Skip to main content Skip to footer

Vefbúðartengingar

Wise býður upp á öflugar tengingar og samþættingar við nokkrar vefverslanir. Allar fela lausnirnar í sér að BC heldur utan um flest gögnin, vörur, viðskiptamenn og tilheyrandi upplýsingar sem stofnaðar eru í BC. Birgðastaða er svo samþætt við vefverslun oft yfir daginn, til að koma í veg fyrir að vara sem ekki er til, sé seld. Séu verslanir einnig í rekstri þá er sala frá þeim lesin inn oft yfir daginn ásamt sölu vefverslunar til að viðhalda réttri birgðastöðu. Salan bókast sem staðlaðir sölureikningar í BC.

Vefbúðartengingar

Samþætting við vefverslanir

Lausnirnar bjóða upp á afsláttarvél svo hægt sé að viðhalda samræmdum kjörum í vefverslun og í verslunum. Allar geta lausnirnar unnið með þeim hætti að bókanir á sölu og greiðslum gerast með sjáfvirkum hætti og ekki þarf að vera með handvirkar bókanir.

Wise býður upp á samþættingu við vefverslanir eins og WooCommerce, Shopify og Dynamicweb sem er stór lausn með möguleika á ekki einungis smásöluvirkni heldur einnig sölu til fyrirtækja. 

Vefbúðartengingar

Eiginleikar kerfisins

Tengjumst

Við skoðum þetta saman

Ertu með fyrirspurn eða ábendingu til okkar?
Endilega sendu okkur línu og við leysum málið.