Skip to main content Skip to footer

Almennir þjónustuskilmálar Wise lausnir ehf.

Útgefið: 21.10.2026

Efnisyfirlit

1 Inngangur og gildissvið

1.1 Aðilar og gildissvið

Þessir almennu þjónustuskilmálar („Þjónustuskilmálar“) gilda um öll viðskipti og þjónustu milli Wise lausna ehf., kt. 630407-0870, Ofanleiti 2, 103 Reykjavík („Wise“), og viðskiptavinar sem er lögaðili („Viðskiptavinur“). Skilmálarnir eru aðgengilegir á heimasíðu Wise og er vísað til þeirra í grunnsamningi, þjónustusamningum og öðrum samningsskjölum aðila. Viðskiptavinur undirritar þá ekki sérstaklega.

Þjónustuskilmálarnir gilda meðal annars um eftirfarandi þjónustusvið, eftir því sem við á hverju sinni:

  • Upplýsingatækniþjónustu og kerfisrekstur (MSP)
  • Hugbúnað sem þjónustu (SaaS) og skýjaþjónustu
  • Ráðgjafaþjónustu og verkefnavinnu
  • Hugbúnaðarleyfi og hugbúnaðarþróun
  • Vélbúnaðarsölu
  • Öryggisþjónustu
  • Fræðslu og þjálfun

Skilmálarnir gilda ekki um viðskipti við neytendur. Viðskiptavinur staðfestir að hann eigi viðskipti við Wise í atvinnuskyni.

1.2 Skjöl sem mynda samningssambandið og forgangsröð

Samningssamband aðila samanstendur af eftirfarandi skjölum. Komi upp ósamræmi milli skjala ganga þau framar hvert öðru í eftirfarandi röð, þar sem hið fyrsta gengur framar:

  1. Þjónustusamningur, verkefniságrip eða pöntunarstaðfesting fyrir tiltekna þjónustu, ásamt viðaukum („Þjónustusamningur“ / „Ágrip“).
  2. Grunnsamningur milli aðila („Grunnsamningur“).
  3. Þessir Þjónustuskilmálar, eins og þeir eru á hverjum tíma.

Sé ósamræmi milli tveggja þjónustusamninga um sama efni gildir sá sem síðar var undirritaður. Um vinnslu persónuupplýsinga gildir sérstakur vinnslusamningur (DPA) samhliða framangreindum skjölum, sbr. 7. gr.

1.3 Samþykki skilmála

Viðskiptavinur telst hafa samþykkt þessa Þjónustuskilmála með einhverju af eftirfarandi:

  1. undirritun grunnsamnings, þjónustusamnings eða Ágrips,
  2. rafrænni samþykkt, t.d. í tölvupósti eða gegnum vefviðmót,
  3. samþykki tilboðs eða reiknings þar sem vísað er til þessara Þjónustuskilmála, eða
  4. greiðslu reiknings þar sem vísað er til þessara Þjónustuskilmála.

Wise varðveitir gögn um samþykki Viðskiptavinar á Þjónustuskilmálunum.

1.4 Breytingar á skilmálum

Wise er heimilt að breyta þessum Þjónustuskilmálum með að minnsta kosti 30 daga fyrirvara.

Breytingar sem ekki fela í sér verulega eða íþyngjandi skerðingu á réttindum Viðskiptavinar eru birtar á heimasíðu Wise og telst sú birting fullnægjandi tilkynning.

Feli breyting í sér verulega eða íþyngjandi skerðingu á réttindum Viðskiptavinar tilkynnir Wise honum um hana beint og með sannanlegum hætti. Viðskiptavini er þá heimilt að segja upp þeim þjónustuþætti sem breytingin varðar með skriflegri tilkynningu innan 30 daga frá tilkynningunni. Berist slík tilkynning ekki telst breytingin samþykkt.

2 Skilgreiningar

Ágrip / Verkefniságrip: samningsskjal sem lýsir tiltekinni þjónustu, afurðum, verði, tímaáætlun og öðrum skilmálum tiltekins verkefnis.

