Persónuverndarstefna Wise
Tengjumst
Við skoðum þetta saman
Persónuvernd þín skiptir Wise miklu máli og okkur er umhugað um öryggi gagna sem fyrirtækið meðhöndlar. Í persónuverndarstefnu þessari er greint frá því hvernig Wise lausnir ehf., kt. 630407-0870, Ofanleiti 2, 103 Reykjavík (hér eftir „Wise“ eða „við“), meðhöndlar og vinnur með persónuupplýsingar viðskiptavina sinna og eftir atvikum annarra. Stefna þessi tekur til persónuupplýsinga, hvort sem þeim er safnað, þær varðveittar með rafrænum hætti, á pappír eða með öðrum sambærilegum hætti. Stefnan tekur til skráningar, vörslu og vinnslu á persónuupplýsingum.
Wise safnar einungis upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að veita ráðgjöf eða þjónustu hverju sinni. Þegar við veitum viðskiptavinum okkar þjónustu þurfum við í einhverjum tilvikum að vinna með persónuupplýsingar.
Við tryggjum að öll starfsemi okkar sé í samræmi við gildandi lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018. Verndun gagna er okkur mikilvæg og við leggjum okkur fram við að fylgja þeim reglum sem gilda varðandi verndun gagna samkvæmt persónuverndarlögum.
Að meginstefnu til gegnir Wise stöðu vinnsluaðila fyrir hönd viðskiptavina sinna, sem hafa gert þjónustusamninga við Wise um kaup á þjónustu. Þá teljast viðskiptavinir Wise vera ábyrgðaraðilar vinnslu í skilningi persónuverndarlaga, en ábyrgðaraðili ber megin ábyrgð á vinnslu persónupplýsinga. Þá er gerður vinnslusamningur þar sem kveðið er á um þær skyldur sem vinnsluaðili tekur að sér f.h. ábyrgðaraðila vegna ákvörðunar hans um vinnslu persónuupplýsinga.
Wise getur líka gegnt stöðu ábyrgðaraðila. Wise telst t.d. gegna stöðu ábyrgðaraðila vegna samskipta við viðskiptavini sína í tengslum við fyrirliggjandi eða fyrirhuguð viðskipti, með söfnun tengiliðaupplýsinga sem viðskiptavinurinn veitir Wise eða eru opinberar. Sem ábyrgðaraðili er Wise aðeins heimilt að vinna persónuupplýsingar á grundvelli skýrra heimilda persónuverndarlaga, slík vinnsla byggir á samþykki einstaklinga, samningum eða lögmætum hagsmunum.
Persónuupplýsingar eru sérhverjar upplýsingar um persónugreindan eða persónugreinanlegan einstakling („skráðan einstakling“); einstaklingur telst persónugreinanlegur ef unnt er að persónugreina hann, beint eða óbeint, svo sem með tilvísun í auðkenni eins og nafn, kennitölu, staðsetningargögn, netauðkenni eða einn eða fleiri þætti sem einkenna hann í líkamlegu, lífeðlisfræðilegu, erfðafræðilegu, andlegu, efnalegu, menningarlegu eða félagslegu tilliti.
Okkur er aðeins heimilt að afla, vinna og deila persónuupplýsingum á sanngjarnan og lögmætan hátt og aðeins í sérstaklega tilgreindum tilgangi. Sem vinnsluaðili gerir Wise viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir sem tryggja viðunandi öryggi persónuupplýsinga. Persónuupplýsingar eru geymdar og unnar á öruggan hátt samkvæmt stefnu Wise um upplýsingaöryggi og gagnavernd.
Persónuupplýsingar verða aðeins varðveittar eins lengi og þörf krefur, nema annað sé heimilt eða skylt samkvæmt lögum. Wise varðveitir persónuupplýsingar sem vinnsluaðili eins lengi og vinnslusamningar kveða á um og í samræmi við lög.
Persónuverndarstefna þessi kann að taka breytingum vegna nýrra lagafyrirmæla eða túlkunar eftirlitsstofnanna á framkvæmd laga um persónuvernd. Wise áskilur sér rétt til þess að endurskoða persónuverndarstefnuna reglulega og ef sérstök þörf krefur. Allar breytingar á stefnunni verða birtar á þessu vefsvæði og taka þær gildi við birtingu á vef Wise.
