Wise hefur gert breytingar innan framkvæmdastjórnar félagsins með það að markmiði að efla innviði, bæta þjónustuferla og tryggja öflugt og öruggt rekstrarumhverfi fyrir viðskiptavini sína. Áki Barkarson hefur verið skipaður framkvæmdastjóri rekstrarþjónustu og upplýsingatæknimála (CIO) og Benedikt Rúnarsson hefur verið ráðinn öryggisstjóri Wise.
Áki Barkarson hefur starfað hjá Wise frá árinu 2023, fyrst sem tæknistjóri (CTO). Áður en hann gekk til liðs við Wise starfaði hann hjá Advania í 16 ár, þar af síðast sem stjórnandi hjá rekstrarlausnum og svo sem ferlastjóri (CPO). Frá komu sinni til Wise hefur Áki leitt umbótaverkefni sem snúa að styrkingu innviða, einföldun ferla og innleiðingu lausna sem styðja við betri þjónustu og áframhaldandi vöxt fyrirtækisins. Í nýrri stöðu sinni mun Áki bera ábyrgð á þróun og framkvæmd rekstrarþjónustusviðs Wise.
Benedikt Rúnarsson kemur til Wise frá Mílu þar sem hann starfaði sem öryggis- og gæðastjóri og hefur áralanga reynslu af stjórnun, innleiðingu og eftirliti með öryggismálum. Benedikt hefur byggt upp trausta þekkingu á öryggismálum í upplýsingatækni og stafrænni innviðaþróun og hefur leitt fjölda verkefna sem stuðla að bættri áhættustýringu og öflugra öryggisumhverfi. Hann hefur lokið sérnámi í ferilstjórnun á vegum Boston University og Duke University ásamt Lean námi hjá Háskólanum í Reykjavík auk ýmissa námskeiða tengdum upplýsingaöryggi
Ráðning Benedikts er liður í markvissri uppbyggingu Wise á sviði öryggis og skýjalausna og endurspeglar áherslu félagsins á að tryggja öruggt og traust rekstrarumhverfi fyrir viðskiptavini sína. Hann mun stýra áframhaldandi þróun á öryggisstefnu Wise og vinna þvert á teymi til að styrkja vörur og þjónustu félagsins í síbreytilegu stafrænu landslagi.
„Við viljum styðja við áframhaldandi stafræna vegferð viðskiptavina með því að tryggja þeim örugga, áreiðanlega og framúrskarandi þjónustu. Það er mikill fengur að fá Áka inn í framkvæmdastjórn til að leiða rekstrarþjónustusvið Wise og Benedikt í öryggisstefnu okkar. Með þessum breytingum erum við að styrkja kjarnastarfsemi okkar og tryggja að við séum vel í stakk búin til að mæta síbreytilegum kröfum um rekstraröryggi, sveigjanleika og þjónustugæði,“ segir Jóhannes Helgi Guðjónsson, forstjóri Wise.
Tengjumst
Við skoðum þetta saman