Afurðir: hugverk svo sem forrit, forritaskrár, skjöl, skýrslur og önnur afhendanleg gögn sem tilgreind eru í Ágripi.

Fyrirliggjandi hugverk: hugverk, verkfæri, aðferðir og lausnir sem Wise hefur þróað fyrir samning eða notar almennt við þjónustu sína.

Hugverkaréttindi: hugbúnaður, hugbúnaðarkóði, vörumerki og viðskiptaheiti, höfundarréttur, einkaleyfi, verkkunnátta (e. know-how), viðskiptaleyndarmál og aðrar trúnaðarupplýsingar, hönnunarréttur, gagnagrunnsréttur, lén og fylgiskjöl, ásamt breytingum og afleiddum verkum af framangreindu, og réttur til að sækja um skráningu slíkra réttinda, hvort sem skráð er eða óskráð.

Sérhugverk: hugverk sem sérstaklega er þróað fyrir tiltekinn Viðskiptavin samkvæmt Ágripi.

Gögn Viðskiptavinar: öll gögn, efni og upplýsingar sem Viðskiptavinur, eða aðrir fyrir hans hönd, láta Wise í té eða verða til við notkun þjónustunnar.

Trúnaðarupplýsingar: allar upplýsingar sem aðili veitir hinum og merktar eru sem trúnaðarmál eða eru í eðli sínu trúnaðarmál, þ.m.t. viðskiptalegar, tæknilegar og fjárhagslegar upplýsingar.

Þjónusta: öll þjónusta sem Wise veitir samkvæmt samningi aðila.

Þjónustusamningur: samningur um tiltekna þjónustu sem gerður er á grundvelli Grunnsamnings og vísar í þessa Þjónustuskilmála.

3 Þjónusta

Nákvæm lýsing á þjónustu, þjónustustigi, tímaáætlun, afhendingu og öðrum skilyrðum kemur fram í Þjónustusamningi eða Ágripi fyrir hvern þjónustuþátt, eða með öðrum sannanlegum hætti. Wise veitir þjónustu í samræmi við viðurkennd fagleg vinnubrögð og tryggir að starfsfólk hafi viðeigandi þekkingu og reynslu.

3.1 Almennur þjónustutími

Almennur þjónustutími Wise er virka daga kl. 08:00–17:00, að undanskildum lögbundnum frídögum. Á almennum þjónustutíma geta viðskiptavinir leitað aðstoðar, sent inn þjónustubeiðnir og vænst þess að erindi séu tekin til afgreiðslu. Þjónusta utan almenns þjónustutíma, aukin vöktun og önnur sértæk þjónustuskilyrði, þar sem þau eiga við, eru skilgreind í viðkomandi þjónustusamningi.

3.2 Undirverktakar

Wise er heimilt að nýta undirverktaka við veitingu þjónustu að eigin ákvörðun, að því tilskildu að farið sé að gildandi lögum. Wise ber ábyrgð á verkum undirverktaka eins og um eigin störf væri að ræða og tryggir að þeir séu bundnir sambærilegum skyldum um trúnað og gagnaöryggi og Wise. Feli undirverktaka í sér vinnslu persónuupplýsinga gilda ákvæði vinnslusamnings um samþykki fyrir undirvinnsluaðilum; þó er Wise heimilt, án fyrirframsamþykkis, að nýta undirverktaka í bráðatilvikum þar sem ekki er unnið með persónuupplýsingar, enda sé Viðskiptavinur upplýstur án ástæðulausrar tafar.

4 Skyldur Viðskiptavinar

Viðskiptavinur skal:

  1. veita Wise fullnægjandi og endurgjaldslausan aðgang að húsnæði, kerfum, gögnum og starfsfólki eftir því sem nauðsynlegt er til að veita þjónustuna,
  2. veita réttar og fullnægjandi upplýsingar sem þjónustan byggist á,
  3. tilnefna tengilið sem hefur vald til ákvarðanatöku vegna þjónustunnar,
  4. veita nauðsynleg leyfi til notkunar á búnaði, hugbúnaði og kerfum í hans eigu,
  5. veita endurgjöf og samþykki innan þeirra tímamarka sem tilgreind eru, og tilkynna Wise án tafar um breyttar aðstæður, og
  6. varðveita sjálfstætt afrit af mikilvægum gögnum óháð þeirri þjónustu sem Wise veitir.

