Skip to main content Skip to footer

Þrír nýir stjórnendur hjá Wise

Wise hafi verið í mikilli sókn undanfarin ár og eftir kaupin á Þekkingu getum við nú boðið fyrirtækjum upp á heildstætt lausnaframboð á sviði upplýsingatækni sem samanstendur af hugbúnaðarlausnum í skýinu, rekstrarþjónustu og hýsingu. Wise stefnir á frekari vöxt á næstu árum, bæði á íslenskum og erlendum mörkuðum og því mikill fengur af því að fá inn reynslumikla stjórnendur til liðs við okkur við að leiða áfram uppbyggingu félagsins. 

 

Auður Karitas Þórhallsdóttir hefur verið ráðin markaðsstjóri Wise. Auður hefur starfað hjá fyrirtækinu í tæpt ár og gegndi fyrst starfi Product Marketing Manager í markaðsdeild Wise. Auður hefur víðtæka reynslu úr upplýsingatækni- og fjarskiptageiranum og hefur starfað við markaðsmál í um 10 ár. Áður en Auður gekk til liðs við Wise starfaði hún sem vefþróunarstjóri hjá Origo í fjögur ár og þar á undan hjá Vodafone, síðar Sýn í 13 ár þar sem hún gegndi lengst stöðu vefstjóra vodafone.is, stod2.is og syn.is. Auður er með B.A. gráðu í félagsfræði frá Háskóla Íslands.  

 

Ólafur Stephensen hefur verið ráðinn forstöðumaður sölu rekstrarlausna hjá Wise. Hann mun leiða sölu á  hýsingar og rekstrarþjónustu Wise með áherslu á hagkvæmar og öruggar skýjalausnir. Ólafur starfaði áður sem rekstrarstjóri fagmannaverslunar hjá Húsasmiðjunni, var þar á undan framkvæmdarstjóri hjá Vatn og Veitum og sölustjóri hjá Nova í 8 ár. Hann er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og M.Sc. í fjármálum fyrirtækja frá sama skóla.  

 

Hákon Davíð Halldórssonhefur verið ráðinn forstöðumaður sölu- og markaðsmála hjá Wise Courier, Skeytamiðlun Wise. Hákon mun leiða vinnu Wise Courier í að móta stefnu fyrir viðskiptavini og samstarfsaðila Wise Courier ásamt því að tryggja upplifun viðskiptavina. Hann var áður forstöðumaður Customer Engagement and Analytics hjá Icelandair. Hákon hefur einnig viðtæka stafsreynslu úr tækni- og fjarskiptageiranum. Hann starfaði áður sem forstöðumaður stafrænna umbreytinga hjá Sýn, leiddi viðskiptatengslastefnu hjá Símanum um 5 ára skeið og var þar áður markaðsstjóri hjá Opnum Kerfum. Hákon er með B.Sc. gráðu í alþjóðamarkaðsfræði frá Háskólanum í Reykjavík. 

 

Verið velkomin til Wise!  

 

 

Tengjumst

Við skoðum þetta saman

Ertu með fyrirspurn eða ábendingu til okkar?
Endilega sendu okkur línu og við leysum málið.