Skip to main content Skip to footer

Wise valið samstarfsaðili ársins hjá Companial

Árangur Wise við innleiðingu skýjalausna hefur vakið eftirtekt erlendis en fyrirtækið var nýverið valið samstarfsaðili ársins 2026 hjá Companial (e. Companial Partner of the Year).

Viðurkenningin er veitt fyrir framúrskarandi árangur við stafræna umbreytingu og hraða innleiðingu skýjalausna sem og fyrir öflugt samstarf Wise og Companial um Microsoft Dynamics 365 Business Central. Verðlaunin voru afhent á stórri ráðstefnu sem haldin var í höfuðstöðvum Microsoft í Danmörku.

„Við lítum á þessa viðurkenningu sem staðfestingu á því að nálgun okkar sé að skila raunverulegum árangri og sem hvatningu til að halda ótrauð áfram,“

segir Jóhannes Helgi Guðjónsson, forstjóri Wise lausna. 

Viðskiptavinir sækja hraðar í tækniframfarir

„Uppfærslur geta verið flóknar og tímafrekar og fyrir nokkrum árum gerðum við okkur grein fyrir því að við þyrftum að færa stóran hluta viðskiptavina okkar af eldri NAV-lausnum yfir í Microsoft Dynamics 365 Business Central,“ segir Jóhannes Helgi. Miðað við hefðbundið verklag og fjölda starfsmanna hjá fyrirtækinu hefði sú vinna tekið mörg ár.

„Verkefnið kallaði því á nýja nálgun með aukinni stöðlun, skýrari ferlum og mun meiri skalanleika en hefðbundin innleiðingarverkefni gera ráð fyrir. Með þeirri nálgun og öflugu samstarfi við Companial og Microsoft tókst okkur að stytta innleiðingartímann um meira en helming.“

Jóhannes segir flutning í skýið skila viðskiptavinum miklum ávinningi, meðal annars í einfaldari og öruggari rekstri. Einnig auðveldi hann fyrirtækjum að nýta gervigreind í kerfum Microsoft til að auka sjálfvirkni og ná fram  verulegum vinnusparnaði: „Þegar fyrirtæki eru komin yfir í skýið getum við einbeitt okkur enn betur að því að veita þeim góða þjónustu og hjálpa þeim okkar að ná árangri.“

Skilvirkara og skalanlegra verklag

Í rökstuðningi Companial kemur fram að Wise hafi sýnt hvernig breyta megi hefðbundinni nálgun við kerfisflutninga í skilvirkara og skalanlegra verklag.

„Á síðasta ári hefur félagið ekki aðeins hraðað eigin umbreytingarferlum heldur einnig tekið upp opnara og markvissara samstarf við okkur,“ segir Kim Enrum, framkvæmdastjóri Companial á Norðurlöndum. „Niðurstaðan er samstarf sem byggir á trausti, gagnsæi og sameiginlegri áherslu á raunverulegt virði fyrir viðskiptavini. Það er einmitt það sem þessi viðurkenning stendur fyrir.“

 

Tengjumst

Við skoðum þetta saman

Ertu með fyrirspurn eða ábendingu til okkar?
Endilega sendu okkur línu og við leysum málið.