Skip to main content Skip to footer

Gervigreind og stafrænt starfsfólk í Business Central og Wise lausnum

Wise MCP

Wise AI Automation

Gervigreind sem þið getið treystfyrir bókhaldinu.

Wise AI Automation lætur gervigreind og stafrænt starfsfólk vinna raunveruleg verk í Business Central og Wise lausnunum: bóka, senda, afstemma og minna á. Ekkert er bókað án forskoðunar, ekkert fer yfir mörkin sem þið setjið og hvert skref er skráð.

Virkar líka í spjalli með Claude, ChatGPT og Microsoft Copilot.

Forskoðað og takmarkaðForskoðun fyrir hverja bókun, upphæðarmörk á aðgerð og á sólarhring.
Í Wise lausnunumWise Banking, VSK, rafrænir reikningar, kort, innheimta, verk og fleira.
Vinnur líka sjálftStafrænt starfsfólk bregst við atburðum í Business Central og keyrir á föstum tímum.

Öryggi og yfirsýn í hverju verki

Gervigreind sem vinnur í bókhaldinu þarf skýrar reglur. Þær eru innbyggðar í Wise AI Automation og gilda um hvert einasta verk, sama hvaða gervigreind biður um það.

  • Forskoðun fyrir hverja bókun

    Áður en nokkuð er bókað sést nákvæmlega hvaða færslur verða til. Bókunin verður að passa við forskoðunina, annars er henni hafnað.

  • Upphæðarmörk

    Þið setjið hámark á hverja aðgerð og á fyrirtækið á sólarhring. Það sem fer yfir mörkin fer sjálfkrafa í samþykkt.

  • Samþykki í Business Central

    Samþykki fara um samþykktarferli Business Central til réttra aðila. Gervigreindin samþykkir aldrei eigin verk.

  • Fólkið ykkar sendir peninga og skil

    Greiðslur fara aldrei í bankann og skil fara aldrei til Skattsins nema manneskja samþykki og sendi.

  • Varanleg skráning á öllu

    Hver aðgerð er skráð í Business Central: hver bað um hana, frá hvaða gervigreind, hvað var forskoðað og hver samþykkti. Færslum í skránni er ekki hægt að breyta eftir á.

  • Hvert verk bókað einu sinni

    Hvert verk ber sitt eigið auðkenni. Ef tenging rofnar og verkið er reynt aftur er það ekki bókað tvisvar.

  • Ykkar innskráning, ykkar gögn

    Gervigreindin vinnur með innskráningu notandans. Tengiþjónninn vistar hvorki lykilorð, aðgangslykla né bókhaldsgögn.

  • Þið getið stöðvað hvenær sem er

    Stöðvið eina aðgerð, einn notanda, einn stafrænan starfsmann eða allt fyrirtækið strax.

Fáið tímann til baka fyrir það sem skiptir máli

Mest af tíma bókarans fer í verk sem eru eins í hvert skipti: að bóka, senda, afstemma og minna á. Stafrænt starfsfólk tekur þessi verk. Fólkið ykkar fer yfir niðurstöðurnar og sinnir því sem þarf mannlegt mat.

Bóka og senda sölureikninga
Skrá innkaupareikninga úr rafrænum reikningum
Flokka kortafærslur
Áminningar og innheimta
Undirbúa greiðslur og afstemma banka

Tölurnar eru dæmi. Sláið inn ykkar eigin fjölda og tíma. Útreikningurinn er einföld margföldun og ekki loforð um árangur.

Tími sem losnar
0
klukkustundir á mánuði
Það eru um 0 vinnudagar á mánuði og 0 klukkustundir á ári sem fólkið ykkar getur nýtt í annað.

Stafrænt starfsfólk sem tekur frumkvæðið Í prófun

Stafrænn starfsmaður fer af stað þegar eitthvað gerist í Business Central eða á föstum tíma. Hann vinnur verkið, skráir það og lætur vita ef eitthvað þarf samþykki.

