Skip to main content Skip to footer

Vinnustaður í fremstu röð annað árið í röð

Wise er á meðal þeirra vinnustaða sem hafa hlotið viðurkenninguna Vinnustaður í fremstu röð frá Moodup, annað árið í röð. Viðurkenningin er veitt þeim vinnustöðum sem uppfylla skilyrði þess að hlusta á starfsfólkið með því að mæla starfsánægju að minnsta kosti einu sinni á hverjum ársfjórðungi, bregðast við með því að svara endurgjöf starfsfólks og með því að ná árangursviðmiði um starfsánægju samanborið við aðra íslenska vinnustaði.

Vorið 2024 lauk formlegri sameiningu Wise og Þekkingar þegar starfsfólk sameinaðist undir einu þaki á skrifstofum Wise að Ofanleiti 2 í Reykjavík og Hafnarstræti 91 á Akureyri. 

Það er ekki sjálfgefið að ná slíkum árangri eftir einn stærsta umbreytingarkafla félagsins frá upphafi og hvað þá að hækka í starfsánægju á milli ára, en það er samheldnin og kraftur starfsfólksins sem hefur verið lykillinn að þeim árangri sem við höfum náð. Þessi umbreyting hefur ekki einungis styrkt teymisandann heldur einnig skuldbindingu okkar til að vera vinnustaður í fremstu röð – sem nú endurspeglast í þessari viðurkenningu."

segir Tinni Kári Jóhannesson, mannauðsstjóri Wise.

Með því að uppfylla þessi skilyrði hefur Wise sýnt í verki að stjórnendur hlusta á starfsfólk, sýna í verki að álit þess skiptir máli, og ná árangri þegar kemur að því að auka og viðhalda hárri starfsánægju.

Viðurkenningin staðfestir þannig að Wise hugsar vel um starfsfólk sitt og tryggir því framúrskarandi starfsumhverfi.

Tengjumst

Við skoðum þetta saman

Ertu með fyrirspurn eða ábendingu til okkar?
Endilega sendu okkur línu og við leysum málið.