3. sept: Gervigreind á víglínunni - nýjar áskoranir, nýjar lausnir
Þann 3. september bjóða Defend Iceland og Wise í Happy Hour þar sem við beinum sjónum að því hvernig gervigreind er að umbreyta öryggislandslaginu.
Hvernig er gervigreind notuð í nútíma átökum? Hvernig breytir hún netógnum og vörnum? Og hvað þýðir þessi þróun fyrir fyrirtæki, stofnanir og samfélagið allt?
Á dagskránni verða erindi frá sérfræðingum sem veita innsýn í ólíkar hliðar öryggismála, þar á meðal erlendir gestir frá NATO CCDCOE og Úkraínu sem vinna daglega með þeim áskorunum sem eru að móta framtíð öryggismála.
Húsið opnar kl. 16:00 en dagskrá hefst kl. 16:15
- Dagskrá:
- Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir, Fundarstjóri opnar viðburðinn
- Benedikt Rúnarsson, Öryggisstjóri Wise: Af hverju Wise og Defend Iceland?
- Erik Kursetgjerde, Fulltrúi Noregs hjá NATO Cooperative Cyber Defence Centre of Excellence: Building Partnerships in Times of Crisis: Lessons from Ukraine
- Natalia Mishyna, Sérfræðingur hjá Miðstöð nýsköpunar og þróunar á varnartækni, Varnamálaráðuneyti Úkraínu: How AI is Transforming Warfare & Shapes Future Battlefield
- Steinar Jónas Kristjánsson, Framkvæmdastjóri Upplýsingatæknisviðs Samkaupa: Öryggisáskoranir í Retail heiminum
- Hjörtur Pálmi Pálsson, Netöryggis- og samfélagsstjóri Defend Iceland: Hvernig ég hakkaði stærsta tryggingarfyrirtæki heims með gervigreind
Boðið verður upp á fordrykk svo verða sérstök tilboð á barnum.
Viðburðurinn er opinn öllum en skráning er nauðsynleg.
Tengjumst
Við skoðum þetta saman