Wise býður upp á tengingar við nokkrar vefverslanir. Vefbúðartenging Wise er lausn sem gerir þeim sem reka vefverslanir kleift að tengja verslunina við Microsoft Dynamics 365 Business Central. Innifalið í lausninni eru vefþjónustusamskipti (API) þar sem hægt er að stofna sölupantanir, sækja birgðaupplýsingar, sölusögu, sérverð og afslætti. Til er tenging fyrir WooCommerce og næst á dagskrá er að klára tengingu við Shopify.
Ennfremur er boðið upp á Dynamicweb sem er umfangsmeiri lausn en hinar fyrrnefndu og þjónar ekki eingöngu smásölumarkaði heldur einnig fyrirtækjamarkaði.
Vefbúðartengingar
Wise býður upp á öflugar tengingar og samþættingar við nokkrar vefverslanir. Allar fela lausnirnar í sér að BC heldur utan um flest gögnin, vörur, viðskiptamenn og tilheyrandi upplýsingar sem stofnaðar eru í BC. Birgðastaða er svo samþætt við vefverslun oft yfir daginn, til að koma í veg fyrir að vara sem ekki er til, sé seld. Séu verslanir einnig í rekstri þá er sala frá þeim lesin inn oft yfir daginn ásamt sölu vefverslunar til að viðhalda réttri birgðastöðu. Salan bókast sem staðlaðir sölureikningar í BC.
Vefbúðartengingar
Samþætting við vefverslanir
Vefbúðartengingar
Eiginleikar kerfisins
Tengjumst
Við skoðum þetta saman