Skip to main content Skip to footer

Veffundur: Business Central 2026 Wave 2

Viðburður á Teams

Business Central 2026 Wave 2: Ný útgáfa, engin útgáfuáætlun – og hvað nú?

Útgáfa 29 er sú fyrsta sem kemur án hefðbundinnar útgáfuáætlunar. Microsoft birtir nú nýjungar jafnóðum á sameiginlegum vegvísi fyrir allar sínar vörur. Við fórum í gegnum allan listann og flokkuðum hann eftir því hver finnur fyrir breytingunum.

Skrá mig

Á dagskrá

Fyrir alla notendur: þægindi

  • Nýlega notað í uppflettingum og leit
  • Myndir forskoðaðar beint í vafra
  • Bókamerki á filtera og greiningar
  • Loksins sést hver stofnaði og breytti færslu beint á síðum

Fyrir alla notendur: nýjar aðgerðir

  • Margar fjárhagsskýrslur í eina PDF
  • Betri samsvörun Payables Agent við innkaupapantanir
  • Expense Agent frá kvittun til samþykktar (forútgáfa)
  • Beinar millifærslur af vöruhúsastýrðum stöðum
  • Stærri skref í undirverktöku og gæðaeftirliti

Fyrir lengra komna: ný stjórntæki

  • Skýrsluþemu og nýtt Word-viðbótarforrit með sameiginlegum hausum og skilyrtri birtingu (bless, 40 afrit af sama lógóinu)
  • Yfirlit yfir hvar hver fjárhagslykill er notaður í skýrslum
  • Page Scripting í almennri útgáfu
  • Einfaldari heimildir fyrir agenta
  • MCP-þjónn sem tengir gervigreind að eigin vali við BC með heimildastýringu

Nördahornið

  • Svæði úr viðbótum komin aftur í grunntöfluna og gögn hlaðast hraðar
  • Viðmót (interfaces) fá sjálfgefnar útfærslur
  • Lyklar ná þvert á viðbætur
  • AL-próf keyra í CI
  • Gervigreindar agentar fá aðgang að AL-tólunum sjálfum

Lykilbreytingar

  • SOAP á stöðluðum Microsoft-síðum er horfið fyrir fullt og allt (og nei, OData er ekki sjálfkrafa lausnin)
  • Nokkrir eiginleikar eru orðnir skylda
  • Uppfærslugluggann þarf að nýta fyrir febrúar 2027

Handan við hornið

  • Sameinað Copilot-spjall
  • Bein Fabric-speglun
  • Væntanlegur stuðningur við EDI

Tengjumst

Við skoðum þetta saman

Ertu með fyrirspurn eða ábendingu til okkar?
Endilega sendu okkur línu og við leysum málið.