Það var líf og fjör á Akureyri fimmtudaginn 12. júní þegar Wise hélt opnunarteiti til að fagna nýjum skrifstofum að Hafnarstræti 91 – og nýjum kafla í starfseminni eftir sameiningu Wise og Þekkingar.
Viðburðurinn hófst með stuttri kynningu í Drift þar sem gestir fengu innsýn í vegferðina fram að sameiningu, lausnaframboðið sem Wise býður upp á og hvaða tækifæri það hefur upp á að bjóða fyrir fyrirtæki og stofnanir á Norðurlandi. Að því loknu var gengið yfir í nýtt skrifstofuhúsnæði Wise að Hafnarstræti 91, (gamla KEA húsinu) þar sem boðið var upp á léttar veitingar, drykki og spjall.
Gestir komu víða að – bæði frá fyrirtækjum og stofnunum á svæðinu – og skapaðist dýrmætt tækifæri til að hittast, rifja upp samstarf, ræða ný tækifæri og tengjast nýju fólki í teymi Wise á Akureyri.
Við viljum þakka öllum sem mættu og tóku þátt í þessum ánægjulega degi með okkur – og hlökkum til áframhaldandi samstarfs á Akureyri og víðar.
Tengjumst
Við skoðum þetta saman