Wise lausnir ehf. festa kaup á Clarito
Stórauknir möguleikar í viðskipta- og skýjalausnum
Wise hefur fest kaup á ráðgjafafyrirtækinu Clarito sem hefur sérhæft sig í stjórnun viðskiptatengsla með Microsoft viðskipta- og skýjalausnum.
Með kaupunum á Clarito felast mikil tækifæri til að auka enn frekar lausnarframboð Wise. Clarito kemur inn með þekkingu og reynslu í Dynamics 365, Power Platform og Microsoft 365; lausnir sem eru stór hluti af nútíma fyrirtækjaumhverfi þar sem sjálfvirknivæðing, vinnuferlar og gagnanýting skipta höfuð máli. Einnig hefur Clarito mikla reynslu af greiningu vinnu- og verkferla, sem er undirstaðan að því að finna réttu leiðina fyrir viðskiptavini.
„Ég er mjög spenntur fyrir þessum breytingum því nú styrkjum við stöðu okkar á markaðnum með því að bjóða breiðara vöruúrval Microsoft lausna. Við höfum átt í góðu samstarfi við Wise í gegnum árin sem einkennst hefur af fagmennsku og trausti“ segir Árni Haukur Árnason, eigandi Clarito.
Wise býður nú upp á heildstæðari lausnir í Microsoft umhverfinu sem eflir enn frekar möguleika í ráðgjöf, þjálfun og þjónustu til viðskiptavina fyrirtækisins.
„Með þessu eflum við framboð lausna og þjónustu við viðskiptavini okkar heima sem og erlendis. Í breyttum heimi upplýsingatækninnar hafa kröfur viðskiptavina til þjónustuaðila aukist. Við viljum takast á við áskoranir viðskiptavina okkar og hvernig við hjálpum honum að leysa þær á sem bestan máta. Þá skiptir heildarmyndin á viðskiptakerfum okkar öllu máli því þannig hjálpum við þeim að ná fram straumlínulögðum og hagkvæmari rekstri“ segir Jóhannes Helgi Guðjónsson, forstjóri Wise.
Tengjumst
Við skoðum þetta saman