Skip to main content Skip to footer

Nýr framkvæmdastjóri rekstrarþjónustu Wise

Á síðasta ári var tilkynnt um kaup Wise á öllu hlutafé Þekkingar og gengu kaupin í gegn á haustmánuðum við samþykkt Samkeppniseftirlitsins. Nú hafa fyrirtækin verið sameinuð undir merkjum Wise í Ofanleiti 2 í Reykjavík og Hafnarstræti 91 á Akureyri.  Það sem áður var Þekking verður nú nýtt Rekstrarþjónustusvið Wise sem Gerður Björt Pálmarsdóttir mun stýra. 

Gerður hefur síðastliðið ár gegnt starfi forstöðumanns Customer Success hjá Wise. Þar hefur hún borið ábyrgð á þjónustustefnu Wise, mótun þjónustuferla og ýmsum breytingum til að stuðla að bættri þjónustu og tengslum við viðskiptavini. Gerður hefur síðustu 20 ár starfað á sviði upplýsingatækni, þjónustustjórnunar, gæða- og mannauðsmála. Hún hefur mikla reynslu á sviði verkefnastjórnunar, stefnumótunar, gerð verkferla, árangurs- og þjónustumælinga. 

Áður en Gerður gekk til liðs við Wise starfaði hún sem gæðastjóri hjá fjártæknifyrirtækinu Five Degrees og sá þar um gæðamál og úttektir á skýjalausnum félagsins ásamt því að gegna hlutverki scrum master/team lead í Matrix SaaS teymi félagsins. Hún starfaði árin þar á undan sem deildarstjóri viðskiptaþjónustu hjá lyfjaheildsölu Distica og bar þar ábyrgð á framlínuþjónustu félagsins, viðskiptatengslum og þróun stafrænna lausna ásamt þjónustu við viðskiptavini. Gerður er viðskiptafræðingur að mennt, hefur lokið meistaragráðu í mannauðsstjórnun og mini MBA í stafrænni umbreytingu. 

Ég er ákaflega stolt og þakklát fyrir það traust sem mér er sýnt og hlakka gríðarlega mikið til að takast á við öll þau spennandi verkefni sem framundan eru.  Sameinað félag byggir á sterkum grunni Wise og Þekkingar og við erum á fleygiferð inn í framtíðina. Við höfum þarfir viðskiptavina að leiðarljósi og getum nú boðið heildstætt lausnaframboð á sviði upplýsingatækni til að styðja viðskiptavini okkar á stafrænni vegferð þeirra.” segir Gerður. 

Stefán Jóhannesson, fráfarandi framkvæmdastjóri Þekkingar, mun leiða sameiningarferlið sem er framundan.

"Það er að mörgu að hyggja við svona sameiningu. Mitt hlutverk verður að sjá til þess að allt skili sér í hús og viðskiptavinir upplifi sig í öruggum höndum. Þegar allt verður komið saman munum við sjá verulegan ávinning fyrir alla aðila. segir Stefán.

 

Tengjumst

Við skoðum þetta saman

Ertu með fyrirspurn eða ábendingu til okkar?
Endilega sendu okkur línu og við leysum málið.