Nýjungar í Business Central
Snjallari greiðslur, sjálfvirk fjármál og meiri yfirsýn
Greiðslur og fjármál
SmartPay er þægileg leið til að taka við greiðslum beint í gegnum Business Central. Lausnin styður sölu- og þjónustupantanir, sölu- og þjónustureikninga og kemur með tilbúnum tengingum við færsluhirða. Ef þú ert að selja vörur eða þjónustu í gegnum BC, þá er SmartPay einfaldasta leiðin til að taka við greiðslum.
Hver kannast ekki við að reka á eftir samþykkt reikninga í uppáskriftarkerfinu? Nú er hægt að setja upp reglur fyrir sjálfvirka samþykkt – niður á lánadrottin, lykla og víddir. Viðskiptavinir sem hafa prófað þetta segja að reikningar séu ekki bara afgreiddir hraðar heldur séu þeir einnig skoðaðir betur, því réttir reikningar fara sjálfkrafa áfram.
Gervigreind kemur til aðstoðar við bankaafstemmmingu! Þetta er einn þeirra liða sem getur tekið lengstan tíma í bókhaldi, sérstaklega þegar margar færslur í bókhaldi samsvara einni greiðslu í bankanum. Copilot-lausnin okkar hefur skilað frábærum árangri í prófunum – sparar mikinn tíma og minnkar villuáhættu verulega. Viltu vera meðal þeirra fyrstu til að prófa? Láttu okkur vita!
Fjárhagsáætlanalausnin er eitt af okkar stoltu verkefnum sem ól af sér í samvinnu við sveitarfélög. Nú erum við að bjóða hana öllum fyrirtækjum í Business Central. Gervigreind aðstoðar við að tengja bókhaldslykla við vísitölu og þú getur skrifað forsendur áætlunar í texta – kerfið reiknar síðan út áætlunina fyrir þig.
Nú er hægt að taka kortafærslur frá Arion beint inn í Business Central. Starfsmaður skráir í Arion appinu hvernig á að flokka hana og sú skráning kemur sjálfkrafa yfir í BC. Mynd af kvittun fylgir líka með!
Við erum að þróa leið til að nota gervigreind til að lykla, flokka og setja víddir á færslur sjálfvirkt sem mun spara mikla handavinnu á fjármálasviði. Sem dæmi má nefna, korthafi sem er t.d. með margar áskriftir þarf bara að skrá einu sinni – eftir það kemur kerfið með tillögu að bókun næstu skipti.
Kassar og sala
SmartPos er einfalt en öflugt kassakerfi sem hentar almennri verslun og starfsmannasjoppum. Kerfið er beintengt við Business Central með sjálfvirkri bókun, þannig að enginn þarf að færa neitt handvirkt. Hvort sem þetta er fyrir verslun eða starfsmannafélagið – SmartPos nær yfir það.
Upplýsingar og yfirlit
Til að einfalda daglega vinnu hefur viðskiptamannaspjaldið fengið nýjar upplýsingar. Nú er hægt að sjá samninga úr samningakerfi Wise og ógreiddar kröfur beint á spjaldinu – færri smellir, meiri yfirsýn.
Starfsmannaspjaldið sýnir nú orlofsstöðu, veikindi og veikindi barna. Einnig var bætt við starfsheitaflokkunarkerfi sem hjálpar til við skýrslugerð og betri flokkun á mannauðsgögnum.
Tengjumst
Við skoðum þetta saman