Námskeiðsröð: fjárhagsáætlanagerð
Sveitarfélagateymið hjá Wise býður til ókeypis fundaraðar um áætlanagerð í Sveitarfélagalausn Wise. Fundirnir fara fram á Teams og eru ætlaðir þeim sem koma að áætlanagerð sveitarfélaga í kerfinu.
Á fundunum förum við yfir ferlið við áætlanagerð, kynnum nýjungar og gagnlega virkni, auk þess að deila ráðum og bestu starfsvenjum sem geta auðveldað vinnuna.
Markmið fundaraðarinnar er að auka þekkingu notenda á áætlanakerfinu og veita hagnýtan stuðning við gerð fjárhagsáætlana. Þátttakendur fá tækifæri til að fylgja ferlinu skref fyrir skref og nýta kerfið betur í sinni daglegu vinnu.
Þátttaka er öllum að kostnaðarlausu.
Undirbúa viðaukaáætlun fyrir áætlanagerð – 1. september
Rammaáætlanagerð – 8. september
Vinnubækur, vefur – 15. september
Millifærslur og Áætlanafærslubækur – 22. september
Framkvæmdaáætlun og sala eigna – 29. september
Skuldir og afborganir – 6. október
Skuldbindingar og samningar – 13. október
Efnahagur og sjóðsstreymi – 20. október
Þriggja ára áætlun – 3. nóvember
Heildarskil áætlunar – 10. nóvember
Þeir sem skrá sig fá fundarboð í dagatalið fyrir komandi fundi í fundaröðinni.
Fundirnir eru valkvæðir og þátttakendur velja sjálfir hvaða fundi þeir sækja.
Hlökkum til að sjá sem flesta!
Tengjumst
Við skoðum þetta saman