BC Agents – hagnýt notkun gervigreindar í Business Central
Námskeiðið er ætlað notendum og ráðgjöfum sem vinna með Dynamics 365 Business Central og vilja nýta gervigreind og Agents til að einfalda ferla, bæta yfirsýn og auka virði gagna í daglegum rekstri.
Farið er yfir hvernig BC Agents og Copilot í Business Central nýtast í raun — frá fyrirspurnum og greiningu yfir í sjálfvirknivæðingu og stuðning við ákvarðanatöku.
Efnisyfirlit
- Yfirlit: Copilot & Agents í Business Central - Hvað geta BC Agents gert í dag? Staða Copilot í Business Central og hvernig þetta breytir vinnulagi notenda.
- Hagnýt notkun í rekstri - Notkun Agents fyrir fjárhag, innleiðslur, birgðastýringu, sölu og innkaup. Spurningar á náttúrulegu máli, skýringar á frávikum og innsýn í gögn.
- Sjálfvirknivæðing ferla - Dæmi um hvernig Agents vinna með Business Central gögnum ásamt Power Automate til að styðja við endurtekna ferla og viðvaranir.
- Gagnatengingar og öryggi - Hvernig Agents nota gögn í Business Central, hvað er leyfilegt, aðgangsstýringar og ábyrg notkun gervigreindar í ERP-umhverfi.
- Næstu skref og framtíðarsýn - Hvað er í þróun hjá Microsoft? Hvernig geta fyrirtæki undirbúið sig fyrir aukna sjálfvirkni með Agents í BC.
Að námskeiði loknu getur þú:
- Nýtt Copilot og Agents í Business Central til daglegrar greiningar og rekstrarstuðnings
- Spurt flókinna spurninga á mannamáli og fengið svör byggð á raungögnum
- Skilið hvernig Agents geta stutt sjálfvirknivæðingu ferla í BC
- Metið hvar gervigreind skilar mestum ávinningi í þínu ERP-umhverfi
Staðsetning: Námskeiðið verður haldið hjá Wise, Ofanleiti 2.
Tímasetning: 28. maí · 13:00–16:00
Verð: 49.900 kr. (kaffiveitingar innifaldar)
Tengjumst
Við skoðum þetta saman