Skip to main content Skip to footer

Leyfisskilmálar Wise Hugbúnaðar

Skilmálar um nýtingu hugbúnaðar Wise · vísað til í leyfissamningi og aðgengilegir á heimasíðu Wise · Drög – útgáfa 1.0 (til lögfræðilegrar yfirferðar)

Efnisyfirlit

1 Inngangur, gildissvið og samþykki

Þessir leyfisskilmálar („Wise Skilmálar“) gilda um nýtingu á hugbúnaði sem Wise lausnir ehf. („Wise“), eða samstarfsaðili sem Wise hefur veitt heimild, veitir notanda („Seljandi“). Skilmálarnir eru órjúfanlegur hluti leyfissamnings milli Seljanda og notanda og eru aðgengilegir á heimasíðu Wise; notandi undirritar þá ekki sérstaklega.

Almennir þjónustuskilmálar Wise gilda samhliða þessum skilmálum. Um ábyrgð og ábyrgðartakmarkanir, skaðleysi, trúnað, óviðráðanleg atvik, lögsögu og önnur almenn ákvæði fer samkvæmt Almennum þjónustuskilmálum og viðkomandi leyfissamningi; þau eru ekki endurtekin hér.

Með því að hlaða niður, setja upp eða nota hugbúnaðinn samþykkir notandi þessa skilmála. Samþykki einstaklingur skilmálana fyrir hönd lögaðila lýsir hann því yfir og ábyrgist að hann hafi heimild til að skuldbinda þann lögaðila.

Biðlarar og þjónar sem hugbúnaðurinn er notaður á kunna reglulega að senda Wise upplýsingar til að sannreyna að leyfi sé virkt og ekki útrunnið, svo sem auðkenni leyfis, vöruheiti, útgáfunúmer og notkun. Með notkun hugbúnaðarins samþykkir notandi slíka sannreyningu.

2 Nytjaleyfi og takmarkanir

Með leyfissamningi fær notandi takmarkað, óframseljanlegt og óyfirfæranlegt leyfi, án einkaréttar, til að nýta hugbúnaðinn í eigin þágu, eins og nánar er kveðið á um í leyfissamningi og þessum skilmálum. Leyfið veitir ekki eignarrétt yfir hugbúnaðinum. Notanda ber að fylgja þeim tæknilegu takmörkunum sem hugbúnaðurinn setur.

Notanda er einkum óheimilt að:

  1. nýta hugbúnaðinn til annars en eigin innri starfsemi og í samræmi við notendaleiðbeiningar Seljanda,
  2. yfirfæra, framselja, endurselja, leigja, lána eða veðsetja leyfið eða nýta hugbúnaðinn fyrir hönd þriðja aðila,
  3. taka hugbúnaðinn í sundur, þýða eða brjóta niður (e. reverse engineer) eða búa til afleidd verk, nema lög heimili,
  4. fjarlægja eða breyta eignar- eða höfundarréttarmerkingum, og
  5. veita öðrum en starfsfólki, umboðsmönnum og verktökum, sem vinna beint að notkun hugbúnaðarins, aðgang að honum.

Notandi skal gera viðeigandi ráðstafanir til að vernda trúnaðarupplýsingar og hugverkaréttindi Wise í hugbúnaðinum. Brjóti notandi gegn skilmálum þessum kann nytjaleyfi hans að falla niður. Afrit má einungis gera til öryggisafritunar eða til stuðnings því eintaki sem notað er í starfsemi notanda.

3 Áskrift og hugbúnaður sem þjónusta (SaaS)

Hugbúnaðurinn er að jafnaði veittur í áskrift — rétti til að nota tilteknar einingar (notendur, tæki eða annað) yfir ákveðið tímabil — og að jafnaði afhentur sem hugbúnaður sem þjónusta (SaaS), hýstur í Microsoft Azure og eftir atvikum í Microsoft Dynamics 365 skýi samkvæmt Microsoft Cloud Solution Provider (CSP). Í undantekningartilvikum kann hugbúnaðurinn að vera settur upp í eigin umhverfi notanda.

Þegar áskrift rennur út eða henni er sagt upp fellur réttur notanda til að nota hugbúnaðinn niður og skal notandi þá hætta notkun og fjarlægja öll eintök. Áframhaldandi notkun eftir að áskrift rennur út kann að fela í sér brot á hugverkaréttindum. Wise og/eða Microsoft kunna að gera áskrift óvirka í samræmi við samning.

