Skip to main content Skip to footer

Wise lausnir ehf. festa kaup á Clarito

Stórauknir möguleikar í viðskipta- og skýjalausnum 


Wise hefur fest kaup á ráðgjafafyrirtækinu Clarito sem hefur sérhæft sig í stjórnun viðskiptatengsla með Microsoft viðskipta- og skýjalausnum.  

Með kaupunum á Clarito felast mikil tækifæri til að auka enn frekar lausnarframboð Wise. Clarito kemur inn með þekkingu og reynslu í Dynamics 365, Power Platform og Microsoft 365; lausnir sem eru stór hluti af nútíma fyrirtækjaumhverfi þar sem sjálfvirknivæðing, vinnuferlar og gagnanýting skipta höfuð máli. Einnig hefur Clarito mikla reynslu af greiningu vinnu- og verkferla, sem er undirstaðan að því að finna réttu leiðina fyrir viðskiptavini.  


„Ég er mjög spenntur fyrir þessum breytingum því nú styrkjum við stöðu okkar á markaðnum með því að bjóða breiðara vöruúrval Microsoft lausna. Við höfum átt í góðu samstarfi við Wise í gegnum árin sem einkennst hefur af fagmennsku og trausti“ segir Árni Haukur Árnason, eigandi Clarito.  

Wise býður nú upp á heildstæðari lausnir í Microsoft umhverfinu sem eflir enn frekar möguleika í ráðgjöf, þjálfun og þjónustu til viðskiptavina fyrirtækisins.  


„Með þessu eflum við framboð lausna og þjónustu við viðskiptavini okkar heima sem og erlendis. Í breyttum heimi upplýsingatækninnar hafa kröfur viðskiptavina til þjónustuaðila aukist. Við viljum takast á við áskoranir viðskiptavina okkar og hvernig við hjálpum honum að leysa þær á sem bestan máta. Þá skiptir heildarmyndin á viðskiptakerfum okkar öllu máli því þannig hjálpum við þeim að ná fram straumlínulögðum og hagkvæmari rekstri“ segir Jóhannes Helgi Guðjónsson, forstjóri Wise.

Tengjumst

Við skoðum þetta saman

Ertu með fyrirspurn eða ábendingu til okkar?
Endilega sendu okkur línu og við leysum málið.