Viðskiptavinur ábyrgist að hann hafi öll nauðsynleg leyfi vegna búnaðar, hugbúnaðar og gagna sem hann lætur Wise í té, að notkun þjónustunnar brjóti ekki á réttindum þriðja aðila og að hún samræmist gildandi lögum. Viðskiptavini er óheimilt að nýta þjónustuna í ólöglegum tilgangi, reyna að fá óheimilan aðgang að kerfum Wise eða annarra viðskiptavina, valda óeðlilegu álagi, endurselja þjónustuna án skriflegs samþykkis eða nýta hana til dreifingar spilliforrita eða ruslpósts.

5 Greiðsluskilmálar

5.1 Verð og gjaldskrá

Verð fyrir þjónustu og vörur er samkvæmt gildandi gjaldskrá Wise á hverjum tíma eða sérstöku verði sem tilgreint er í Þjónustusamningi eða Ágripi. Öll verð eru án virðisaukaskatts nema annað sé tekið fram.

5.2 Verðbreytingar

Wise er heimilt að breyta gjaldskrá með að minnsta kosti 30 daga fyrirvara. Verðbreytingar geta meðal annars byggst á breytingum á vísitölu neysluverðs, gengi erlendra gjaldmiðla þegar undirliggjandi kostnaður er í erlendri mynt, verðskrám undirliggjandi birgja eða kostnaði við að veita þjónustuna. Sérstaklega umsamin afsláttarkjör breytast ekki nema með samþykki beggja aðila. Leiði verðbreyting til verulegrar hækkunar á tilteknum þjónustuþætti er Viðskiptavini heimilt að segja þeim þjónustuþætti upp innan fyrirvarafrestsins.

5.3 Reikningar og greiðslur

Reikningar eru gefnir út mánaðarlega eða samkvæmt ákvæðum Þjónustusamnings. Gjalddagi er útgáfudagur reiknings og eindagi 20 dögum síðar. Athugasemdir við reikning skulu berast innan 15 daga frá útgáfu. Ágreiningur um hluta reiknings frestar einungis greiðslu hins umdeilda hluta; óumdeildan hluta skal greiða á eindaga. Berist engar athugasemdir innan frestsins telst reikningur samþykktur.

5.4 Vanskil

Við vanskil reiknast dráttarvextir frá eindaga samkvæmt III. kafla laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu. Að auki er Wise heimilt, með skriflegri viðvörun hverju sinni:

  1. að stöðva þjónustu 14 dögum eftir eindaga,
  2. að takmarka aðgang að gögnum og kerfum 30 dögum eftir eindaga, og
  3. að loka aðgangi með öllu uns greiðsla berst.

Standi vanskil enn 90 dögum eftir eindaga er Wise heimilt að eyða gögnum Viðskiptavinar, enda hafi Wise áður sent skriflega viðvörun með a.m.k. 30 daga fyrirvara þar sem fram kemur að til eyðingar komi og hvaða gögn um ræðir. Viðskiptavinur á þess kost að fá gögnin afhent gegn greiðslu áfallinna gjalda áður en til eyðingar kemur.

Um eyðingu gagna við samningslok fer að öðru leyti samkvæmt 11. gr. Viðskiptavinur greiðir allan innheimtu- og lögfræðikostnað sem leiðir af vanskilum.

5.5 Aukaverk og ferðakostnaður

Vinna sem ekki hefur verið samið um sérstaklega telst aukaverk og er reikningsfærð samkvæmt gjaldskrá. Lágmarksgjald fyrir aukaverk á dagvinnutíma (8:00–17:00 virka daga) er 0,5 klst., vinna á starfsstöð Viðskiptavinar 2 klst. og útkall utan dagvinnutíma 4 klst. Viðskiptavinur greiðir ferðakostnað og uppihald starfsmanna Wise utan þjónustusvæða Wise samkvæmt gjaldskrá eða raunkostnaði, nema annað sé tilgreint í þjónustusamningi eða viljayfirlýsingu eftir atvikum, eða um annað sé samið.

