Microsoft Copilot
Copilot er þinn gervigreindar aðstoðarmaður
Microsoft Copilot er gervigreindartól frá Microsoft sem er hannað til að létta undir með starfsfólki með ýmis dagleg verkefni.
Copilot vinnur úr upplýsingum sem má finna í vinnuumhverfi notenda og aðstoðar við að taka saman upplýsingar og flýta fyrir gagnaöflun. Copilot getur til að mynda búið til myndefni, aðstoðað við textaskrif, búið til kynningarefni byggt á skjölum sem til eru, tekið saman samskiptasögu og margt fleira sem léttir undir starfsfólki svo um munar.

Ávinningur
Dæmi um dagleg verkefni sem Copilot getur aðstoðað með
Skýrslugerð
Gerir samantekt og skrifar skýrslur úr gögnum í Excel, aðstoðar með formúlur o.fl.
Kynningarefni
Býr til fullbúnar glærukynningar í PowerPoint sem jafnvel byggja á skjali sem er þegar til.
Textagerð
Skrifar nýjan tölvupóst eða texta. Býr einnig til samantekt á tölvupóstum og samskiptum.
Sjálfvirk ferli
Útbýr sjálfvirk ferli í Power Automate, aðeins byggt á textalýsingu notanda og því ekki þörf á forritunarkunnáttu.

Microsoft 365 Copilot
Vinnur með þeim tólum sem starfsfólkið er vant að nota
🤖 Horfðu á fræðandi veffund um Microsoft 365 Copilot!
Þú færð að sjá raunveruleg dæmi úr Word, Excel, Outlook og Teams – og hvernig fyrirtæki geta byrjað að nýta Copilot strax í dag 🚀
Copilot
Snjall vinur í vinnunni
Fjármál
Dynamics 365 Business Central
Microsoft Copilot auðveldar starfsfólki dagleg störf í Business Centra viðskipta- og bókahaldskerfinu, t.d. við skýrslugerð, gagnagreiningu, skrifa vörulýsingar, spyrja um vörustöðu á lager og margt fleira.
Sala
Dynamics 365 Sales
Þú nærð meiri árangri í sölunni með Copilot og Dynamics 365 Sales. Copilot leggur t.d. til drög að tölvupóstum sem byggja á upplýsingum úr CRM og fyrri samskiptum, býr til fundargerðir og skýrslur yfir sölutækifæri, svo fátt eitt sé nefnt.
Þjónusta
Dynamics 365 Customer Service
Aukin framlegð starfsfólks og betri upplifun viðskiptavina með Copilot og Customer Service. Copilot getur t.d. hjálpað til við að flýta afgreiðslu beiðna og sjálfvirknivæða endurtekin verk.
M365
Microsoft 365
Sparar starfsfólki tíma og aðstoðar teymin við að einbeita sér að því sem skapar mest virði. Copilot er til staðar inn í þeim tólum sem starfsfólkið notar dags daglega, líkt og Teams, Word, Outlook, PowerPoint og Excel. Aðstoðar við að skrifa drög að texta, gera samantektir, búa til kynningar, skýrslur og margt fleira.
Blogg
Innleiðing Microsoft 365 Copilot – Nýtt tímabil í stafrænu samstarfi
Innleiðing Copilot er ekki bara tæknilegt skref, það er menningarlegt skref inn í framtíð vinnunnar. Með réttri stefnu og fræðslu getur fyrirtækið þitt nýtt sér kraftinn í gervigreind til að bæta þjónustu, auka skilvirkni og styrkja samkeppnishæfni.

Ertu klár í að innleiða gervigreind?
Eða hefur þú fleiri spurningar?
Fyrsta skrefið er að meta hvort umhverfið sé tilbúið fyrir Copilot. Wise sérhæfir sig í ráðgjöf og innleiðingu á Copilot, heyrðu endilega í okkur.

Tengjumst
Við skoðum þetta saman