1. KveikjaEitthvað gerist

Reikningur er gefinn út, reikningur er bókaður, eða klukkan slær: daglega, á virkum dögum eða í mánaðarlok.

2. AthugunStarfsmaðurinn les stöðuna

Hann les færsluna aftur í Business Central og kannar heimildir, mörk og stöðvanir áður en nokkuð er gert.

3. VerkiðUnnið innan marka

Það sem er innan markanna er unnið strax. Annað fer í samþykkt hjá réttum aðila.

4. SkráningAllt er skráð

Hver keyrsla er skráð með kveikju, starfsmanni og niðurstöðu. Kerfisstjóri getur stöðvað allt strax.

Starfsmaður 1

Bókar útgefna reikninga

Þegar sölureikningur er gefinn út bókar starfsmaðurinn hann, ef upphæðin er innan markanna.

Áður

Reikningar bíða í útgefinni stöðu þar til einhver hefur tíma til að bóka þá.

Með starfsmanni

Bókað um leið. Reikningar yfir mörkum bíða samþykkis.

Starfsmaður 2

Sendir bókaða reikninga

Þegar reikningur er bókaður sendir starfsmaðurinn hann viðskiptavininum, eins og Business Central er stillt.

Áður

Bókaðir reikningar gleymast og greiðslur berast seinna.

Með starfsmanni

Reikningurinn fer strax. Hægt er að sjá hvort sendingin tókst.

Starfsmaður 3

Fylgist með gjaldföllnum kröfum

Daglega, á virkum dögum eða í mánaðarlok finnur starfsmaðurinn viðskiptavini sem þarf að minna á og útbýr áminningar.

Áður

Innheimtan situr á hakanum þegar mikið er að gera.

Með starfsmanni

Engin krafa gleymist. Útgáfa og sending fylgja ykkar stillingum.

Starfsmaður 4 Í prófun

Afstemmir safnlykla við undirbækur

Í mánaðarlok, eða oftar ef þið viljið, ber starfsmaðurinn safnlykla viðskiptamanna og lánardrottna saman við færslur þeirra.

Áður

Afstemmingin er unnin í töflureikni dögum eftir mánaðamót, ef tími gefst.

Með starfsmanni

Niðurstaðan bíður í Business Central: mismunur, frávik og færslur sem skýra hann. Ekkert er leiðrétt án ykkar.

Starfsmaður 5 Væntanlegt

Afstemmir birgðir við safnlykla

Starfsmaðurinn ber birgðavirði saman við birgðalykla fjárhagsins og finnur kostnað sem á eftir að bóka.

Áður

Mismunur í birgðum finnst við uppgjör, þegar erfitt er að rekja hann.

Með starfsmanni

Frávik sjást strax, með skýringum. Starfsmaðurinn bókar aldrei sjálfur.

Starfsmaður 6 Væntanlegt

Gerir sjóðstreymisspá í hverri viku

Í hverri viku, eða eins oft og þið veljið, reiknar starfsmaðurinn sjóðstreymið næstu vikur úr bókhaldinu: bankastöðu, kröfur, skuldir, pantanir og virðisaukaskatt.

Áður

Sjóðstreymisspáin er sett saman í töflureikni þegar einhver hefur tíma til þess.

Með starfsmanni

Ný spá bíður í Business Central í hverri viku, með lægstu stöðu, forsendum og greiðsluvenjum viðskiptavina. Þið getið líka spurt: „Hvernig lítur sjóðstreymið mitt út 1. nóvember?“

Eigin auðkenni

Hver starfsmaður hefur sitt eigið auðkenni í Business Central. Hann notar aldrei aðgang starfsmanns.

Innan heimilda eigandans

Hver starfsmaður hefur eiganda og getur aldrei gert meira en eigandinn má.

Fólk sér um peninga og skatta

Stafrænn starfsmaður sendir aldrei greiðslur í banka og skilar aldrei til Skattsins. Það gerir alltaf manneskja.

Þið getið stöðvað hvenær sem er

Hægt er að stöðva einn starfsmann, eina aðgerð eða allt fyrirtækið, strax.