6 Hugverkaréttur, nytjaréttindi og heimil notkun

6.1 Fyrirliggjandi hugverk Wise

Allur hugbúnaður, verkfæri, aðferðir, sniðmát, kóðasöfn og önnur hugverk sem Wise hefur þróað fyrir samning eða notar við þjónustu sína eru og verða áfram eign Wise, ásamt öllum Hugverkaréttindum í þeim.

6.2 Sérhugverk

Um hugverk sem sérstaklega er þróað fyrir Viðskiptavin samkvæmt Ágripi gildir:

  1. Wise heldur höfundarrétti og eignarrétti að Sérhugverki nema sérstaklega sé samið um fullt framsal í Ágripi.
  2. Að fullri greiðslu lokinni fær Viðskiptavinur óafturkallanlegt og óframseljanlegt nytjaleyfi til að nota Sérhugverk í eigin innri starfsemi.
  3. Wise er heimilt að endurnýta almenna þætti, aðferðir og þekkingu úr Sérhugverki í þágu annarra viðskiptavina.

6.3 Hugbúnaður þriðja aðila og opinn hugbúnaður

Hugbúnaður frá þriðja aðila er veittur undir leyfisskilmálum viðkomandi aðila (t.d. EULA eða SPLA). Viðskiptavinur fær aðeins nytjaréttindi, ekki eignarrétt, og Wise ber ekki ábyrgð umfram það sem viðkomandi birgir ábyrgist. Feli verkefni í sér opinn hugbúnað (e. open source) gilda leyfisskilmálar viðkomandi hugbúnaðar.

6.4 Gögn Viðskiptavinar og takmarkanir

Gögn Viðskiptavinar eru og verða áfram eign hans eða réttmæts eiganda. Viðskiptavinur veitir Wise takmarkað leyfi til að nota þau eingöngu í þeim tilgangi að veita umsamda þjónustu. Viðskiptavini er óheimilt, án skriflegs samþykkis Wise, að endurselja eða dreifa hugbúnaði eða þjónustu Wise, taka hugbúnað í sundur (e. reverse engineer), fjarlægja eignarmerkingar eða nýta þjónustuna til þróunar á samkeppnisvöru.

6.5 Hugbúnaðarleyfi Wise

Um leyfi til nýtingar á hugbúnaði sem Wise þróar og veitir gilda sérstakir Leyfisskilmálar Wise Hugbúnaðar, sem aðgengilegir eru á heimasíðu Wise, ásamt viðkomandi leyfissamningi. Þeir skilmálar hafa meðal annars að geyma nánari ákvæði um nytjaleyfi, áskrift, endurbætur og meðferð notendagagna.

7 Trúnaður og persónuvernd

7.1 Trúnaður

Báðir aðilar skuldbinda sig til að fara með trúnaðarupplýsingar hins aðilans með sömu varúð og eigin trúnaðarupplýsingar, nota þær eingöngu til að uppfylla samninginn og birta þær ekki þriðja aðila án skriflegs samþykkis. Trúnaðarskyldan gildir ekki um upplýsingar sem eru almennt þekktar án brots, viðtakandi þróaði sjálfstætt, honum bárust með lögmætum hætti frá þriðja aðila án trúnaðarskyldu, eða birta skal samkvæmt lögum eða dómsúrskurði (og þá með tilkynningu til hins aðilans eftir því sem heimilt er). Trúnaðarskyldan helst í 5 ár eftir lok samnings, eða lengur ef eðli upplýsinganna krefst.

