Spennandi nýjungar í nýjustu útgáfu Business Central
Í gær kynnti Microsoft fyrir notendum nýjustu útgáfu af Business Central sem er stútfull af spennandi nýjungum.
Við hjá Wise höfum við tekið sama helstu breytingar sem við teljum að muni gagnast notendum einstaklega vel og stuðla að hraðara og skilvirkara vinnuumhverfi - sjá samantekt hér að neðan.
Leit í gögnum fyrirtækis (ALT+Q)
Búið er að uppfæra leitina (ALT+Q) svo hægt sé að leita í öllum gögnum kerfisins.
Þegar leitað er eftir t.d. heiti viðskiptamanns þá koma nú upp bókaðir sölureikningar, tengiliðir og viðskiptamannafærslur o.fl. sem tilheyra þeim viðskiptamanni.
Ef t.d. lánardrottinn er til með sama heiti þá kemur hann upp í leitinni ásamt lánardrottnafærslum og öðru tengdu.
Í Business Central eru ýmsar leiðir fyrir notendur til að sérstilla síður, t.d. bæta við, flytja og fjarlægja reiti/dálka, aðgerðir o.fl. Í nýjustu útgáfunni er búið að aflæsa töflureitum þannig að stjórnendur (e. administrators) og ráðgjafar hafa möguleika á að bæta öllum reitum sem eru í töflu við síðu án þess að forritunar sé þörf.
Þegar töflureitum er bætt við síðu er það gert fyrir hvert hlutverk en ekki hvern notanda.
1. Byrjað er á að fara í Forstillingar (hlutverk), hlutverkið sem bæta á reitum á valið og aðgerðin Sértilla síður valin
2. Töflureit er bætt við á réttan stað með því að draga hann úr listanum yfir á síðuna sem hann á að fara á
3. Þegar búið er að stilla reitinn og setja á réttan stað er smellt á Lokið til að ljúka sérstillingunni
Reiturinn verður sýnilegur notendum strax
Stjórnendur (e. administrators) geta stýrt hverjir hafa heimildir til að bæta við reitum úr töflum á síður
Þessa virkni er þó ekki hægt að nota til að bæta við reitum í töflur og getur áfram þurft aðstoð forritara til að bæta við flóknum töflureitum
Nú getur stjórnandi læst möguleika notenda til að breyta ákveðnum reitum á síðum (e. page). Þetta getur hver og einn notandi gert fyrir sig eða stjórnandi fyrir hlutverkið (e. role) í heild.
Hingað til hefur flýtileiðin ALT+DOWN verið notuð til að fá upp fellilista í reitum. Nú er búið að bæta við flýtilykli til að opna það spjald sem valið er í línunni. Sú flýtileið er CTRL+ALT+DOWN. Sjá nánar í myndbandinu hér fyrir neðan.
CTRL+ALT+DOWN er flýtileið á nýja virkni, sýna upplýsingar, sem einnig er hægt að velja handvirkt í fellilista.
Það hefur verið hægt að breyta gögnum á ákveðnum síðum í Excel um nokkurt skeið en nú hefur þeim möguleika verið bætt við á 14 nýjum stöðum, þar á meðal fyrir færslubækur, vinnublöð, vörur og vöruhús.
Nú eru mögulegt að gera samstæðuuppgjör milli fyrirtækja sem ekki eru í sama Business Central umhverfi.
Uppsetning á tengingunni milli umhverfa fer fram í því fyrirtæki sem samstæðuuppgjörið er unnið. Þar er sett upp fyrirtækiseining fyrir það fyrirtæki sem á að sækja frá gögn og vísað í þá API endastöð sem tilheyrir því.
Nú er hægt að sjá á vafraflipanum nafn þess lista eða spjalds sem opið er og einnig hvaða fyrirtæki flipinn tilheyrir. Þetta getur verið afar hjálplegt þegar verið er að vinna í mörgum flipum samtímis og/eða í mismunandi fyrirtækjum í grunninum.
Til þess að fyrirtæki sjáist þarf að vera búið að skilgreina fyrirtækismerki í stofngögnum fyrirtækis
Þegar hlekkur er afritaður og honum deilt með öðrum þá sést núna á hlekknum hvað hann inniheldur, þ.e. um hverskonar spjald, lista eða skjal er að ræða.
Fremst birtist heitið á spjaldinu/listanum/skjalinu og ef fleiri en eitt fyrirtæki er í grunninum sést úr hvaða fyrirtæki hlekkurinn er
Breyting á villuskilaboðum
Villuskilaboð eru nú rauð í stað þess að vera gul líkt og áður.
Þessi útgáfa er einungis aðgengileg notendum í Microsoft skýinu
Við hvetjum alla þá sem hafa áhuga á að kanna möguleika þess færa sig yfir í Microsoft skýið að hafa samband með því að smella hér.
Athugið að þó að Microsoft hafi tilkynnt að öll ofangreind virkni verði gefin út og aðgengileg notendum gæti afhending breyst og áskilur Microsoft sér rétt til að seinka eða hætta við útgáfu ef nauðsynlegt reynist.
Tengjumst
Við skoðum þetta saman
Ertu með fyrirspurn eða ábendingu til okkar? Endilega sendu okkur línu og við leysum málið.