Nýjungar í Business Central 2026 Wave 1 (BC28)
Microsoft Dynamics 365 Business Central 2026 Wave 1, einnig þekkt sem BC28, er nýjasta útgáfa kerfisins og verður aðgengileg frá lok apríl 2026. Þetta er umfangsmikil útgáfa þar sem lögð er rík áhersla á gervigreind, sjálfvirkni og betri yfirsýn í daglegum rekstri.
Í þessari útgáfu taka Copilot og AI agents virkari þátt í lykilferlum fyrirtækja, meðal annars í bókhaldi, skjalavinnslu og verkflæði. Markmiðið er að einfalda vinnu notenda, draga úr handavinnu og styðja við betri ákvarðanatöku beint í Business Central.
Fjármálahlutinn styrkist enn frekar með bættum skýrslu- og greiningarmöguleikum, á sama tíma og samþættingar við Power BI, Shopify og Microsoft 365 verða dýpri og markvissari.
Þannig tengjast gögn og vinnuferlar enn betur milli kerfa.
Einnig bætist við innbyggt gæðastjórnunarkerfi, sem gerir fyrirtækjum kleift að framkvæma gæðaprófanir beint í innkaupa-, framleiðslu- og lagerferlum – án þess að þurfa sérstakar viðbótarlausnir.
Að auki má nefna notendavænni virkni í birgðahaldi og framleiðslu, ásamt betrumbættum verkfærum fyrir stjórnun á umhverfi, notendum og gögnum, sem einfaldar rekstur og eykur yfirsýn fyrir kerfisstjóra.
Veffundur um helstu nýjungar
BC ráðgjafar Wise, Hrefna Þórisdóttir og Brynjar Jóhannesson, fara yfir helstu breytingar í Business Central 2026 Wave 1 á stuttum veffundi miðvikudaginn 7. maí kl. 11:00.
Tengjumst
Við skoðum þetta saman