Wise ber ekki ábyrgð á niðritíma eða truflunum sem rekja má til Microsoft Azure eða Microsoft Dynamics 365, eða annarra atvika sem eru utan stjórnunar Wise. Um þjónustustig slíkrar undirliggjandi þjónustu gilda skilmálar viðkomandi þjónustuveitanda.

4 Endurbætur og stoðþjónusta

Endurbætur (uppfærðar útgáfur af stöðluðum hluta hugbúnaðarins) eru innifaldar í virkri áskrift þar til henni eða leyfissamningi er sagt upp. Wise lofar ekki ákveðinni tíðni endurbóta og þær taka einungis til staðlaðra hluta hugbúnaðarins, ekki sérsniðinna breytinga. Innleiðing endurbóta, uppsetning, þjálfun og aðlögun vegna sérbreytinga er ekki innifalin í áskrift og er gjaldfærð sérstaklega. Skylda Wise til stoðþjónustu takmarkast við nýjustu stöðluðu útgáfu hugbúnaðarins og útgáfuna þar á undan.

5 Meðferð notendagagna

Þegar hugbúnaðurinn er afhentur sem SaaS eru gögn notanda („Notendagögn“) einungis notuð til að veita þjónustuna og eru ekki nýtt í auglýsingum eða öðrum viðskiptalegum tilgangi. Notandi heldur öllum réttindum yfir Notendagögnum og Wise öðlast engin réttindi umfram það sem nauðsynlegt er til að veita þjónustuna. Wise birtir ekki Notendagögn utan Wise og tengdra félaga nema samkvæmt fyrirmælum notanda, ákvæðum þessara skilmála eða lagaskyldu.

Notandi ber ábyrgð á réttmæti, lögmæti og innihaldi eigin gagna og á að afla nauðsynlegra samþykkja og veita tilkynningar vegna vinnslu persónuupplýsinga. Á meðan áskrift er virk hefur notandi aðgang að Notendagögnum og getur sótt þau. Að áskrift lokinni varðveitir Wise Notendagögn í 90 daga svo notandi geti sótt þau, eftir atvikum gegn gjaldi, og eyðir þeim að þeim tíma liðnum nema lög kveði á um annað. Um persónuvernd að öðru leyti fer samkvæmt persónuverndarstefnu Wise og vinnslusamningi.

6 Hugverkaréttur

Öll Hugverkaréttindi, eins og þau eru skilgreind í Almennum þjónustuskilmálum Wise, í hugbúnaðinum, þar með talið höfundarréttur, og í meðfylgjandi efni og undirliggjandi tækni, ásamt öllum breytingum og afleiddum verkum, eru eign Wise og/eða birgja Wise og njóta verndar höfundarréttarlaga og annarra laga. Þessir skilmálar framselja notanda engin slík réttindi. Öll eintök hugbúnaðarins eru og verða áfram eign Wise. Um grunnhugbúnað Microsoft gilda leyfisskilmálar Microsoft.

7 Tengsl við aðra skilmála og forgangsröð

Um ábyrgð Wise og takmarkanir á henni, skaðleysi vegna krafna um hugverkaréttarbrot, trúnað, óviðráðanleg atvik, lögsögu og varnarþing og önnur almenn ákvæði fer samkvæmt Almennum þjónustuskilmálum Wise og viðkomandi leyfissamningi. Komi upp ósamræmi ganga ákvæði leyfissamnings framar, þá þessir Wise Skilmálar, og loks Almennir þjónustuskilmálar. Að því er varðar grunnhugbúnað Microsoft gilda þó ófrávíkjanlegir leyfisskilmálar Microsoft framar öðru.

Útgáfa 1.0 – drög. Almenn ákvæði (ábyrgð, trúnaður, óviðráðanleg atvik o.fl.) er að finna í Almennum þjónustuskilmálum Wise. Skjal þetta er í yfirferð og telst ekki endanleg útgáfa.

Tengjumst

Við skoðum þetta saman

Ertu með fyrirspurn eða ábendingu til okkar?
Endilega sendu okkur línu og við leysum málið.