldföllnum kröfum

Finnur viðskiptavini sem þarf að minna á og útbýr áminningar á föstum tímum.

Afstemmir safnlykla við undirbækur Í prófun

Ber saman safnlykla og færslur í mánaðarlok og sýnir frávik. Ekkert er leiðrétt án ykkar.

Afstemmir birgðir við safnlykla Væntanlegt

Finnur frávik í birgðavirði og kostnað sem á eftir að bóka. Bókar aldrei sjálfur.

Gerir sjóðstreymisspá í hverri viku Væntanlegt

Reiknar sjóðstreymið næstu vikur úr bókhaldinu og skilar spánni í Business Central.

Hver stafrænn starfsmaður hefur eigið auðkenni og eiganda og getur aldrei gert meira en eigandinn má. Greiðslur og skattskil gerir alltaf manneskja.

Gervigreindin kann á Wise lausnirnar ykkar

Wise AI MCP þekkir ferlana í Wise lausnunum sem þið notið nú þegar og vinnur verkin í þeim eins og þjálfaður notandi.

Wise Banking

  • Útbýr greiðslutillögur og sannreynir viðtakendur
  • Sækir bankayfirlit og sýnir stöðu afstemminga
  • Finnur greiðslur sem stranda

Manneskja sendir alltaf greiðslur í bankann.

Wise VSK

  • Undirbýr virðisaukaskattsskýrslu
  • Afstemmir hana við fjárhag og finnur frávik
  • Ber skýrsluna saman við gögn Skattsins

Manneskja skilar alltaf til Skattsins.

Þetta eru dæmi. Fyrir hverja viðbót þarf viðkomandi Wise lausn að vera uppsett.

Svona virkar Wise AI MCP

Gervigreindarspjall Claude, ChatGPT, Copilot, Gemini
Wise AI MCP
Business Central

Öryggi og yfirsýn í hverju verki

Gervigreind sem vinnur í bókhaldinu þarf skýrar reglur. Þær eru innbyggðar í Wise AI MCP og gilda um hvert einasta verk, sama hvaða gervigreind biður um það.

  • Forskoðun fyrir hverja bókun

    Áður en nokkuð er bókað sést nákvæmlega hvaða færslur verða til. Bókunin verður að passa við forskoðunina, annars er henni hafnað.

  • Upphæðarmörk

    Þið setjið hámark á hverja aðgerð og á fyrirtækið á sólarhring. Það sem fer yfir mörkin fer sjálfkrafa í samþykkt.

  • Samþykki í Business Central

    Samþykki fara um samþykktarferli Business Central til réttra aðila. Gervigreindin samþykkir aldrei eigin verk.

  • Fólkið ykkar sendir peninga og skil

    Greiðslur fara aldrei í bankann og skil fara aldrei til Skattsins nema manneskja samþykki og sendi.

  • Varanleg skráning á öllu

    Hver aðgerð er skráð í Business Central: hver bað um hana, frá hvaða gervigreind, hvað var forskoðað og hver samþykkti. Færslum í skránni er ekki hægt að breyta eftir á.

  • Hvert verk bókað einu sinni

    Hvert verk ber sitt eigið auðkenni. Ef tenging rofnar og verkið er reynt aftur er það ekki bókað tvisvar.

  • Ykkar innskráning, ykkar gögn

    Gervigreindin vinnur með innskráningu notandans. Tengiþjónninn vistar hvorki lykilorð, aðgangslykla né bókhaldsgögn.

  • Þið getið stöðvað hvenær sem er

    Stöðvið eina aðgerð, einn notanda, einn stafrænan starfsmann eða allt fyrirtækið strax.

Viljið þið sjá Wise AI MCP í ykkar Business Central?

Við förum yfir hvernig Wise AI MCP passar við ykkar lausnir og ferla.

Spurningar og svör

Hvað er stafrænn starfsmaður?

Sjálfvirkt ferli sem vinnur tiltekið verk í Business Central þegar eitthvað gerist eða á föstum tíma, án þess að neinn sé skráður inn. Hann hefur sitt eigið auðkenni, eiganda sem ber ábyrgð á honum og mörk sem hann fer aldrei yfir.

Hvaða heimildir hefur stafrænn starfsmaður?

Hver stafrænn starfsmaður vinnur innan heimilda eiganda síns og aðeins þau verk sem honum eru falin. Í spjalli vinnur gervigreindin alltaf með heimildum innskráðs notanda.

Hvað með greiðslur og skattskil?

Gervigreindin getur undirbúið greiðslur og skattskil. Greiðslur fara aldrei í bankann og skil fara aldrei til Skattsins nema manneskja samþykki og sendi.

Hvernig stjórnum við stafrænu starfsfólki?

Kerfisstjóri velur verkin, sjálfvirknistigið og mörkin í Business Central. Hann getur stöðvað einn starfsmann, eina aðgerð eða allt fyrirtækið strax og stöðvunin er skráð.

Hvar eru gögnin geymd?

Í Business Central, eins og áður. Tengiþjónninn sem Wise rekur vistar hvorki bókhaldsgögn né aðgangslykla notenda og skráir ekki innihald fyrirspurna.

Hvað þarf til?

Business Central í skýinu (útgáfa 29 eða nýrri), Wise AI MCP viðbótina og innskráningu með Microsoft-aðgangi. Fyrir verk í Wise lausnum þarf viðkomandi lausn. Business Central á eigin netþjónum er ekki stutt að svo stöddu.

Hvenær er þetta í boði?

Wise AI MCP er í prófun hjá Wise. Við tökum fyrstu viðskiptavini inn í samráði við þá. Bókið samtal ef þið viljið vera með frá byrjun.

Tengjumst

Við skoðum þetta saman

Ertu með fyrirspurn eða ábendingu til okkar?
Endilega sendu okkur línu og við leysum málið.