Skip to main content Skip to footer

Wise hlýtur Rising Star verðlaun Companial fyrir 2025

Wise hefur hlotið Rising Star verðlaunin frá Companial fyrir árið 2025, en verðlaunin eru veitt nýjum samstarfsaðilum sem skara fram úr í opnu, árangursríku og metnaðarfullu samstarfi.  

Í rökstuðningi Companial kemur fram að Wise hafi sýnt skýra framtíðarsýn, metnaðarfull markmið og mikla væntingar til samstarfsins – bæði hvað varðar vinnulag og árangur. Þar að auki hefur Wise tekið virkan þátt í Companial Learning Journeys og Reskill námsleiðum til að efla vöxt og þekkingu innan teymisins.  

Wise og Companial vinna náið saman að því að styðja við skýjavegferð viðskiptavina og gegnir Companial lykilhlutverki sem samstarfsaðili á þeirri vegferð.  

„Þessi viðurkenning staðfestir að við erum á réttri braut – þar sem traust, árangur og markvissur vöxtur eru í forgrunni.“ segir Ragnar Már Magnússon, framkvæmdastjóri ráðgjafasviðs Wise

Tengjumst

Við skoðum þetta saman

Ertu með fyrirspurn eða ábendingu til okkar?
Endilega sendu okkur línu og við leysum málið.