Wise Fabric
Sameinaðu öll gögn á einum stað með Wise Fabric
Wise Fabric er öflug gagnagreiningarlausn sem hjálpar fyrirtækjum og stofnunum að nýta gögnin sín á markvissan hátt. Lausnin tengir saman gagnasöfn, hámarkar notkun Power BI og tryggir örugga og sjálfvirka gagnameðhöndlun. Með skýrum og aðgengilegum gögnum færðu betri yfirsýn yfir reksturinn, getur tekið upplýstar ákvarðanir og sérsniðið skýrslur og greiningar eftir þörfum fyrirtækisins. Hvort sem þú ert að leita að lausn til að bæta rekstrarstjórnun, greina viðskiptatækifæri eða hámarka skilvirkni, þá er Wise Fabric lykillinn að betri gagnanýtingu.

Þinn félagi í skýrslugerð
Helstu eiginleikar Wise Fabric
Öll gögnin þín á einum stað
Tengdu innri og opinber gögn, eins og frá Hagstofunni, til að fá heildstæða yfirsýn. Sameinaðu gögn úr mismunandi kerfum og fáðu allar lykiltölur aðgengilegar á einum stað.
Öruggar og aðgengilegar upplýsingar
Wise Fabric keyrir á umhverfi (e. tenant) viðskiptavina, þannig að gögnin haldast örugg innan fyrirtækisins. Lausnin er einföld í notkun og er hægt að aðlaga hana að þörfum hvers og eins til að fylgjast með þróun í rauntíma.
Vinnur með Business Central
Wise Fabric samþættist Business Central og öðrum kerfum, sem einfaldar greiningu og skýrslugerð. Sparaðu tíma með sjálfvirkri úrvinnslu og fáðu betri yfirsýn yfir reksturinn.
Fabric gerir Power BI að enn öflugra tóli
Wise Fabric eykur nákvæmni og hraða við gagnavinnslu, sem gerir Power BI að enn öflugra tóli. Þessi samþætting tryggir dýpri greiningu og betri ákvarðanatöku með einfaldari ferlum.
Fabric er skýjalausn (SaaS)
Wise Fabric er skýjalausn (SaaS) sem gerir fyrirtækjum kleift að nýta gagnavinnslu og greiningu án þess að þurfa að stjórna innviðum. Hún veitir auðveldan aðgang að gögnum og skýrslum hvar sem er, með hámarksöryggi, og er sveigjanleg og auðveld í notkun.

Wise Fabric
Snjallari greining með Copilot
Wise Fabric getur tengist Copilot sem nýtir gervigreind til að einfalda og bæta gagnavinnu. Copilot hjálpar þér að greina upplýsingar, búa til skýrslur og taka betri ákvarðanir með lágmarks fyrirhöfn. Þú getur einfaldlega slegið inn spurningu og fengið skýr svör um pantanir, birgðir og viðskiptagögn.
Taktu næsta skref – Bókaðu kynningu á Wise Fabric
Viltu sjá hvernig Wise Fabric getur einfaldað gagnameðhöndlun í þínu fyrirtæki?
📞 Hafðu samband við sérfræðing

Tengjumst
Við skoðum þetta saman