Skip to main content Skip to footer

Wise áfram einn af aðalstyrktaraðilum barna- og unglingastarfs GKG

Wise hefur endurnýjað styrktarsamning sinn við Golfklúbb Kópavogs og Garðabæjar (GKG) og verður áfram einn af aðalstyrktaraðilum barna- og unglingastarfsins. 

Samningurinn var upphaflega gerður milli Þekkingar (nú Wise) og GKG árið 2016 og á því samstarfið sér langa sögu. Sem hluti af samfélagsstefnu styður Wise uppbyggilegt frístundastarf sem eykur möguleika ungs fólks á að þroskast, efla hæfni sína og öðlast heilbrigðan lífsstíl.  

Agnar Már Jónsson, framkvæmdastjóri GKG, segir að allt frá stofnun hafi verið lögð rík áhersla á barna- og unglingastarf. Sú nálgun hafi reynst lykilatriði í að fjölga iðkendum í íþróttinni og gert GKG að einum stærsta og öflugasta golfklúbbi landsins þegar kemur að þátttöku barna og unglinga.  „Á hverju ári tekur mikill fjöldi ungra kylfinga virkan þátt í starfi klúbbsins, og við erum stolt af því hversu víðtækt og öflugt þetta starf er orðið,“ segir Agnar Már. 

„Við hjá Wise erum stolt af því að styðja við GKG og það öfluga íþrótta- og æskulýðsstarf sem klúbburinn sinnir. Með þessu viljum við leggja okkar af mörkum til að efla hreyfingu og heilbrigði barna og unglinga og styðja GKG við að gera frábært starf enn öflugra. Þetta fellur vel að okkar stefnu um að vera virkur þátttakandi í samfélaginu og styðja við jákvæða þróun sem hefur raunveruleg áhrif til framtíðar,“ segir Jóhannes Helgi Guðjónsson, forstjóri Wise. 

Tengjumst

Við skoðum þetta saman

Ertu með fyrirspurn eða ábendingu til okkar?
Endilega sendu okkur línu og við leysum málið.