Kerfið í hnotskurn
- Móttaka og afhending vöru
- Viðskiptasamkomulög
- Móttökusamkomulög
- Einkvæm rekjanleg merking
- Afhendingasamkomulög
- Upprunaupplýsingar
- Rafræn sending samkomulaga
- Viðskiptasaga kaupanda

Sala og afhending
Allar upplýsingar tiltækar á einum stað til að skipuleggja sölu og afhendingu sem er mikilvægt til að standast strangar kröfur kaupenda á markaði.
Sjálfvirknivæðing
Öll nauðsynleg flutningsskjöl eru útbúin sjálfkrafa þegar pöntunin er afgreidd. Pökkun, tínsla og flutningur á biðsvæði eru straumlínulöguð ásamt því að sending beint frá pöntun er með meiri sjálfvirkni.
Móttaka og afhending vöru
Móttaka og afhending vöru er skipulagt og skráð til hins ítrasta í WiseFish viðskiptasamkomulögum; magn, verðmæti, viðskiptaskilmálar, kostnaður, flutningar, frátektir birgða.
Móttökusamkomulög
Skráning í móttökusamkomulög tryggir að vara á innleið fái einkvæma rekjanlega merkingu og að upprunaupplýsingar sé skráðar með fullnægjandi hætti.
Afhendingarsamkomulög
Í afhendingasamkomulögum hafa notendur greiðan aðgang að viðskiptasögu kaupanda, verðþróun vöru, birgðum til ráðstöfunar og áætlaða söluframlegð miðað við skráðar forsendur. Nauðsynleg útflutningsskjöl eru prentuð beint úr viðskiptasamkomulögum, eða send rafrænt til viðtakanda sem viðhengi.
Tenging við Wise Analyzer
Áætlanakerfið Wise Analyzer gerir fyrirtækjum kleift að vinna áætlanir með einfaldari hætti en áður auk þess sem notandinn hefur betri yfirsýn yfir stöður og fyrri áætlanir.