Kerfið í hnotskurn
- Les færslur frá VISA og Mastercard samtímis
- XML beintenging við Valitor vegna færslna frá VISA kortum
- Innlestur textaskráa vegna færslna frá Mastercard kortum
- „Mínar kortafærslur“ fyrir korthafa - hægt að yfirfara færslur, ásamt undirskriftarskýrslu með samantekt
- Val um hvort færslur eru bókaðar beint eða færðar til uppáskriftar
- Kostur að bóka færslur beint eða frá Uppáskriftarkerfi
- Kostur að láta kerfið stofna lánardrottna og kortanúmer sjálfkrafa í innlestri
- Möguleiki að bóka aðeins valdar færslur
- Fjölbreyttar bókunarstillingar kortafærslna
- Eindagaafmörkun á færslur og samtalstölur korts
- Færsluleit beint úr kortakerfinu
- Öflugar aðgangsstýringar
- Samþykktarferli
- 8 víddir

Innkaupakort
Wise Card er kortakerfi sem les inn færslur frá VISA og/eða Mastercard sem teknar hafa verið út á kreditkort fyrirtækisins. Lausnin nýtist þeim fyrirtækjum og stofnunum þar sem starfsmenn hafa kreditkort vegna innkaupa frá birgjum. Færslurnar eru sóttar á vef viðkomandi kreditkortafyrirtækis, ýmist með vefþjónustu eða í skrá. Færslurnar eru því næst lesnar inn í Dynamics 365 Business Central (NAV) og bókaðar beint eða færðar til uppáskriftar.
Hagkvæm lausn, sparar tíma og eykur nákvæmni
Upplýsingar sem hafa verið forskráðar á vef kortafyrirtækis, s.s. bókhaldslykill, lýsing, deild o.þ.h. fylgja færslunum inn í Dynamics 365 Business Central (NAV) sem einfaldar ferlið enn frekar. Forskráning upplýsinga á vef kreditkortafyrirtækis hefur í för með sér minni líkur á bókunarvillum og tímasparnað við bókun.