Stafrænt starfsfólk er í prófun hjá Wise. Fleiri kveikjur og verk bætast við.

Gervigreindin kann á Wise lausnirnar ykkar

Wise AI Automation vinnur ekki bara með almenn gögn í Business Central. Hún kann á Wise lausnirnar sem þið notið nú þegar og vinnur verkin í þeim eins og þjálfaður notandi.

Business Central

  • Stofnar, uppfærir og bókar sölureikninga, pantanir og kreditreikninga
  • Sendir reikninga og sækir PDF
  • Jafnar og afskrifar færslur viðskiptamanna og lánardrottna, með samþykki
  • Prófjöfnuður, afstemmingar undirbóka og fjárhagsskýrslur
  • Birgðaleiðréttingar og talningar

Wise Banking

  • Útbýr greiðslutillögur
  • Sannreynir viðtakendur greiðslna
  • Staðfestir greiðslur til sendingar, með samþykki
  • Sækir bankayfirlit og sýnir stöðu afstemminga
  • Finnur greiðslur sem stranda

Manneskja sendir alltaf greiðslur í bankann.

Wise VSK

  • Undirbýr virðisaukaskattsskýrslu
  • Afstemmir hana við fjárhag og finnur frávik
  • Ber skýrsluna saman við gögn Skattsins
  • Undirbýr leiðréttingar

Manneskja skilar alltaf til Skattsins.

Rafrænir reikningar

  • Fer yfir innkomna rafræna reikninga
  • Stofnar innkaupaskjöl úr þeim
  • Setur sölureikninga í rafræna sendingu og fylgist með stöðu
  • Endursendir það sem mistókst

Wise Kort

  • Les kortafærslur og kortayfirlit
  • Leggur til og skráir bókhaldslykla
  • Stofnar innkaupareikninga úr kortafærslum

Wise Innheimta

  • Finnur ógreiddar kröfur
  • Stofnar innheimtukröfur
  • Fylgist með stöðu og sögu krafna

Verktakamiðar

  • Útbýr verktakamiða
  • Kannar þá fyrir skil
  • Fylgist með stöðu skila

Manneskja staðfestir og skilar.

Wise Verk

  • Stofnar verkreikninga
  • Uppfærir verkáætlanir og bókar verkbók
  • Skráir og sendir tímaskráningar
  • Sýnir arðsemi verka

Wise Samþykktir Væntanlegt

  • Setur reikninga í samþykktarferli
  • Sýnir samþykkjanda staðreyndir um reikninginn
  • Listar reikninga sem bíða manns sjálfs

Fyrir hverja viðbót þarf viðkomandi Wise lausn að vera uppsett.

Spyrjið á venjulegu máli og fáið svarið strax

Sömu verk eru í boði í spjalli. Notandinn skráir sig inn með sínum Microsoft-aðgangi og biður um verkið á venjulegu máli. Gervigreindin vinnur alltaf með heimildum notandans.

„Hvaða viðskiptavinir skulda meira en 90 daga?“

Svar beint úr Business Central, án þess að afrita neitt.

„Útbúðu greiðslutillögu fyrir föstudaginn.“

Tillagan er tilbúin í Wise Banking til yfirferðar og samþykktar.

„Er VSK-skýrslan í samræmi við fjárhaginn?“

Afstemming og listi yfir frávik, áður en skilað er.

Virkar með Claude, ChatGPT, Microsoft Copilot og öðrum biðlurum sem styðja Model Context Protocol (MCP).

Þið ákveðið hversu mikið gervigreindin gerir sjálf

Við uppsetningu er valið eitt af þremur stigum. Hægt er að stilla hverja aðgerð fyrir sig síðar. Greiðslur og skattskil þurfa alltaf manneskju, sama hvaða stig er valið.

Byrjið rólega

Varfærið

Allt sem gervigreindin gerir bíður samþykkis.

