Skip to main content Skip to footer

Spennandi gervigreindarnámskeið í nóvember!

Námskeið 16.–18. nóvember

Fjögur hagnýt námskeið um gervigreind í daglegri vinnu: Claude, Copilot og ChatGPT. Hvort sem þú ert að stíga fyrstu skrefin eða vilt byggja ofan á þekkinguna finnur þú námskeið við hæfi.

  • Wise, Ofanleiti 2, Reykjavík
  • 49.900 kr. án VSK á hvert námskeið
  1. Mán 16. nóv 9:00–12:00 Copilot Agents
  2. Mán 16. nóv 13:00–16:00 Claude í vinnunni – stig 1
  3. Þri 17. nóv 9:00–12:00 Claude í vinnunni – stig 2
  4. Mið 18. nóv 13:00–16:00 ChatGPT í vinnunni

Copilot Agents

Mánudagur 16. nóvember · kl. 9:00–12:00 · 3 klst.

Kynnstu Copilot Studio og smíðaðu þinn eigin agent. Agentinn svarar út frá gögnum fyrirtækisins og leiðir notandann í gegnum stýrð samtöl. Þú sérð líka hvernig hann getur framkvæmt raunverulega aðgerð með Power Automate. Engin forritun er nauðsynleg.

Þú lærir að

  • smíða agent með skýrum fyrirmælum (instructions)
  • láta agentinn svara úr réttum heimildum (Knowledge)
  • búa til stýrð samtöl (Topics) sem safna upplýsingum
  • tengja Power Automate-flæði sem framkvæmir aðgerð
  • prófa agentinn og gæta öryggis
Fyrir hverja
Byrjendur og lengra komna. Almenn tölvukunnátta nægir, en reynsla af Microsoft 365 hjálpar.
Undirbúningur
Æskilegt er að þátttakandi sé með fartölvu ásamt aðgangi að Copilot Studio og Power Automate með réttu Microsoft 365-leyfi og heimild til að búa til agenta og flæði til að fá sem mest út úr námskeiðinu. Ekki gefst tími í upphafi námskeiðs til að aðstoða nemendur með ofangreind aðgangsmál.

Claude í vinnunni – stig 1

Mánudagur 16. nóvember · kl. 13:00–16:00 · 3 klst.

Lærðu að nota Claude í daglegum verkefnum: að skrifa og svara pósti, draga saman löng skjöl, vinna úr Excel-gögnum og búa til Word-skjöl og glærur. Námskeiðið er verklegt. Kennarinn sýnir hvert atriði og þú prófar það strax á raunhæfum dæmum úr skrifstofustarfi.

Þú lærir að

  • skrifa fyrirmæli sem gefa gott svar í fyrstu tilraun
  • láta Claude lesa, draga saman og greina skjöl og Excel-gögn
  • búa til skjöl, glærur og gátlista sem nýtast strax
  • nota Projects svo Claude muni samhengi verkefnisins á milli samtala
  • meta hvenær má treysta svarinu og hvenær þarf að staðfesta það
Fyrir hverja
Alla sem vinna á skrifstofu og hafa notað Claude lítið eða ekkert. Engin tækniþekking er nauðsynleg.
Undirbúningur
Æskilegt er að þátttakandi sé með fartölvu ásamt aðgangi að Claude (Pro, Team eða Enterprise) til að fá sem mest út úr námskeiðinu. Ekki gefst tími í upphafi námskeiðs til að aðstoða nemendur með ofangreind aðgangsmál.

Claude í vinnunni – stig 2

Þriðjudagur 17. nóvember · kl. 9:00–12:00 · 3 klst.

Á framhaldsnámskeiðinu ferðu frá því að spjalla við Claude yfir í að láta það vinna fyrir þig. Þú byggir verklag sem Claude fylgir í hvert sinn, tengir það við Outlook og SharePoint og lætur það vinna sjálfstætt á möppum, til dæmis taka til í skjölum eða setja saman skýrslu úr mörgum skrám. Þú ferð heim með þitt eigið Project og Skill, byggð utan um verkefni úr þinni vinnu.

Þú lærir að

  • skrifa fyrirmæli fyrir flókin verkefni í mörgum skrefum
  • byggja Projects og Skills svo Claude vinni eins í hvert sinn
  • tengja Claude við póst, dagatal og skjöl í Microsoft 365
  • láta Claude vinna sjálfstætt í Cowork, með þínu samþykki áður en eitthvað er fært, sent eða eytt
  • veita aðgang á öruggan hátt og þekkja faldar skipanir í skjölum og pósti
Fyrir hverja
Þau sem nota Claude reglulega eða hafa lokið námskeiðinu Claude í vinnunni – stig 1.
Undirbúningur
Æskilegt er að þátttakandi sé með fartölvu ásamt aðgangi að Claude og Claude Desktop uppsettu fyrir námskeiðið til að fá sem mest út úr því. Ekki gefst tími í upphafi námskeiðs til að aðstoða nemendur með ofangreind aðgangsmál.

ChatGPT í vinnunni

Miðvikudagur 18. nóvember · kl. 13:00–16:00 · 3 klst.

Lærðu að nota ChatGPT við verkefni úr daglegri vinnu, til dæmis að semja tölvupóst eða taka saman helstu atriði úr löngu skjali. Þú æfir þig í að gefa fyrirmæli sem skila gagnlegri svörum og athuga upplýsingarnar áður en þú notar þær. Við förum líka yfir nýjustu möguleikana og þú vinnur að eigin verkefni sem þú getur haldið áfram með eftir námskeiðið.

Þú lærir að

  • skrifa skýr fyrirmæli og laga svörin að því sem þú þarft
  • semja tölvupósta og endurvinna texta
  • vinna úr skjölum og töflum, til dæmis draga fram lykilatriði eða bera saman tölur
  • leita að upplýsingum með heimildum og kanna hvort svörin standist
  • nota Projects og persónuleg fyrirmæli fyrir verkefni sem þú vinnur reglulega
  • velja hvaða upplýsingar þú deilir og gæta trúnaðar í vinnunni
Fyrir hverja
Byrjendur og þau sem hafa prófað ChatGPT en vilja nýta það betur í vinnunni.
Undirbúningur
Æskilegt er að þátttakandi sé með fartölvu ásamt aðgangi að ChatGPT til að fá sem mest út úr námskeiðinu. Ekki gefst tími í upphafi námskeiðs til að aðstoða nemendur með ofangreind aðgangsmál.

Skráning á námskeið

Án bandstriks
Nafn fyrirtækis/greiðanda
Án bandstriks
Hér hakar þú við hvaða námskeið þú vilt skrá þig á.
Ertu með Microsoft 365 Copilot leyfi í dag? *
Ertu með Claude leyfi í dag? *

Tengjumst

Við skoðum þetta saman

Ertu með fyrirspurn eða ábendingu til okkar?
Endilega sendu okkur línu og við leysum málið.