Skip to main content Skip to footer

Framtíðin í skýinu með Microsoft Copilot og lausnum sem skapa virði

Við bjóðum þér á Notendamót Wise 2026, viðburð sem er helgaður framtíðinni í skýinu, nýjungum í Business Central og gervigreind. Sveitarfélög gegna lykilhlutverki í þessari vegferð og nú tökum við næstu skref saman. 

Þátttakendum gefst tækifæri til að hlýða á Peter Jakobsen, Sr. Partner Solution Architect, Business Applications hjá Microsoft í Danmörku sem gefur innsýn í hvernig Copilot og gervigreind umbreyta ferlum og rekstri. 

Fyrir hádegi förum við yfir stöðu, áskoranir og tækifæri sveitarfélaga í skýjavegferðinni. Þetta er einstakt tækifæri til að móta framtíðarsýnina í sameiningu. Eftir hádegi opnum við viðburðinn fyrir fleiri viðskiptavinum Wise. 

🗓️ Föstudagur 6. mars 

🕐 Frá kl. 08.00 - 16.30 

📌 Hilton Reykjavík Nordica 

Ekki missa af þessu einstaka tækifæri til að móta næstu skref í skýjavegferð sveitarfélaganna og sjá hvernig lausnir Wise og Microsoft geta stutt ykkur í þeirri vegferð. 

08.00 - Húsið verður opnað 
08.30 - Skýjavegferð sveitarfélaga 
09.30 - Vinnustofur sveitarfélaga 
11.45 - 13.00 - hádegismatur í boði Wise 
13.00 - Keynote: Peter Jakobsen, Sr. Partner Solution Architect hjá Microsoft í Danmörku
13.55 - Framtíðin í kerfum Wise 
14.40 - Öryggi í skýinu og er falinn kostnaður?
15.15 - Pallborðsumræður
16.00 - Hanastél og uppistand 

Hlökkum til að sjá þig!
Starfsfólk Wise 

Skráning á viðburð

Vinsamlegast skráið niður mataróþol, ofnæmi eða sérfæði

Tengjumst

Við skoðum þetta saman

Ertu með fyrirspurn eða ábendingu til okkar?
Endilega sendu okkur línu og við leysum málið.