7.2 Persónuvernd og vinnsla

Vinnsla persónuupplýsinga fer fram í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglugerð (ESB) 2016/679 (GDPR). Feli þjónustan í sér vinnslu persónuupplýsinga fyrir hönd Viðskiptavinar gera aðilar með sér sérstakan vinnslusamning (DPA) sem undirritaður er og telst hluti samningsins, í samræmi við 28. gr. GDPR. Viðskiptavinur er ábyrgðaraðili og Wise vinnsluaðili nema annað sé tekið fram. Um samþykki fyrir undirvinnsluaðilum og tilkynningarskyldu vegna öryggisbresta fer samkvæmt vinnslusamningi.

7.3 Eignarhald gagna

Viðskiptavinur á öll gögn sín sem Wise hýsir eða vinnur með samkvæmt samningnum. Wise öðlast engin réttindi yfir gögnum Viðskiptavinar umfram það sem nauðsynlegt er til að veita þjónustuna og nýtir þau ekki í eigin viðskiptalegum tilgangi.

8 Upplýsingaöryggi

Wise starfrækir vottað stjórnkerfi upplýsingaöryggis samkvæmt ISO/IEC 27001 og viðheldur viðeigandi tæknilegum og skipulagslegum öryggisráðstöfunum. Wise skuldbindur sig til að takmarka aðgang starfsfólks við það sem nauðsynlegt er, framkvæma reglulegar öryggisúttektir og viðhalda atvikastjórnunarferli. Við alvarlegan öryggisbrest sem varðar gögn Viðskiptavinar tilkynnir Wise honum án ástæðulausrar tafar og að jafnaði innan 24 klukkustunda frá uppgötvun, ásamt upplýsingum um eðli brotsins og úrbætur eftir því sem unnt er. Wise fylgir eftir atvikum lögum nr. 78/2019 um öryggi net- og upplýsingakerfa og leiðbeiningum CERT-ÍS.

Viðskiptavinur má óska eftir öryggisúttekt á þeim þáttum sem snerta þjónustu hans, að hámarki einu sinni á ári, með hæfilegum fyrirvara og án þess að raska rekstri Wise; kostnaður greiðist samkvæmt gjaldskrá nema annað sé umsamið.

9 Ábyrgð og ábyrgðartakmarkanir

9.1 Ábyrgð Wise á þjónustu

Wise ábyrgist að þjónustan uppfylli skilmála samningsins og sé í samræmi við bestu starfsvenjur í greininni og að starfsfólk hafi nauðsynlega þekkingu og reynslu. Wise ábyrgist ekki að hugbúnaður sé villulaus, virkni hugbúnaðar þriðja aðila umfram ábyrgð birgja, né samhæfni við umhverfi eða búnað sem Wise hefur ekki samþykkt.

9.2 Tilkynning um galla og úrbætur

Viðskiptavinur skal tilkynna galla án tafar, þó eigi síðar en 30 dögum vegna vélbúnaðar og 7 dögum vegna þjónustugalla. Wise bregst við með því að lagfæra gallann innan hæfilegs tíma, veita sambærilega þjónustu eða vöru, eða endurgreiða hlutfallslega þóknun fyrir hið gallaða. Viðskiptavinur getur ekki krafist annarra úrbóta en að framan greinir.

9.3 Takmörkun ábyrgðar

Wise ber ekki ábyrgð á óbeinu eða afleiddu tjóni, þar með talið glötuðum hagnaði, tekjumissi, gagnamissi, viðskiptatjóni eða rekstrartruflunum, né á tjóni sem rekja má til rangra upplýsinga eða ákvarðana Viðskiptavinar, breytinga hans á vöru eða þjónustu, eða samsetningar við búnað þriðja aðila sem Wise hefur ekki samþykkt.

9.4 Hámarksábyrgð

Heildarábyrgð Wise vegna samnings skal aldrei fara yfir samtölu þeirra gjalda sem Viðskiptavinur hefur greitt Wise fyrir þann þjónustuþátt sem tjónið tengist á síðustu 6 mánuðum fyrir tjónsatburð, að undanþegnum virðisaukaskatti, stofnkostnaði þjónustu og búnaðarkaupum. Í Þjónustusamningi má semja um hærra hámark fyrir tiltekna þjónustu. Vegna endursölu á leyfum eða þjónustu þriðja aðila takmarkast ábyrgð Wise við það sem viðkomandi birgir ábyrgist gagnvart Wise.

