Skip to main content Skip to footer

Vertu í skýjunum með Skýjavakt 365

Við kynnum Skýjavakt 365, öfluga skýjaþjónustu sem veitir aukið öryggi, gegnsæi og skilvirkni fyrir þinn vinnustað.

Í hröðu tækniumhverfi nútímans þurfa fyrirtæki meira en bara skýjaumhverfi, þau þurfa að vera viss um að umhverfið sé öruggt og að því sé stýrt til að hámarka frammistöðu þess. Með Skýjavakt 365 færðu heildstæða rekstrarþjónustu fyrir Microsoft 365 skýjaumhverfið þitt þar sem skýjasérfræðingar okkar fylgjast með nýjustu vörnum í skýinu og viðhalda þínu öryggi - svo þú getir einbeitt þér að daglegu starfi og vexti fyrirtækisins. Þú færð aðgang að sérsniðnu mælaborði sem veitir góða yfirsýn yfir stöðu öryggismála og bjóðum við upp á þrjár þjónustuleiðir; Security, Essential og Premium, svo auðvelt er að finna þjónustu við sitt hæfi.

Tryggir öryggi og góða yfirsýn

Skýjavakt 365 býður upp á stöðuga vöktun á hraðri tækniþróun í skýinu og innleiða skýjasérfræðingar okkar viðeigandi öryggisuppfærslur svo þitt fyrirtæki sé með fyrsta flokks vörn gegn nýjustu netógnum. Með sérsniðnu mælaborði færðu svo góða yfirsýn yfir stöðu öryggis í umhverfinu með rauntíma einkunnargjöf og upplýsingar um nýjustu uppfærslur.

Þjónustan gerir fyrirtækjum kleift að hafa góða yfirsýn yfir sitt skýjaumhverfi á meðan við sjáum um að fylgjast með öryggismálum. Með Skýjavakt 365 geta fyrirtæki einbeitt sér að vexti sínum og þurfa ekki að hafa áhyggjur af öryggisógnum eða óvæntum kostnaði, segir Sara Lind, ráðgjafi í upplýsingatækni hjá Wise

Sjálfvirkni og fyrirsjáanleiki sem einfaldar reksturinn

Einn af helstu styrkleikum Skýjavakt 365 er sjálfvirknivæðing þjónustunnar. Þessi þáttur tryggir að fyrirtæki þurfi ekki að eyða tíma eða fjármunum í handvirka stjórnun á öryggis- eða tæknimálum í skýinu.

Skýjavakt 365 býður eins og áður segir upp á þrjár þjónustuleiðir til að mæta þörfum hvers fyrirtækis. Fyrirtæki sem þurfa aukið gagnaöryggi geta valið Secure, sem bætir við sérhæfðum varnarlausnum. Essential hentar flestum fyrirtækjum og veitir örugga og fyrirsjáanlega skýjaþjónustu. Fyrir fyrirtæki sem leita að hágæða þjónustu með meiri sveigjanleika er Premium pakkinn rétti kosturinn.

Við viljum tryggja að fyrirtæki fái áreiðanlega þjónustu með fyrirsjáanlegum mánaðarlegum kostnaði. Þetta gerir þeim kleift að áætla rekstrarkostnað sinn án óvæntra útgjalda.

Tryggðu þér forskot í framtíðinni og hámarkaðu öryggi fyrir þinn stafræna rekstur í dag!

Tengjumst

Við skoðum þetta saman

Ertu með fyrirspurn eða ábendingu til okkar?
Endilega sendu okkur línu og við leysum málið.