  • Drög og bókanir bíða samþykkis
  • Nýir viðskiptamenn og lánardrottnar þurfa samþykki
  • Lægri hámörk á fjölda aðgerða
Sjálfgefið

Jafnvægi

Gervigreindin vinnur sjálf innan skýrra marka.

  • Drög eru stofnuð án samþykkis
  • Bókanir keyra innan upphæðarmarka, ef kerfisstjóri leyfir
  • Til dæmis 500.000 kr. á bókun og 2.000.000 kr. á sólarhring
  • Það sem fer yfir mörkin bíður samþykkis
Fyrir prófanir og vana notendur

Frjálst

Mest sjálfvirkni.

  • Söludrög keyra án marka
  • Tífalt hærri mörk í prófunarumhverfi
  • Í raunumhverfi gilda sömu mörk og í Jafnvægi
  • Í raunumhverfi þarf kerfisstjóri að staðfesta valið sérstaklega og það er skráð
128verk í vikunni
94unnin af stafrænum starfsmönnum
6biðu samþykkis
2stöðvuð af mörkum
TímiHverKveikjaVerkNiðurstaða
08:00Starfsmaður: InnheimtaVirkir dagar 08:00Áminningar útbúnar12 áminningar
09:12Starfsmaður: BókunReikningur gefinn útBóka sölureikningBókað innan marka
09:12Starfsmaður: SendingReikningur bókaðurSenda sölureikningSent
10:40Notandi B (Copilot)Beiðni í spjalliGreiðslutillagaBíður samþykkis

Dæmi til skýringar. Tölur og notendur eru ekki raunveruleg gögn.

Algengar spurningar

Hvað er stafrænn starfsmaður?

Sjálfvirkt ferli sem vinnur tiltekið verk í Business Central þegar eitthvað gerist eða á föstum tíma, án þess að neinn sé skráður inn. Hann hefur sitt eigið auðkenni, eiganda sem ber ábyrgð á honum og mörk sem hann fer aldrei yfir.

Hvaða heimildir hefur stafrænn starfsmaður?

Hver stafrænn starfsmaður vinnur innan heimilda eiganda síns og aðeins þau verk sem honum eru falin. Í spjalli vinnur gervigreindin alltaf með heimildum innskráðs notanda.

Hvað með greiðslur og skattskil?

Gervigreindin getur undirbúið greiðslur og skattskil. Greiðslur fara aldrei í bankann og skil fara aldrei til Skattsins nema manneskja samþykki og sendi.

Hvernig stjórnum við stafrænu starfsfólki?

Kerfisstjóri velur verkin, sjálfvirknistigið og mörkin í Business Central. Hann getur stöðvað einn starfsmann, eina aðgerð eða allt fyrirtækið strax og stöðvunin er skráð.

Hvar eru gögnin geymd?

Í Business Central, eins og áður. Tengiþjónninn sem Wise rekur vistar hvorki bókhaldsgögn né aðgangslykla notenda og skráir ekki innihald fyrirspurna.

Hvernig er tímasparnaðurinn reiknaður?

Reiknivélin margfaldar fjölda verka, mínútur á hvert verk og hlutfallið sem þið teljið að starfsmaður geti tekið. Hún byggir á ykkar tölum. Við förum yfir raunverulegar tölur með ykkur í samtali.

Hvað þarf til?

Business Central í skýinu (útgáfa 29 eða nýrri), Wise AI Automation viðbótina og innskráningu með Microsoft-aðgangi. Fyrir verk í Wise lausnum þarf viðkomandi lausn. Business Central á eigin netþjónum er ekki stutt að svo stöddu.

Hvenær er þetta í boði?

Wise AI Automation er í prófun hjá Wise. Við tökum fyrstu viðskiptavini inn í samráði við þá. Bókið samtal ef þið viljið vera með frá byrjun.

Stafrænt starfsfólk vinnur verkin. Fólkið ykkar sinnir því sem skiptir máli.

Tengjumst

Við skoðum þetta saman

Ertu með fyrirspurn eða ábendingu til okkar?
Endilega sendu okkur línu og við leysum málið.