9.5 Undantekningar frá takmörkunum

Ábyrgðartakmarkanir gilda ekki um tjón af ásetningi eða stórfelldu gáleysi Wise, brot á trúnaðarskyldu, líkamstjón eða manntjón, eða ábyrgð sem ekki verður takmörkuð samkvæmt lögum.

9.6 Frestur til að hafa uppi kröfu

Kröfu vegna þjónustu eða vöru skal hafa uppi án ástæðulausrar tafar eftir að tilefni varð ljóst, þó eigi síðar en einu ári frá afhendingu viðkomandi þjónustuþáttar. Óháð framangreindu fyrnist krafa aðila í síðasta lagi tveimur árum frá því að tilefni hennar varð til.

10 Skaðabótaskylda

Viðskiptavinur skal halda Wise skaðlausu vegna krafna þriðja aðila sem rekja má til efnis eða gagna Viðskiptavinar, rangra upplýsinga frá honum, eða brota hans á lögum eða á þessum skilmálum. Wise skal halda Viðskiptavini skaðlausum gegn kröfum þriðja aðila um að Fyrirliggjandi hugverk eða Sérhugverk Wise brjóti á hugverkarétti, að því tilskildu að Viðskiptavinur tilkynni Wise án tafar, veiti Wise einkarétt til varna og lausnar og nauðsynlega aðstoð. Skaðleysi Wise á ekki við um ósamþykktar breytingar Viðskiptavinar, notkun í ósamþykktu umhverfi eða áframhaldandi notkun eftir að úrbætur hafa verið boðnar.

11 Gildistími og uppsögn

11.1 Gildistími og uppsagnarfrestur

Nema annað sé tekið fram í Þjónustusamningi eða Ágripi gilda samningar í 12 mánuði frá undirritun og eru óuppsegjanlegir á þeim tíma. Að þeim tíma liðnum endurnýjast þeir sjálfkrafa um 12 mánuði í senn, með 3 mánaða gagnkvæmum uppsagnarfresti. Í einstökum Þjónustusamningum má kveða á um annan binditíma og uppsagnarfrest (t.d. lengri fyrir kerfisrekstur eða skemmri fyrir leyfi), og ganga slík ákvæði framar þessari grein.

11.2 Uppsögn vegna vanefnda og riftun

Hvorum aðila er heimilt að segja upp samningi með 30 daga fyrirvara bæti hinn ekki úr verulegri vanefnd innan 30 daga frá skriflegri tilkynningu, eða verði hann gjaldþrota eða hætti rekstri. Við verulega vanefnd Viðskiptavinar er Wise jafnframt heimilt að stöðva þjónustu og innheimta gjaldfallnar og ógjaldfallnar greiðslur eftir almennum reglum kröfuréttar.

11.3 Afleiðingar samningsloka

Ákvæði þessarar greinar gilda við lok samnings, hvort sem samningslok verða vegna uppsagnar, vanefnda, vanskila eða riftunar.

Við lok samnings skal Viðskiptavinur greiða öll gjöld til og með lokadegi, skila hugbúnaði og vélbúnaði í eigu Wise og afmá hugbúnað Wise úr umhverfi sínu. Wise skilar gögnum Viðskiptavinar á CSV- eða SQL-formi, eða öðru umsömdu formi, gegn gjaldi ef það fellur undir aukaverk. Wise varðveitir gögn Viðskiptavinar í 30 daga frá lokum samnings svo hann geti sótt þau, og allt að 90 dögum þegar um hýsingar- eða skýjaþjónustu er að ræða; að þeim fresti liðnum er Wise heimilt að eyða gögnunum með öruggum hætti nema lög kveði á um annað. Ákvæði um greiðslur, hugverk, trúnað, persónuvernd, ábyrgðartakmarkanir, skaðabótaskyldu og varnarþing halda gildi eftir lok samnings.

