Skip to main content Skip to footer

Kassakerfi fyrir sveitarfélög

Centara kassakerfið er öflugt afgreiðslukerfi með tengingu við Dynamics 365 Business Central. Kerfið er uppsett með hnappaborði á snertiskjá.

Sölur fara með sjálfvirkum hætti til Business Central og verða þar að stöðluðum sölureikningum. Hreyfingar bókast á viðskiptamenn, sölur á vörur og forða. Þannig verða til birgðahreyfingar með kostnaðarverði sem gerir fyrirtækjum kleift að gera framlegðargreiningar.

Með samþættingu kerfanna sparast vinna hjá fjárhagsdeild við að færa upplýsingar milli kerfa t.d. á formi færslubóka, sölureikninga eða birgðahreyfinga.

Kassakerfi

Í stuttu máli

  • Mikil reynsla af notkun kerfisins
  • Einfalt í uppsetningu og fljótlegt að læra á kerfið
  • Hraðvirkt
  • Þægilegt hnappaborð
  • Tengingar við skanna og prentara s.s. sundmiðar o.fl.
  • Öflugt bakvinnslukerfi
  • Gögnin streyma beint í Business Central
  • Hægt að fá kerfið í leigu, með eða án hýsingar
  • Upplýsingar á stjórnborði varðandi sölur dagsins, veltu o.fl.
  • Afsláttar- og tilboðskerfi

Kassakerfi

Eiginleikar kerfisins

Tengjumst

Við skoðum þetta saman

Ertu með fyrirspurn eða ábendingu til okkar?
Endilega sendu okkur línu og við leysum málið.