Kerfið í hnotskurn
- Tengt við hrað- og safnsendingakerfi
- Kemur í veg fyrir tvöfaldan innslátt
- Tenging beint inn í fjárhagsbókhald
- Nútímaleg og handhæg tollskýrslugerð
- Rafræn samskipti við tollinn

Tollafgreiðslukerfi
Tollafgreiðslukerfið er sérkerfi sem tengist beint við Safnsendingakerfi Wise. Kerfið kemur í veg fyrir tvöfaldan innslátt og tengist beint inn í fjárhagsbókhaldið og gerir fyrirtækjum kleift að tollafgreiða vörur, bóka innkaupareikninga á lánardrottna, bæði flutningsaðila sem og erlenda birgja. Vörur koma inn á lager með réttu uppfærðu kostnaðarverði ásamt bókun á tollagjöldum. Hentar vel fyrir þá sem stunda innflutning og sækjast bæði eftir nútímalegri og handhægri tollskýrslugerð ásamt rafrænum samskiptum við tollinn.
Yfirsýn yfir alla þætti flutningaferilsins
Tenging við Wise Analyzer
Wise Analyzer – Viðskiptagreind gerir fyrirtækjum kleift að vinna áætlanir með einfaldari hætti en áður auk þess sem notandinn hefur betri yfirsýn yfir stöður og fyrri áætlanir.
Bein tenging við Dynamics Business Central
Kerfið tengist beint við lánardrottna, innkaup og birgðakerfi Microsoft Dynamics 365 Business Central.