Á einfaldan hátt eru reikningar myndaðir eftir tímabilum sem skráð eru í samninginn. Þegar kostnaður er bókaður á samning sér kerfið um að mynda pöntun og innkaupareikning á móti. Mögulegt er að hafa uppskrift sem grunn að upphæð í hverri samningslínu. Samningar bjóða upp á vísitölubindingu og einnig er hægt að velja á milli mismunandi gjaldmiðla eftir samningum. Fyrir samþykktarferli er hægt að staðfesta og hafna samningum og læsa þeim þegar búið er að samþykkja þá. Einfalt er að setja inn athugasemdir við einstaka samninga og senda í tölvupósti.
Mögulegt er að láta kerfið vakta lokadagsetningu samninga og senda tölvupóst á valda aðila sem brugðist geta við í tíma. Samningakerfið er sveigjanlegt og má aðlaga eftir þörfum fyrirtækja, hvort sem um ræðir leigu á húsnæði, tækjabúnaði, þjónustu eða leyfisveitingum. Rekjanleiki er mikill í kerfinu.