Frá stefnu til árangurs:
Heildstæð innleiðing á gervigreind
Skilvirk og árangursrík innleiðing á gervigreind
Gervigreind getur umbreytt starfsemi fyrirtækja, aukið framleiðni, bætt þjónustu og skapað ný tækifæri. Án skýrrar stefnu og markvissrar innleiðingar er þó hætt við að gervigreindin verði aðeins enn eitt verkefnið án raunverulegs ávinnings.
Hjá Wise lausnum höfum við þróað ráðgjafapakka sem gera fyrirtækjum kleift að innleiða gervigreind með skilvirkum hætti strax í upphafi. Markmiðið með ráðgjöfinni er að hjálpa fyrirtækjum að nýta gervigreind á ábyrgan, öruggan og hagnýtan hátt — með áherslu á verklag, fólk og raunverulegan ávinning.
Af hverju mistakast gervigreindarverkefni?
Mörg gervigreindarverkefni mistakast ekki vegna þess að tæknin virkar ekki, heldur vegna þess að forsendur, ábyrgð og verklag eru óskýr. Ein meginástæða þessa er sú að fyrirtæki eftirláta gjarnan starfsfólki að prófa sig áfram í stað þess að fara í markvissa innleiðingu og leita sér faglegrar ráðgjafar. Þetta er bæði óskilvirk og kostnaðarsöm nálgun.
Algeng mistök sem hægt er að forðast
Með góðri ráðgjöf og greiningu á núverandi stöðu má forðast eftirfarandi gildrur:
- Óskýr markmið og vanmat á þjálfunarþörf — Innleiðing hefst á vali á verkfærum eða kaupum á leyfum áður en skilgreint hefur verið hvar raunverulegt virði á að skapast.
- Skortur á reglum um notkun — Starfsfólk er byrjað að nota gervigreindarlausnir án formlegrar stefnu eða leiðbeininga, sem getur skapað óvissu um meðferð fyrirtækjagagna.
- Ófullnægjandi gögn og öryggisrammi — Ekki liggur skýrt fyrir hvaða upplýsingar má nota í hvaða lausnum eða hver ber ábyrgð á ákvarðanatöku og eftirliti.
Gull, silfur og brons í gervigreind
Ráðgjafapakkar Wise styðja stjórnendur í að gera hlutina rétt frá byrjun. Hægt er að velja um þrjá pakka — Brons, Silfur og Gull — og eru þeir allir á föstu verði.
🥉 Brons
Bronspakkinn er kjörinn grunnur fyrir fyrirtæki sem vilja fá yfirsýn yfir núverandi stöðu og skýran ramma til að vinna út frá við innleiðingu gervigreindarlausna.
Grunnur fyrir innleiðingu gervigreindarlausna:
- Vinnustofa með stjórnendum og lykilstarfsfólki
- Mótun gervigreindarstefnu
- Greining mögulegra tækifæra
- Notkunarleiðbeiningar fyrir helstu gervigreindarverkfæri sem fyrirtækið sér fyrir sér að leyfa og nota
🥈 Silfur
Silfurpakkinn byggir á sama grunni og Bronspakkinn en bætir við frekari undirbúningi og skipulagningu fyrir markvissa innleiðingu.
- Allt sem fylgir Bronspakkanum
- Innleiðingaráætlun sem skilgreinir hvað þarf að gerast og hver ber ábyrgð
- Fleiri notkunarleiðbeiningar sem taka til ólíkra verkefna
🥇 Gull
Gullpakkinn hentar fyrirtækjum sem vilja taka innleiðingu gervigreindar föstum tökum, með skýrum mælikvörðum og þjálfun starfsfólks.
- Allt sem fylgir Brons- og Silfurpökkunum
- Skilgreining mælikvarða
- Markviss þjálfunarlota
Hvað færðu með Wise?
Með Wise færðu ráðgjöf frá Microsoft-sérfræðingum sem sameina stefnu, öryggi, verkfæri og mannlega þáttinn í einni heildstæðri nálgun.
Ráðgjafapakkarnir mynda traustan grunn fyrir fyrstu skref fyrirtækja í innleiðingu gervigreindar. Þeir hjálpa til við að:
- forgangsraða verkefnum
- greina tækifæri
- skapa sameiginlegan skilning
- leggja grunn að markvissri áframhaldandi vinnu
Um höfundinn
Gunnar Örn Haraldsson er forstöðumaður Stafrænna lausna hjá Wise og leiðir gervigreindarmál fyrirtækisins. Þar ber hann ábyrgð á stefnumótun, forgangsröðun verkefna og ábyrga innleiðingu gervigreindar með skýra áherslu á öryggi, reglufylgni og raunverulegt virði.
Gunnar hefur víðtækan tæknigrunn í Microsoft-vistkerfinu og sérhæfir sig í innleiðingu AI lausna, með áherslu á verklag, stjórnarhætti (governance) og örugga notkun gagna.
Tengjumst
Við skoðum þetta saman