Skip to main content Skip to footer

Jafnvægisvogin

Jöfn tækifæri gera okkur betri

Wise hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Við erum stolt af þessum áfanga og fögnum honum saman.

Við viljum að öll sem starfa hjá Wise hafi jöfn tækifæri til að þróast í starfi, axla ábyrgð og hafa áhrif. Ólík reynsla og sjónarmið í stjórnendateymi hjálpa okkur að taka betri ákvarðanir og byggja upp góðan vinnustað.

Við þökkum Jafnvægisvoginni fyrir viðurkenninguna og starfsfólki okkar fyrir framlag þess til þess að gera Wise að góðum vinnustað. Við höldum ótrauð áfram að vinna að jöfnum tækifærum í daglegu starfi.

#Losumumhnútinn

Tengjumst

Við skoðum þetta saman

Ertu með fyrirspurn eða ábendingu til okkar?
Endilega sendu okkur línu og við leysum málið.