CoreData
Örugg miðlun gagna, rekjanleiki og öll samskipti á einum stað
CoreData sérhæfir sig í rafrænu skjalakerfi afhendingarskyldra aðila og uppfyllir kröfur Þjóðskjalasafns Íslandi um skil gagna á rafrænu formi. Lausnin hentar fullkomlega fyrir ríki og sveitarfélög, stofnanir jafnt sem einkafyrirtæki sem þurfa að hafa upplýsingar og skjalavörslu í rafrænu umhverfi.
Markmið CoreData er að skapa hina fullkomnu stafrænu skrifstofu þar sem gögn eru örugg og aðgengileg hvaðan og hvenær sem er.
CoreData
Allt í einni öruggri lausn
Skjalastjórnun
CoreData skjalastjórnunarkerfið er miklu meira en geymsla í skýi. Það hefur fjölda möguleika til að auðvelda hraðari og skilvirkari stjórnun skjala
Stjórnarvefgátt
Stjórnarvefgáttin er sniðin að þörfum stjórna og auðveldar skipulagningu, miðlun gagna fyrir fundi og umsjón með stjórnarfundum.
Gagnaherbergi
Gagnaherbergi gerir fyrirtækjum/stofnunum kleift að deila upplýsingum með ytri aðilum á einfaldan og jafnframt öruggan máta.
Rafrænar undirritanir
Í CoreData eru skjöl send á milli á öruggan hátt, þau rafrænt undirrituð og varðveitt á réttum stað undir réttu verkefni.
Stafrænt pósthólf
Félög og fyrirtæki sem heyra undir hið opinbera og eru í viðskiptum við CoreData geta sent skjöl til aðila í stafrænt pósthólf á Ísland.is úr kerfinu.
Umsóknarkerfi
Umsóknarkerfi CoreData styður heildstætt rafrænt ferli - allt frá umsókn að undirritun. Umsóknarkerfið styttir tíma og minnkar fyrirhöfn viðskiptavina.
Rafræn skil
CoreData lausnin hentar vel fyrir þá aðila sem þurfa að hafa upplýsingar og skjalavörslu í rafrænu umhverfi og ber skylda að skila gögnum sínum til Þjóðskjalasafns Íslands og / eða Héraðsskjalasafna til varðveislu.
Samþættingar
Með viðbótum og samþættingum sem fylgja CoreData er hægt að vista tölvupóst og viðhengi í verkefni, opna og vinna skjöl í Office 365, undirrita með Dokobit, taka á móti skrám með öruggum hætti frá Signet Transfer ofl.
Við tileinkum okkur að vernda gögn okkar viðskiptavina
CoreData styður hundruð viðskiptavina og samstarfaðila sem geyma og stjórna mikilvægum verkefnum sínum, verkum og trúnaðarskjölum í gegnum stafræna skjalastjórnunarlausn CoreData.
Því er CoreData skuldbundið til að vernda viðskipti viðskiptavina sinna og veita þá fullvissu að öryggi sé meðhöndlað eftir ströngustu reglum og stöðlum.
Tengjumst
Við skoðum þetta saman