Innifalið í áskrift
Innifalið í áskrift er hýsing og afritun í Microsoft Azure, þjónustu- og uppfærslusamningar, ótakmarkaður færslufjöldi og frír aðgangur fyrir utanaðkomandi bókara eða endurskoðanda.
Grunnur inniheldur fjárhagsbókhald, viðskiptavina- og lánardrottnakerfi, innkaupakerfi, sölu- og birgðakerfi, eignakerfi, verkbókhald og vöruhús.
Ótakmarkaður fjöldi fyrirtækja og reglulegar uppfærslur.
Enginn stofnkostnaður.
Sérlausnir sem fylgja Grunnkerfi Wise
Grunnkerfi Wise inniheldur aðlaganir og viðbætur á hinum ýmsu spjöldum í kerfinu sem auðvelda notendum aðgengi að upplýsingum.
Þetta eru viðbætur sem viðskiptavinir Wise hafa margir hverjir óskað eftir í gegnum tíðina og Wise hefur metið þannig að þær breytingar nýtist flestum notendum.
Dæmi um þetta er listi yfir bankareikninga, viðskiptamenn og lánardrottna, þar er búið að bæta við reitunum staða og hreyfing þannig að auðvelt er að sjá stöðu á bankareikningum í lista.
Í Grunnkerfum Wise eru einnig sérstakar Wise heimildasamstæður þar sem er búið að taka saman heimildir t.d. fyrir bókara og gjaldkera.
Skýrslupakki Wise
Skýrslupakki Wise inniheldur viðbótarskýrslur s.s hreyfingalista í mynt, vinnuskýrslur o.fl.