Kerfið í hnotskurn
- Tryggir nákvæman loturekjanleika
- Ræður við mörg vinnslustig
- Hægt að skilgreina margar mælieiningar fyrir sömu vöru
- Staðlaðir teningar eru fyrir hendi
- Framleiðsluáætlanir fyrir mismunandi vinnslulínur og framleiðslupantanir
- Sjálfvirk bókun umbúða- og íhlutanotkunar
- Yfirsýn yfir stöður í rauntíma Vinnsluframlegðargreiningu

Vinnsluframlegðargreining
Vinnsluframlegðargreining er keyrð á framleiðslulotur, eða hóp lota, og yfirlitsskýrslur prentaðar sem sýna upplýsingar um áætlaða framlegð, raun framlegð og mismuninn þar á milli. Staðlaðar tengingar eru fyrir hendi fyrir rafræn samskipti við ytri framleiðslukerfi og tæki.
Loturekjanleiki
Framleiðslukerfi WiseFish tryggir nákvæman loturekjanleika á flæði hráefnis yfir mörg vinnslustig til fullunninnar afurðar. Hægt er að skilgreina margar mælieiningar fyrir sömu vöru, og skrá eftir aðstæðum staðlaða eða breytilega kassaþyngd á framleiddar einingar.
Framleiðsluáætlanir
Framleiðsluáætlanir eru gerðar fyrir mismunandi vinnslulínur og framleiðslupantanir myndaðar út frá tiltæku magni hráefnis. Sjálfvirk bókun umbúða og íhlutanotkunar á sér stað ef uppskrift er skilgreind fyrir framleiðsluafurð.
Tenging við WiseAnalyzer
Áætlanakerfið WiseAnalyzer gerir fyrirtækjum kleift að vinna áætlanir með einfaldari hætti en áður auk þess sem notandinn hefur betri yfirsýn yfir stöður og fyrri áætlanir.