12 Þjónustustig

Þjónustustig, viðbragðstímar og markmið um tiltækileika eru skilgreind í Þjónustusamningi eða þjónustustigsviðauka fyrir viðkomandi þjónustu. Slík markmið, þar með talin uppgefin hlutfallsmarkmið um uppitíma, eru markmið en ekki ábyrgð eða trygging, og þeim fylgir engin sjálfvirk inneign, endurgreiðsla eða önnur greiðsluskylda nema um það sé sérstaklega samið í einstökum Þjónustusamningi. Skýrslur um tiltækileika sem Wise kann að veita eru einungis til upplýsingar. Viðbragð og úrlausn miðast við að Viðskiptavinur veiti nauðsynlegar upplýsingar, aðgang og samvinnu, og gilda ekki vegna áætlaðs viðhalds, óviðráðanlegra atvika, atvika sem rekja má til Viðskiptavinar eða þriðja aðila, eða bilana hjá undirliggjandi þjónustuveitendum.

13 Óviðráðanleg atvik (force majeure)

Hvorugur aðili ber ábyrgð á vanefndum sem stafa af óviðráðanlegum atvikum sem eru utan hæfilegrar stjórnunar hans, svo sem náttúruhamförum, heimsfaraldri, stríði, hryðjuverkum, vinnudeilum, aðgerðum stjórnvalda, bilunum í fjarskiptum eða raforkukerfi, alvarlegum netárásum sem ekki mátti með sanngirni afstýra, eða sambærilegum atvikum hjá undirverktökum eða birgjum sem Wise reiðir sig á. Aðili sem fyrir slíku verður tilkynnir hinum án tafar. Vari ástandið lengur en 90 daga samfellt er hvorum aðila heimilt að segja upp samningi án viðurlaga.

14 Eftirlitsskyldir aðilar

Sé Viðskiptavinur háður eftirliti Fjármálaeftirlitsins eða annarra eftirlitsaðila skuldbindur Wise sig, eftir því sem við á og með hliðsjón af lögum nr. 161/2002, reglum FME nr. 1/2019 um útvistun og leiðbeinandi tilmælum EBA 2019/02, til að:

  1. fylgja lögmætum tilmælum eftirlitsaðila og veita þeim, endurskoðendum og Viðskiptavini aðgang að upplýsingum og starfsaðstöðu með að minnsta kosti 5 daga fyrirvara nema lög mæli fyrir um annað,
  2. halda skrá yfir aðgang að kerfum og gögnum Viðskiptavinar (hver, hvenær og hvaða breytingar),
  3. takmarka aðgang starfsfólks við það sem nauðsynlegt er og tryggja að aðgangur sé rekjanlegur til einstaklinga, án sameiginlegra stjórnandaaðganga,
  4. ekki keðjuútvista þjónustu án heimildar í lögum eða samþykkis Viðskiptavinar, og
  5. styðja við tilkynningarskyldu Viðskiptavinar vegna öryggis net- og upplýsingakerfa eftir því sem við á.

Kostnaður Wise vegna slíks eftirlits eða aðgangs greiðist af Viðskiptavini samkvæmt gjaldskrá nema annað sé umsamið.

Sé Viðskiptavinur fjármálafyrirtæki eða annar aðili sem fellur undir reglugerð (ESB) 2022/2554 um stafrænt rekstrarþol fjármálageirans (DORA) gilda til viðbótar ákvæði sérstaks DORA-viðauka við samninginn, sem hefur að geyma ákvæði um samning við þriðja aðila sem veitir upplýsingatækniþjónustu, sbr. 30. gr. DORA. Ákvæði DORA-viðaukans ganga framar þessum kafla að því er varðar slíka aðila.

