Skip to main content Skip to footer

Veffundur 26. nóvember: Wise og Defend Iceland

Veffundinum hefur verið frestað til 26. nóvember

Fundurinn átti upphaflega að vera 21. október. Dagskráin lengist í 45–60 mínútur og nýtt erindi frá Theódóri Ragnari Gíslasyni, framkvæmdastjóra og stofnanda Defend Iceland, bætist við. Bæði upphaflegu erindin haldast óbreytt.

Viðburður á Teams

Hvar liggja mörkin?

Hvenær dugar vöktun ekki lengur og hvenær þarf að grípa til raunverulegra varna? Og hvaða áhættu er fyrirtækið tilbúið að taka? Á veffundi Wise og Defend Iceland skoðum við hvar mörkin liggja milli þess að fylgjast með áhættu, verjast henni og ákveða að lifa með henni.

Skrá mig
Fimmtudagur 26. nóvember kl. 13:00
Staðsetning
Teams
Lengd
45–60 mínútur
Fyrirlesarar
Hjörtur Pálmi Pálsson, Defend Iceland Áki Hermann Barkarson, Wise Theódór Ragnar Gíslason, Defend Iceland

Á dagskrá

Vöktun er ekki það sama og vörn

Hjörtur Pálmi Pálsson, netöryggis- og samfélagsstjóri Defend Iceland

Mörg fyrirtæki gera samning um SOC-þjónustu og telja sig þar með vera varin. Á sama tíma fer stór hluti kjarnastarfsemi þeirra fram í vefkerfum og SaaS-þjónustum sem eru opin öllum á internetinu. Flesta veikleika sem tilkynntir eru til Defend Iceland, einnig þá alvarlegustu, er hægt að misnota án þess að vöktun gefi viðvörun.

Í erindinu er farið yfir hvers er raunhæft að vænta af SOC-þjónustu, hvaða áhætta stendur eftir og hvernig hægt er að finna hana áður en árásaraðilar gera það.

Hvar liggur jafnvægið? Fjárfestingar og áhætta í upplýsingatækni

Áki Hermann Barkarson, framkvæmdastjóri Rekstrarlausna hjá Wise

Áki Hermann deilir reynslu sinni af því hvernig stjórnendur geta fundið jafnvægið milli fjárfestinga og áhættu í upplýsingatækni. Hann tekur fyrir spurningar sem margir stjórnendur þekkja: Er ég að fjárfesta í réttu hlutunum? Hvenær breytist eðlileg aðhaldskrafa í upplýsingatækni í rekstraráhættu sem ekki er ásættanleg?

Markmiðið er ekki að eyða sem mestu í tækni heldur að átta sig á því hvar mörkin liggja og hverju fyrirtæki mega ekki fórna.

Nýtt erindi

Heiti erindis kynnt síðar

Theódór Ragnar Gíslason, framkvæmdastjóri og stofnandi Defend Iceland

Nánari upplýsingar um erindið verða kynntar þegar nær dregur.

Tryggðu þér pláss á Teams fundinum

Fimmtudagur 26. nóvember kl. 13:00

Skráðu þig á Teams fundinn

Tengjumst

Við skoðum þetta saman

Ertu með fyrirspurn eða ábendingu til okkar?
Endilega sendu okkur línu og við leysum málið.