Fyrirspurnir um meðhöndlun persónuupplýsinga og persónuverndarstefnu Wise skal senda á netfangið personuvernd@wise.is.
Tengjumst
Við skoðum þetta saman
Ertu með fyrirspurn eða ábendingu til okkar?
Endilega sendu okkur línu og við leysum málið.
Vafrakökur
Við notum vafrakökur til að safna og greina upplýsingar um notkun og virkni vefsíðunnar. Það gerir okkur kleift að bæta upplifun notenda og birta viðeigandi markaðsefni.
Vafrakökum sem eru notaðar á þessum vef er skipt í flokka og fyrir neðan geturðu lesið um hvern þeirra og leyft eða hafnað ákveðnum eða öllum flokkum. Ef flokki sem hafði áður verið leyfður er hafnað er öllum vafrakökum í þeim flokki eytt út úr vafranum þínum. Til viðbótar geturðu séð lista yfir kökur í hverjum flokki og ítarlegar upplýsingar í vafrakökuyfirlýsingunni.
Sjá nánar í stefnu okkar um notkun á vafrakökum.
Nauðsynlegar kökur
Sumar kökur eru nauðsynlegar fyrir grunnvirkni vefsíðunnar. Vefsíðan mun ekki virki rétt án þessara vafrakaka og þær eru því sjálfkrafa virkar og ekki hægt að hafna þeim.
Tölfræðikökur
Tölfræðikökur hjálpa okkur að bæta vefsíðuna með því að safna og greina upplýsingum um notkun hennar.
Markaðskökur
Markaðskökur eru notaðar til að rekja gesti slóð gesta á milli vefsíða sem gerir auglýsendum kleift að birta viðeigandi og grípandi auglýsingar.
Aðrar kökur
Vafrakökur í þessum flokki hefur enn ekki verið komið fyrir í viðeigandi flokk og tilgangur þeirra gæti verið óljós eins og er.
Vafrakökum sem eru notaðar á þessum vef er skipt í flokka og fyrir neðan geturðu lesið um hvern þeirra og leyft eða hafnað ákveðnum eða öllum flokkum. Ef flokki sem hafði áður verið leyfður er hafnað er öllum vafrakökum í þeim flokki eytt út úr vafranum þínum. Til viðbótar geturðu séð lista yfir kökur í hverjum flokki og ítarlegar upplýsingar í vafrakökuyfirlýsingunni.
Sjá nánar í stefnu okkar um notkun á vafrakökum.
Nauðsynlegar kökur
Sumar kökur eru nauðsynlegar fyrir grunnvirkni vefsíðunnar. Vefsíðan mun ekki virki rétt án þessara vafrakaka og þær eru því sjálfkrafa virkar og ekki hægt að hafna þeim.
Nafn | Lén | Söluaðili | Rennur út |
---|---|---|---|
ARRAffinity | .wise.is | Vafra lokað | |
ARRAffinitySameSite | .wise.is | Vafra lokað | |
cookiehub | .wise.is | CookieHub | 365 dagar |
.AspNetCore.Antiforgery. | wise.is | Vafra lokað |
Tölfræðikökur
Tölfræðikökur hjálpa okkur að bæta vefsíðuna með því að safna og greina upplýsingum um notkun hennar.
Nafn | Lén | Söluaðili | Rennur út |
---|---|---|---|
_ga_ | .wise.is | 400 dagar | |
_ga | .wise.is | 400 dagar |
Markaðskökur
Markaðskökur eru notaðar til að rekja gesti slóð gesta á milli vefsíða sem gerir auglýsendum kleift að birta viðeigandi og grípandi auglýsingar.
Nafn | Lén | Söluaðili | Rennur út |
---|---|---|---|
test_cookie | .doubleclick.net | 1 klukkutími | |
IDE | .doubleclick.net | Google Advertising Products | 390 dagar |
_fbp | .wise.is | Meta Platforms | 90 dagar |
lastExternalReferrerTime | Meta Platforms | Persistent | |
lastExternalReferrer | Meta Platforms | Persistent |
Aðrar kökur
Vafrakökur í þessum flokki hefur enn ekki verið komið fyrir í viðeigandi flokk og tilgangur þeirra gæti verið óljós eins og er.
Nafn | Lén | Söluaðili | Rennur út |
---|---|---|---|
.AspNetCore.Mvc.CookieTempDataProvider | wise.is | Vafra lokað |