15 Samstæðufélög

Óski móðurfélag Viðskiptavinar þess að samstæðufélög þess (þ.e. félög sem eru í beinni eða óbeinni eigu eða yfirráðum móðurfélagsins) njóti þjónustu á grundvelli samnings þessa, skal tilgreina slík félög í viðauka við samninginn („Tilgreind Samstæðufélög“). Hvert Tilgreint Samstæðufélag getur í kjölfarið gert eigin Þjónustusamning eða Ágrip við Wise, sem lýtur skilmálum samnings við móðurfélagið.

Móðurfélagið og hlutaðeigandi Tilgreint Samstæðufélag bera sameiginlega og óskipta ábyrgð gagnvart Wise á öllum greiðslum og öðrum skuldbindingum sem stofnast á grundvelli slíks Þjónustusamnings eða Ágrips, nema annað sé sérstaklega tekið fram í viðkomandi Þjónustusamningi eða Ágripi.

Listi yfir Tilgreind Samstæðufélög skal uppfærður með skriflegu samþykki móðurfélagsins og Wise, án þess að þurfa að endurnýja samninginn að öðru leyti. Falli félag út af listanum hefur það ekki áhrif á ábyrgð samkvæmt 2. mgr. vegna skuldbindinga sem stofnast höfðu áður en breytingin tók gildi.

16 Ráðning starfsfólks

Viðskiptavinur skal hvorki ráða til sín né leita eftir til starfa starfsmenn Wise sem komið hafa að þjónustu við hann, meðan samningur aðila er í gildi og í tólf (12) mánuði frá lokum samningssambandsins, nema með skriflegu samþykki Wise.

Ákvæðið tekur ekki til almennra atvinnuauglýsinga sem ekki er beint sérstaklega að starfsfólki Wise.

17 Samfélagsleg ábyrgð og heiðarleiki

Aðilar skuldbinda sig til að fara að gildandi lögum um vinnurétt og aðbúnað starfsfólks og að tryggja að undirverktakar geri slíkt hið sama. Hvorugur aðili, né starfsfólk hans eða undirverktakar, skal bjóða, veita eða þiggja mútur eða óeðlilegan ávinning, og aðilar skulu fara að gildandi lögum um varnir gegn peningaþvætti og spillingu. Veruleg vanefnd á þessari grein telst veruleg vanefnd á samningnum.

18 Ýmis ákvæði

Framsal. Viðskiptavinur má ekki framselja samninginn án skriflegs samþykkis Wise. Wise er heimilt að framselja samninginn til samstæðufélags eða vegna sameiningar eða sambærilegra aðstæðna, með tilkynningu til Viðskiptavinar.

Samningur í heild. Samningur aðila kemur í stað allra fyrri samninga, tilboða og samskipta um sama efni.

Gildi ákvæða. Reynist einstakt ákvæði ógilt eða óframkvæmanlegt hefur það ekki áhrif á gildi annarra ákvæða, og skal hið ógilda ákvæði túlkað þannig að það nái sem best tilgangi sínum innan laga.

Tilkynningar. Tilkynningar skulu vera skriflegar og sendar á netfang eða heimilisfang sem tilgreint er í samningi. Tölvupóstur telst móttekinn næsta virka dag.

Vörumerki. Hvorugur aðili notar nafn eða vörumerki hins í markaðsefni án samþykkis.

Sjálfstæður verktaki. Wise er sjálfstæður verktaki og samningurinn stofnar ekki til ráðningar-, samstarfs- eða umboðssambands.

19 Ágreiningur, lög og varnarþing

Sé ósamræmi milli íslenskrar útgáfu skilmálanna og útgáfu á öðru tungumáli gildir íslenska útgáfan. Aðilar skulu fyrst leitast við að leysa ágreining með beinum samningum í góðri trú og geta komið sér saman um að leita til óháðs sáttasemjara eða gerðardóms. Að öðru leyti gilda íslensk lög um samninginn og skulu ágreiningsmál rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

20 Samþykki

Viðskiptavinur samþykkir þessa þjónustuskilmála með þeim hætti sem lýst er í gr. 1.3.

Tengjumst

Við skoðum þetta saman

Ertu með fyrirspurn eða ábendingu til okkar?
Endilega sendu okkur línu og við leysum málið.