Skip to main content Skip to footer

Copilot innleiðing - mars 2026

Námskeiðið veitir yfirsýn og hagnýta þekkingu fyrir þá sem leiða innleiðingu Microsoft 365 Copilot í sínu fyrirtæki. Farið er yfir stefnumótun, breytingastjórnun og hvernig tryggja má að fjárfestingin skili mælanlegum árangri.

Efnisyfirlit

·       Hvað er Copilot og hvers vegna skiptir það máli?
Yfirlit yfir möguleika Copilot í M365, áhrif á framleiðni og samkeppnishæfni.

·       Undirbúningur og tæknilegar forsendur
Leyfismál, öryggisstillingar, gagnastjórnun og hvernig tryggja má að fyrirtækið sé tilbúið.

·       Breytingastjórnun og menningarbreyting
Hvernig fáum við starfsmenn með í lið? Áætlun um þjálfun, innri mælikvarðar og hvernig fylgja má eftir upptöku á markvissan hátt.

·       Stjórnun og eftirfylgni
Copilot Dashboard, notkunargreining og hvernig meta má arðsemi (ROI). Næstu skref eftir innleiðingu — frá almennri notkun yfir í Copilot Agents.

·       Mótun stefnu og umgegni
Hvaða þættir hafa áhrif á mótun stefnu um notkun gervigreindar?

Að námskeiði loknu getur þú:

·         Lagt fram rökstudda áætlun um innleiðingu Copilot

·         Skilgreint forsendur, tímalínu og ábyrgðaraðila

·         Metið árangur innleiðingar og stýrt áframhaldandi upptöku

·         Tekið þátt í stefnumótun vegna notkunar á gervigreind í þínu fyrirtæki.

Staðsetning: Námskeiðið verður haldið hjá Wise, Ofanleiti 2. 

Tímasetning: 17. mars · 13:00–16:00 

Verð: 49.900 kr. (kaffiveitingar innifaldar) 

 

Skráning á námskeið

Án bandstriks
Nafn fyrirtækis/greiðanda
Án bandstriks
Ertu með Microsoft 365 Copilot leyfi í dag? *

Tengjumst

Við skoðum þetta saman

Ertu með fyrirspurn eða ábendingu til okkar?
Endilega sendu okkur línu og við leysum málið.