Víðtækar truflanir í Microsoft 365 – unnið að lausn
Víðtækar truflanir hafa verið í þjónustu Microsoft 365 frá 12. nóvember og hafa þær áhrif á notendur um allan heim. Truflanirnar hafa einkum komið niður á Outlook og Exchange Online, en einnig hefur orðið vart við truflanir í annarri þjónustu Microsoft, meðal annars Teams og Copilot.
Samkvæmt Microsoft má rekja truflanirnar til þess að fjöldi netþjóna datt óvænt út, sem jók álag á aðra netþjóna. Microsoft vinnur að því að koma þjónustunni í eðlilegt horf, en ekki liggur fyrir hvenær viðgerð verður að fullu lokið.
Viðskiptavinir þurfa ekki að grípa til sérstakra aðgerða. Wise fylgist náið með framvindu mála og mun upplýsa viðskiptavini eftir því sem frekari upplýsingar berast.
Verum á varðbergi gagnvart svikum
Í aðstæðum sem þessum nýta óprúttnir aðilar sér oft ástandið í phishing-árásum og öðrum svikum. Við hvetjum alla til að fara varlega:
- Svarið ekki símtölum frá aðilum sem segjast vera frá Microsoft og biðja um innskráningarupplýsingar til að „endurheimta aðgang“. Þetta eru svik.
- Gefið aldrei upp lykilorð eða staðfestingarkóða (MFA) í síma, tölvupósti eða skilaboðum.
- Smellið ekki á tengla eða viðhengi í óvæntum tölvupóstum eða SMS sem tengjast truflunum, endurstillingu lykilorða eða „vandamálum með aðgang“.
- Ef þið eruð í vafa, hafið samband við þjónustuborð Wise áður en þið bregðist við.
- Tilkynnið grunsamleg skilaboð eða símtöl til þjónustuborðs Wise.
Hafið samband við þjónustuborð Wise í síma 545 3200 ef spurningar vakna.
Við hvetjum viðskiptavini til að fylgjast með stöðu mála á status síðu Wise, þar sem upplýsingar eru uppfærðar jafnóðum og nýjar upplýsingar berast:
Tengjumst
Við skoðum þetta saman