Námskeiðsröð: fjárhagsáætlanagerð
Sveitarfélagateymi Wise býður til ókeypis námskeiðsraðar um áætlanagerð í Sveitarfélagalausn Wise. Fundirnir fara fram á Teams og eru ætlaðir þeim sem koma að áætlanagerð sveitarfélaga í kerfinu.
- 📅 Þriðjudagar 1. september – 10. nóvember
- 🕚 Fundirnir hefjast kl. 11:00
- 📍 Microsoft Teams
- 💬 Þátttaka er öllum að kostnaðarlausu
Um námskeiðsröðina
Á fundunum förum við yfir ferlið við áætlanagerð, kynnum nýjungar og gagnlega virkni, auk þess að deila ráðum og bestu starfsvenjum sem geta auðveldað vinnuna.
Markmið námskeiðsraðarinnar er að auka þekkingu notenda á áætlanakerfinu og veita hagnýtan stuðning við gerð fjárhagsáætlana. Þátttakendur fá tækifæri til að fylgja ferlinu skref fyrir skref og nýta kerfið betur í sinni daglegu vinnu.
Dagskrá
Tíu fundir, hver um sig sjálfstæður.
1. sept.1.Undirbúa viðaukaáætlun fyrir áætlanagerð
8. sept.2.Rammaáætlanagerð
15. sept.3.Vinnubækur, vefur
22. sept.4.Millifærslur og áætlanafærslubækur
29. sept.5.Framkvæmdaáætlun og sala eigna
6. okt.6.Skuldir og afborganir
13. okt.7.Skuldbindingar og samningar
20. okt.8.Efnahagur og sjóðsstreymi
3. nóv.9.Þriggja ára áætlun
10. nóv.10.Heildarskil áætlunar
Fyrir hverja?
Námskeiðsröðin er ætluð öllum sem koma að áætlanagerð sveitarfélaga í Sveitarfélagalausn Wise — fjármálastjórum, bókurum, sviðsstjórum og sérfræðingum sem vinna í áætlanakerfinu.
Hvernig fer þátttaka fram?
- Þeir sem skrá sig fá fundarboð í dagatalið fyrir alla fundi í námskeiðsröðinni.
- Fundirnir eru valkvæðir og þátttakendur velja sjálfir hvaða fundi þeir sækja.
- Ein skráning nægir fyrir alla röðina — ekki þarf að skrá sig á hvern fund.
Skráðu þig í skráningarforminu á þessari síðu og fundarboðin fyrir alla tíu fundina koma í dagatalið þitt.
Hlökkum til að sjá sem flesta!
Tengjumst
Við skoðum þetta saman