Skip to main content Skip to footer

Wise er Microsoft Solutions Partner for Business Applications

Við erum stolt af því að hafa hlotið vottun frá Microsoft sem Solutions Partner for Business Applications sem kemur í stað Gold Partner vottunar sem Wise hefur haft síðan 2014. Til að hljóta þessa nýju vottun þarf að hafa sýnt fram á víðtæka getu til að veita þjónustu og ráðgjöf vegna lausna á borð við Microsoft Dynamics 365 og Microsoft Power Platform ásamt skuldbindingu sem snýr að þjálfun og vottunar sérfræðinga okkar.

Víðtækt úrval Microsoft af viðskiptahugbúnaði í skýinu veitir fyrirtækjum og stofnunum þau tæki og tól sem þau þurfa til að stýra sínum rekstri. Lausnaframboð Wise á þessu sviði snýr einna helst að;

  • Dynamics 365 Business Central
  • Dynamics 365 Field Service
  • Dynamics 365 Sales
  • Power BI, Automate og Apps
  • Skýjavegferð

Hjá Wise starfa tæplega 200 sérfræðingar á starfsstöðvum félagsins í Reykjavík, á Akureyri og í Litháen. Við erum fjölbreyttur hópur fólks sem eigum það sameiginlegt að brenna fyrir upplýsingatækni, nýsköpun og árangri viðskiptavina. Wise þjónustar yfir 1000 fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum.

Tengjumst

Við skoðum þetta saman

Ertu með fyrirspurn eða ábendingu til okkar?
Endilega sendu okkur línu og við leysum málið.